Morgunblaðið - 26.03.1986, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVKUDAGUR 26. MARZ 1986
17
Brids
Arnór Ragnarsson
Bridsfélag Kópavogs
Sl. fimmtudag 20. marz var spil-
uð önnur umferð í Butler-keppni
félagsins. Staðan eftir tvær um-
ferðir er eftirfarandi: A-riðill: Guðmundur Theódórsson — Brynjólfur Jónsson 81
Trausti Finnbogason — Haraldur Ámason 79
Ásthildur Sigurgísladóttir — Láras Amórsson 71
B-riðiU: Helgi Viborg — Armann J. Lárusson 80
Jón Andrésson — Þorvaldur Þórðarson 75
Ragnar Jónsson — Ingvaldur Gústafsson 74
Keppni verður framhaldið
fímmtudaginn 3. apríl nk.
Islandsmótsúrslit
um páskana
Urslit Islandsmótsins í sveita-
keppni 1986 verða að venju spiluð
um bænadagana á Hótel Loftleið-
um. Spilamennska hefst kl. 13 á
skírdag. Spilaðir verða tveir leikir
á dag, fyrstu þijá dagana og einn
leikur á páskadag og lýkur þá mót-
inu.
Það eru 8 sveitir sem spila til
úrslita, að undangenginni forkeppni
24 sveita, sem völdust til þátttöku
eftir svæðakeppnir út um allt land.
Er ekki fjarri lagi að áætla að
ca. 1000 spilarar hafi að þessu sinni
tekið þátt í forkeppni íslandsmóts-
ins.
Þessar 8 sveitir sem standa eftir
eru:
1. sv. Ásgríms Sigurbjömssonar Sighifirði
2. sv. Siguijóns Tryggvasonar, TBK Reykjavík
3. sv. Delta B.R. Reykjavík
4. sv. Pólaris B.R. Reykjavík
5. sv. Samvinnuf./Landsýnar, B.R. Reykjavík
6. sv. Magnúsar Torfasonar
Bridsdeild Skagfirðinga Reykjavík
7. sv. Stefáns Pálsson, B.R. Reykjavík
8. sv. Jóns Hjaltasonar, B.R. Reykjavík
Liðsskipan sveita er þessi:
Ásgrímur Sigurbjömsson, Bogi
Sigurbjömsson, Anton Sigurbjöms-
son og Jón Sigurbjömsson.
Siguijón Tryggvason, Gestur
Jónsson, Anton R. Gunnarsson,
Friðjón Þórhallsson, Ragnar
Bjömsson og Sævin Bjamason.
Þorlákur Jónsson, Þórarinn Sig-
þórsson, Bjöm Eysteinsson, Guð-
mundur Sv. Hermannsson, Þorgeir
P. Eyjólfsson og Guðmundur Páll
Amarson.
Karl Sigurhjartarson, Ásmundur
Pálsson, Hjalti Elíasson, Guðlaugur
R. Jóhannsson og Öm Amþórsson.
Helgi Jóhannsson, Guðmundur
Pétursson, Aðalseinn Jörgensen,
Valur Sigurðsson, Jón Baldursson
og Sigurður Sverrisson.
Magnús Torfason, Guðni Kol-
beinsson, Baldur Ámason, Sveinn
Sigurgeirsson, Sigtryggur Sigurðs-
son og Steingrímur Steingrímsson.
Stefán Pálsson, Rúnar Magnús-
son, Ragnar Magnússon, Valgarð
Blöndal, Karl Logason og Svavar
Bjömsson.
Jón Hjaltason, Hörður Amþórs-
son, Jón Ásbjömsson, Símon Sím-
onarson og Stefán J. Guðjohnsen.
Eins og fyrr sagði, hefst spila-
mennska kl. 13 á skírdag. Spilaðir
verða 32 spila leikir, allir v/alla.
Búast má við skemmtilegri keppni,
og að sveit íslandsmeistaranna frá
í fyrra (sveit Jóns Baldurssonar —
Samvinnuferða/Landsýnar) fái
mikla keppni. Mjög góð aðstaða er
fyrir áhorfendur á Hótel Loftleiðum
og verða leikir m.a. sýndir á sýning-
artöflu í Auditorium. Keppnisstjóri
mótsins er Agnar Jörgensson, en
framkvæmd annast Ólafur Lárus-
son.
Paradísarmissir
Denys Finch Hutton (Redford) laugar hársvörð ástkonu sinnar,
Karen Blixen (Streep), I paradísinni sem þau fundu í Afríku.
Kvikmyndlr
Sæbjörn Valdimarsson
Laugarásbíó: Jörð í Afríku —
Out of Africa ★ ★ ★
Leikstjóri: Sydney Pollack.
Handrit Kurt Luedtke. Kvik-
myndataka David Watkin.
Tónlist Anna Cataldi og John
Barry. Aðalhlutverk Meryl
Streep, Robert Redford, Klaus
Maria Brandauer. Bandarisk,
Universal, 1985.160 mín.
Kvikmyndin Jörð í Afríku
fjallar um þá unaðslegu en oft
erfíðu tíma er danska skáldkonan
Karen Blixen átti í Kenýa, eink-
um eftir að hún kynntist ævin-
týramanninum, karlmenninu
Denys Finch Hatton og losaði sig
við eiginmanninn, Bro Blixen
barón. Þá gætir í myndinni sárrar
eftirsjár horfínna paradísar heill-
andi dýralífs, framandi frum-
byggja og lifnaðarhátta og ægi-
fagurs gróðurríkis. Menning
hvíta mannsins var þó þegar
byijuð að setja mark sitt í svörð-
inn.
En ástarsaga Blixen situr í
fyrirrúmi. Hún giftist 1914
sænskum barón, frænda sínum
Bro Blixen, fyrst og fremst til
að hleypa heimdraganum en með
þeim tókust aldrei neinar ástir.
Bro var latur og drykkfelldur
ævintýramaður sem lauk hjóna-
bandinu með því að smita konu
sína af sárasótt. Hún hélt aftur
til Evrópu að leita sér lækninga,
sneri að því loknu alheil aftur til
suðurs og upp úr því hófst eld-
heitt ástarsamband hennar og
annars aðalmanns, ofurhugans
Denys Finch Hatton.
Þetta stormasama og ástríðu-
fulla samband — Hutton óttaðist
giftinguna öðru fremur — stóð í
hálfan annan áratug. Hutton á
eilífum flækingi í lofti og á láði,
Blixen í veraldarvafstri á búgarði
sínum. Síðan hendir öll hremm-
ingin; Blixen fær sig fullsadda á
flækingseðli sinnar stóru ástar,
Huttons, sem ferst skömmu síðar
í flugslysi og búgarðurinn í Afr-
íku verður eldinum að bráð. Úti
er ævintýri. Blixen heldur heim
með ægireynslu í farangrinum
sem verður kveikjan að því að
hún tekur að iðka það sem henni
er hægast um — ritstörf. Undir
skáldanafninu Isac Dinesen
skrifaði hún margar, stórbrotnar
skáldsögur og endurminningar
sem undantekningarlítið voru
tengdar paradísinni hennar í
heimsálfunni dökku. Þær áttu
eftir að afla höfundi sínum
heimsfrægðar.
Aðstandendur myndarinnar og
handritshöfundur hafa til hlið-
sjónar Jörð í Afríku samnefnda
bók skáldkonunnar og verk henn-
ar Shadows in the Grass og
Letters from Africa. Þá styðj-
ast þeir við heimildir úr Isac
Dinesen: The Life of a Story-
teller, e. Judith Thurman og Sil-
ence Will Speak e. Errol Trzeb-
inski.
Með allt þetta efni til úrvinnslu
er auðsýnt að ekki verður á allt
kosið, afleiðingin sagnfræðilegur
skáldskapur. Utkoman er í anda
hreinræktaðrar Hollywood-stór-
glamorstefnu; allt er fjarskalega
fallegt og fallegt. Líður áfram í
spennulitlum glæsileik líkt og
lygnt flúða- og fossalaust stór-
fljót. Að líkindum hefur Pollack
og meðreiðarsveinar hans tekið
þá stefnu að sníða frekar af hinar
dekkri hliðar skáldkonunnar og
sagnanna, bjóða þegnum jarð-
kringlunnar upp á „eina með
öllu“. Það hefur tekist að flestu
leyti. Nú fínnast hvergi orðið slík-
ar paradísir á Jörðu sem Blixen
lýsir í bókum sínum, utan þjóð-
garðamir. Þeir em einmitt stór-
fenglegastir í Kenýa og hrífandi,
einstök fegurð þeirra nýtur sín í
fágaðri kvikmyndatöku Watkin.
Eins og áður segir virðist hand-
ritið hafa farið í gegnum e.k.
siðferðilega ritskoðun, þar fyrir
utan er það meitlað, skynsamlegt
og samtölin áheyrileg. Aukaper-
sónur em hins vegar flest allar
í lausu lofti, merkilega illa frá-
gengnar í jafn langri og snurfus-
aðri mynd.
Leikurinn kemur nokkuð á
óvart. Streep fjarri sínu besta en
ber samt höfuð og herðar yfír
alla sína meðleikara utan þann
þýska senuþjóf, Klaus Maríu
Brandauer sem kemst næst því
að eignast hlutdeild í hjörtum
áhorfenda. Redford, sem nú lítur
út eins og unglingur á fullorð-
insámm, er utangátta kani í
hlutverki bresks aðalsmanns.
Annað hvort rejmir eða getur
ekki gert neitt úr hlutverkinu.
Lullar inn og út úr myndinni án
nokkurra tilþrifa. Sinn langbesta
„leik“ sýndi hann þó í hlutverki
Qallamannsins Jeremiah Johnson
í samnefndri mynd Pollacks.
Þetta er megin meltingartmflun
fagurrar en blóðlítillar stórmynd-
ar.
Sydney Pollack, sá hæfíleika-
ríki leikstjóri, verður ekki sakað-
ur um óvandvirkni frekar en fyrri
daginn. Jörð í Afríku er fyrsta
tilraun hans til gerðar drama-
tískrar stórmyndar af alþjóða-
stærðinni. Vísast slær hún hvar-
vetna í gegn sem atvinnumanns-
leg afþreying og er það dágóður
árangur miðað við eðli efnisins,
en frekar kysi ég að hann héldi
sig við gamanið og gegnumlýs-
inguna í framtíðinni en glansinn
ogglysið.
Eg elska Carmen ...
Carmen, (Bandaríska sópransöngkonan Julia Migenés-
Johnson), gefur hermanni undir fótinn.
Háskólabíó: Carmen Bizets
★ ★ ★
Leikstjóri Francesco Rosi.
Byggt á samnefndri óperu
eftir Georges Bizet, kvik-
myndagerð Rosi og Tonino
Guerra. Kvikmyndataka Paqu-
alino De Santis. Kóreógrafía
Antonio Gades. Stjórnandi
Lorin Maazel. Búningur og
svið Enrico Job. Aðalhlutverk:
Julia Migené-Johnson, Placido
Domingo, Ruggero Raimondi,
Faith Esaham. Frönsk-ítölsk.
Gaumont, Production Marcel
Dassault, Paris. Opera Film
Produzionone, Rome, 1984.
149 mín.
Carmen skipar merka sérstöðu
meðal annarra ópera. Tónlistin
er svo einkar melódísk og fögur
að hvert mannsbam þekkir hana
að einhveiju leyti og dáir. Meira
að segja takmarkaður óperuunn-
andi eins og undirritaður er búinn
að kunna úr henni heilu aríumar
frá blautu bamsbeini. Er það
einsdæmi á bænum þeim.
Og Rosi tekur þá ágætu stefnu
að hafa sína Carmen í anda
verksins, fylgir gamalkunnum
söguþræðinum ýkju- og hliðar-
sporalaust. Glæðir hann lífí og
möguleikum kvikmjmdarinnar og
tekst það með seiðmögnuðum
árangri. Þeir sem vilja sjá tart-
araprinsessuna í öðra ljósi fá
einnig sín tækifæri, því hvorki
fleiri né færri en þijár aðrar
kvikmyndagerðir þessarar frægu
ópera hafa séð dagsins ljós að
undanfömu. Þeim hafa stjómað
mætir menn, Peter Brooks,
Jean-Luc Godard og sérstaklega
mæli ég með útgáfu Carlosar
Saura.
Listafólkið sem 'stendur að
baki Carmen Rosis, er einvalalið.
Sjálfa spönsku sígaunafegurðina,
örlagadísina Carmen, syngur
Julia Migenés-Johnson, þrótt-
mikil, tignarleg stórsöngkona af
grísk-puerto ricönskum upprana.
Hún syngur betur en aðrir, nema
ef vera skyldi Placido Domingo
sem syngur Don Jósé af heims-
kunnum glæsileika. Er þó í það
elsta fyrir hlutverkið. Annars era
öll hlutverkin skipuð fáguðum
atvinnusöngvuram, sem skila
sínu af hrífandi mikilleik.
Sama verður sagt um stjóm-
enduma, Lorin Maazel og Rosi,
dansstjóm Antonio Gades, kvik-
myndatöku meistara Pasqualino
De Santis. Allt á þetta snjalla
listafólk heiður skilinn að stuðla
að því að gera þessa ógleyman-
legu, endalaust hrífandi ópera
að almenningseign.
OPNUNARTÍMI
Samkvæmt ákvæðum kjarasamnings er
heimilt að hafa verslanir opnar til kl. 22.00
miðvikudaginn 25. þ.m.
VERSLANA
VERSLUNARMANNAFÉLAG KAUPMANNASAMTÖK
REYKJAVÍKUR ÍSLANDS