Morgunblaðið - 26.03.1986, Page 23

Morgunblaðið - 26.03.1986, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. MARZ 1986 23 „Dauðalína“ dregin á alþjóðlegu hafsvæði Tilkall Khadafys til alls Sidra-flóa á sér enga stoð í lögum Washington, 25. mars. AP. MOAMMAR Khadafy hafði ekki fyrr hrifsað til sín völdin í Líbýu AP/Símamynd Khadafy hefur algjör tök á þegnum sínum og verður hver og einn að sitja og standa eins og honum þóknast. en fuliur fjandskapur varð með honum og Bandaríkjamönnum. Hafa þeir oft sakað hann um að hveija til og standa fyrir hryðju- verkum og sýnt það í verki, að þeir samþykkja ekki einkayfir- lýsingar hans um landhelgina undan ströndum Líbýu. Bijóta þær enda i bága við alþjóðaregl- ur. Auk átakanna að þessu sinni hefur einu sinni áður slegið í alvar- lega brýnu með Bandaríkjamönnum og Líbýumönnum. Var það í ágúst árið 1981 þegar líbýskar orrustu- þotur réðust að bandarískum þotum yfír Sidra-flóa. Þeirri viðureign lauk með því, að tvær líbýsku vélanna voru skotnar niður. Þrátt fyrir þessi úrslit hefur Khadfay aldrei látið af tilkalli til alls Sidra-flóa þótt það hafí enga stoð í alþjóðlegum samþykktum og lögum. Dró hann ímyndaða „dauða- línu“ þvert yfír flóann og lýsti því yfír, að hvert það útlent skip eða flugvél, sem færi inn fyrir hana, ætti á hættu árás. Á forsetadögum Jimmy Carters réðst múgur manns inn í bandaríska sendiráðið í Tripoli og fór um það ránshendi með blessun Khadafys og eftir að Reagan varð forseti hafa samskipti ríkjanna versnað enn. Bandaríkjastjóm hefur borið Khadafy á brýn hryðjuverk víða um heim og vegna þess var öllum öllum viðskiptum við Líbýu hætt og bandarískir borgarar hvattir til að fara burt úr landinu. Vopnaviðskiptin á Sidra-flóa: Ahyggjur af átökunum einkenna viðbrögðin WaHhintrfnn Trínnli ncr v(ónr 9.5 mnrti AP Washington, Tripoli og víðar, 25. mars. AP. RÍKISSTJÓRNIR víða um heim hafa í dag lýst áhyggjum sínum af átökum Líbýumanna og Bandaríkjamanna á Sidra-flóa og láta flestar í ljós von um, að ekki verði meira úr þeim en orðið er. Þingmenn beggja flokka á Bandaríkjaþingi hafa fylkt sér um stjórnina og forsetann en Sovétmenn saka Bandaríkjamenn um yfirgang. Yfirlýs- ingar Líbýumanna eru á þá lund, að brátt muni Miðjarðarhafið litast dumbrauðum dreyra. „Ríkisstjómin hefur haldið rétti- lega á málum og bandarískir her- menn hafa fullan rétt á að verja hendur sínar á alþjóðlegu haf- svæði," sagði demókratinn Thomas ONeill, forseti fulltrúadeildarinnar, og endurspegla þessi orð vel nokkuð eindreginn stuðning þingmanna við ríkisstjórnina. Sumir hafa þó orðið til að gagnrýna stjómina, t.d. Mark Hatfield, öldungadeildarmaður úr flokki repúblikana, sem sagði, að Bandaríkjamenn hefðu við ærið að glíma þótt þeir létu það kyrrt liggja að kljást við Khadafy. „Krabba- mein, hungur og hættan á'kjam- orkustyijöld steðja að okkur en í stað þess að takast á við þessi vandamál stöndum við í bamaleg- um slagsmálum við sjúkan og hættulegan trúð,“ sagði Hatfield. Tass-fréttastofan sovéska sagði í dag, að Bandaríkjamenn hefðu sýnt Líbýumönnum yfírgang og vís- aði til þeirra orða talsmanna Banda- ríkjastjómar, að líbýsku eldflaug- arnar hefðu ekki valdið Bandaríkja- mönnum neinu tjóni. Áður hafði þó fréttastofan skýrt frá því, að þtjár bandarískar flugvélar hefðu verið skotnar niður. Jana, hin opinbera fréttastofa í Líbýu, sagði, að fólk hefði safnast saman um landið allt til að mótmæla árás Bandaríkjamanna en vestur- evrópskir sendimenn í Tripoli segja, að nokkur þúsund manns hafí komið saman stundarkorn fyrir utan belgíska sendiráðið, sem gætir bandarískra hagsmuna í landinu, og haft þar uppi æsingalaus mót- mæli. Sagði í yfirlýsingu, sem lesin var upp í líbýska útvarpinu, að allur herinn væri reiðubúinn til átaka og að blóðið myndi bráðlega lita Mið- jarðarhafíð rautt. Viðbrögðin í Arabaríkjunum era heldur andsnúin Bandaríkjamönn- um. Alsírmenn, Sýrlendingar og íranir hafa lýst yfir stuðningi við Líbýumenn og flest dagblöð í þeim ríkjum, sem hliðholl era Vesturlönd- Pólland: Félagar í friðar- hreyfingu í fangelsi Varsjá, 24. mars. AP. SEX KONUR luku vikulangri föstu í gær, sunnudag, og sögðu við það tækifæri að þær myndu áfram berjast fyrir frelsi þeirra félaga í óopinberri friðarhreyf- ingu í Póllandi, sem í fanglesi sitja. Sex félagar í hreyfíngunni sitja í fangelsi, þar á meðal tveir forastu- menn hennar, sem handteknir vora í síðasta mánuði. Mál þeirra er nú í rannsókn ocr en’ ’ 1 ■ • um, vara Bandaríkjamenn við öðru Víetnam. Ríkisstjórnir flestra Vestur- Evrópuríkja hafa lýst áhyggjum sínum af átökunum á Sidra-flóa og segjast vona, að ekki komi til frek- ari vopnaviðskipta. Bettino Craxi, forsætisráðherra Ítalíu, sagði í dag, að ítalir vísuðu á bug tilkalli Líbýu til alls flóans en hann kvaðst ekki sammála aðferðum Bandaríkja- manna við að halda uppi alþjóðalög- um. verði gefín út á hendur þeim fyrir að eiga aðild að ólöglegum samtök- um. Fjórir aðrir félagar í hreyfíng- unni bíða annaðhvort réttarhalda eða sitja af sér fangelsisdóma fyrir að hafa neitað að gegna herþjón- ustu. I eið þeim sem verðandi pólsk- um hermönnum er gert að sveija era málsgreinar þar sem þeir era látnir sveija Sovétríkjunum holl- ustu. Hafa félagar í friðarhreyfíng- unni ekki getað sætt sig við þennan Veður víða um heim L»gst Hnst Akureyri +8 úrkoma Amsterdam 4 6 skýjað Aþena g 19 heiðskírt Barcolona 16 léttsk. Berlfn 4 8 skýjað Brussel 0 8 heiðskfrt Chicago +3 12 skýjað Dublin +2 6 heiðskírt Feneyjar 9 þokum. Frankfurt 2 12 rlgning Genf 7 14 skýjað Helsinkl 1 3 skýjað Helsinki 1 3 skýjað Hong Kong 14 16 skýjað Jerúsalem 8 14 skýjað Kaupmannah. Las Palmas 2 S rigning vantar Lissabon 11 17 slcýjað London 2 8 heiðskírt Los Angeles 16 29 heiðskfrt Lúxemborg S skýjað Malaga 15 léttskýjað Mallorca 13 skýjað Miami 11 22 skýjað Montreal +9 +3 skýjað Moskva +2 1 skýjað New York 5 11 heiðskírt Osló 0 5 skýjað Parfs 2 13 skýjað Peking 2 16 heiðskírt Reykjavík +4 léttsk. RfódeJaneiro 18 31 heiðskfrt Rómaborg 6 15 rigning Stokkhólmur +S 1 snjór Sydney 18 26 heiðskfrt FRUM- SÝNING Tónabíó frumsýnir í dag myndina Tvisvar á ævinni Sjá nánaraugl. annars \ staöar í blaöinu. V^terkurog kJ hagkvæmur auglýsingamiðill! WIKA Þrýstimælar állar stæröir og geröir ■W_Jv SQyioMiuiDiLflir tö<§)(ni®©(5)0U <& Vesturgötu 16, sími 13289 Blaðburóarfólk óskast! ÚTHVERFI Langholtsvegur 71-108 Sunnuvegur Blesugróf AUSTURBÆR Grettisgata 64-98 Opið um páskana alla daga nema páskadag Sími 667373. kHyykH’vf ^

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.