Morgunblaðið - 26.03.1986, Síða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. MARZ1986
Gaslekinn á Indlandi:
Union Carbide
samþykkir að
greiða skaðabætur
Danbury, Connecticut og Nýju Dehlí, 24. mars. AP.
LÖGFRÆÐINGAR stórfyrir-
tækisins Union Carbide hafa
Skoðanakönnun í Svíþjóð:
Fylgijafn-
aðarmanna eykst
Stokkhólmi, 25. man. AP.
MORÐIÐ á Olof Palme, forsætis-
ráðherra Svíþjóðar, hefur snúið
langvarandi fylgistapi Jafnaðar-
mannaflokksins i 6% fylgisaukn-
ingu, að því er fram kemur i
skoðanakönnun, sem birt var á
mánudag.
Leiðtogar stjómarandstöðunnar
sögðu, að fylgisaukningin byggðist
fyrst og fremst á samúð með Qöl-
skyldu Palme og yrði því ekki var-
anleg.
Bo Toresson, formaður Jafnaðar-
mannaflokksins, viðurkenndi, að
morðið á leiðtoga flokksins væri
ástæðan fyrir fylgisaukningunni og
kvað skoðanakönnun þessa ekki
marktæka. „Það verður að líða þó
nokkur tími, þar til ljóst verður
hver hin raunverulega staða er í
sænskum stjómmálum," sagði hann
í sjónvarpsviðtali.
samþykkt að greiða fómarlömb-
um gaslekans í Bhopal á Ind-
landi 350 milljónir Bandaríkja-
dala i skaðabætur, að sögn lög-
fræðings fyrirtækisins. Fleiri en
2 þúsund manns iétust er efna-
verksmiðja fyrirtækisins bUaði
og eitmð efni komust út í and-
rúmsloftið.
Samkomulagið var gert við
nokkra þá sem helst eiga um sárt
að binda vegna slyssins. Indverska
ríkisstjómin hefur fordæmt sam-
komulagið vegna þess hve lágar
bætumar séu og sagt að fyrirtækið
geri allt til að sleppa eins ódýrt
frá þessu máli og kostur sé. í
opinberri tilkynningu, sem ind-
verska ríkisstjómin gaf út, segir
að einungis hún geti samið fyrir
alla aðila, sem hlut eiga að þessu
máli, og einungis samkomulag,
sem feli í sér sanngjamar bætur
til allra, komi til greina.
Lögfræðingur fyrirtækisins
sagði að stjóm fyrirtækisins ætti
eftir að samþykkja samkomulags-
drögin og bandarískur dómari
þyrfti einnig að samþykkja þau
áður en greiðslur samkvæmt því
gætu hafíst.
Kuwait:
Yfirvöld brjóta
áfengisflöskur
Kuwait, 25. mars. AP.
SANDAUÐNIN í SuUbiah var
gegnsósa af áfengi á mánudag
eftir að yfirvöld létu bijóta þar
hundrað þúsund flöskur af
áfengi að andvirði tveggja millj-
óna denara (287 miiyóna króna).
Starfsmenn innanríkisráðuneyt-
isins segja að tollyfírvöld hafí gert
flöskur þessar upptækar undan-
fama fímmtán mánuði. Áfengi er
bannað í Kuwait af trúarlegum
ástæðum.
Að sögn sjónarvotta fluttu níu
vörubílar áfengisflöskumar til
Sulibiah, sem er um fímmtán km
norður af höfuðborginni, Kuwait.
Þar er svæði sérstakiega ætlað til
að taka við þessum forboðna vökva,
sem undir engum kringumstæðum
má fara inn fyrir varir þarlendra.
Flöskunum var dreift yfír svæðið
og keyrt yfír þær á jarðýtum. Það
tók fímm klukkustundir að mölva
flöskumar og lagði áfengisstækj-
una fyrir vit ibúa í mörg hundruð
metra fjarlægð frá áfengislóninu.
Innanríkisráðuneytið hefur nú
látið eyðileggja áfengi þrisvar á
jafnmörgum árum og hefíir vín að
andvirði 615 milljóna króna runnið
í sandinn á þessum tíma.
Bretland:
Prentarar við sama
heygarðshornið
Lundúnum, 24. mars. AP.
TIL ÁTAKA kom milli lögreglu
annars vegar og prentara og
stuðningsmanna þeirra hins
Flokksþing í
T ékkóslóvakíu
Prag, 25. man. AP.
GUSTAV Husak, forseti Tékkó-
slóvakíu, setti á mánudag þing
Kommúnistaflokksins. í setning-
arræðu hans kom ekkert fram
um að neinar meiriháttar breyt-
ingar væru í vændum á stjóm-
inni, sem breytingalítið hefur
staðið við stjómvölinn undan-
farin 17 ár.
Á þinginu verða samþykktar
áætlanir til næstu fímm ára um
hvemig stjóma eigi landinu. Husak
lofaði „skapandi og frumlegar að-
ferðir" sovéska Kommúnistaflokks-
ins.
vegar, er prentaramir reyndu
að koma í veg fyrir dreifingu
dagblaða Ruperts Murdoch.
Lokuðu um eitt þúsund manni
aðalveginum að nýrri prent-
smiðju Murdochs í Wapping i
Austur-Lundúnum. Lögregla
handtók 53 og hlutu fimm
manns nokkur sár f átökunum
þar af tveir lögreglumenn.
Meðal þeirra sem handteknir
vom, var leiðtogi annars tveggja
sambanda prentara, Tony Dubb-
ins. Segir lögreglan að hann verði
ákærður fyrir óeirðir. Þetta er
níunda helgin í röð sem prentarar
efna til aðgerða gegn Murdoch,
en fyrir rúmum tveimur mánuðum
rak Murdoch 5.000 prentara og
flutti prentun Qögurra dagblaða
sinna frá Fleet Street til Wapping.
Að sögn fyrirtækis Murdochs tafð-
ist dreifíng dagblaðanna vegna
aðgerðanna ekki nema lítillega.
„ Purpuraliturinn ‘ ‘ hlaut
engan Oskar þrátt
fyrir 11 útnefningar
William Hurt og Geraldine Page með verðlaun sín fyrir bestan leik
Los Angeles, 25. mars. AP.
KVIKMYNDIN „Jörð í Afríku“,
sem nú er sýnd í Laugarásbíói,
vann til flestra Óskarsverð-
launa eða sjö við afhendinguna
f gær. Hún var kjörin besta
mynd ársins og leikstjóri henn-
ar, Sydney Pollack, var kjörinn
besti leikstjórinn. Myndin fjall-
ar um ungar ástir danska rit-
höfundarins Isak Dinesen.
Besta erlenda myndin var kjörin
„Hin viðurkennda saga“ (The
Offícial Story) frá Argentínu.
Þetta er fyrsta myndin frá Suður-
Ameríku sem vinnur Óskarsverð-
launin, en hún fjallar um kúgun
og frelsisskerðingu og baráttu
konu við veruleika hemaðarein-
ræðis í Argentínu. Leikstjóri mynd-
arinnar er Luis Puenzo. Hann sagði
það vera kaldhæðni örlaganna að
nákvæmlega fyrir 10 ámm síðan,
24. mars 1976, hefði herinn gert
stjómarbyltingu í Argentínu. „Við
munum aldrei gleyma þeirri mar-
tröð, en nú emm við að hefjast
handa um að gera drauma okkar
að vemleika," sagði hann er hann
tók við verðlaununum.
Besti leikari ársins var kjörinn
William Hurt fyrir hlutverk sitt í
myndinni „Koss kóngulóarkonunn-
ar“, þar sem hann leikur kynvill-
ing. Öskarsverðlaunin fyrir bestan
leik konu í aðalhlutverki hlaut
Geraldine Page fyrir leik sinn í
myndinni „The Trip to Bountiful".
Hún leikur þar aldraða og þjáða
ekkju, sem þráir að snúa til
bemskustöðvanna. Mörgum fannst
tími til kominn að hún hlyti verð-
launin, því þetta var í sjöunda
skipti sem hún var útnefíid til
þeirra. Hún var spurð að því bak-
Barbara Streisand óskar Sydney
Pollack til hamingju með að hafa
verið kjörinn besti leikstjórinn
fyrir myndina „Jörð í Afríku".
f aðalhlutverki.
sviðs eftir að hafa tekið við verð-
laununum hvort hún hefði ekki
verið búin að missa trúna á að hún
hlyti Óskarinn nokkm sinni. „Ég
trúði því í sérhvert skipti, mér
fannst ég svo frábær. Ég er minn
stærsti aðdáandi," svaraði hún.
Anjelica Huston, dóttir leikarans
og leikstjórans Johns Huston, hlaut
verðlaunin fyrir bestan leik konu
í aukahlutverki í myndinni „Heiður
Prizzis", sem faðir hennar leik-
stýrði, en þar leikur hún hefni-
gjama erfðaprinsessu Mafíuveldis.
Faðir hennar var útnefndur til
verðlaunanna fyrir leikstjóm, en
mátti lúta í lægra haldi fyrir
Pollack. Bestur karlmanna í auka-
hlutverki var kjörin Don Ameche
fyrir hlutverk sitt í „Undrasteinin-
um“ (Cocoon), sem sýnd var fyrir
fáum mánuðum hér á landi í Bíó-
höllinni, en þar hefur kvikmyndin
„Heiður Prizzis" einnig verið sýnd.
Yfírburðir kvikmyndarinnar
Jarðar í Afríku komu talsvert á
óvart. Hún hirti langflest verðlaun-
in eða sjö eins og fyrr sagði. Auk
þess að vera kjörin besta myndin
og leikstjórinn sá besti hl’aut Karl
Luedtke Óskarsverðlaunin fyrir
besta handritið, John Barry fyrir
tónlistina og myndin fékk einnig
Óskarinn fyrir listræna leikstjóm,
hljóð og kvikmyndatöku.
Kvikmyndin „The Color Purple",
sem var útnefnd til ellefu óskars-
verðlauna, hlaut hins vegar engin
verðlaun. Leikstjóri hennar, Steven
Spielberg, var ekki útnefndur til
Óskarsverðlaunanna og bar á
mikilli óánægju fólks vegna þess.
Hafði það uppi borða með áletrun-
um til stuðnings Spielberg fyrir
utan tónlistarhöllina þar sem verð-
launin voru afhent. Meðal áletran-
anna má nefna þessi orð: „Heyrðu
Skari! Það tekur enginn mark á
þér lengur."
Leikarinn Paul Newman fékk
sérstakan heiðurs, Óskar fyrir
framlag sitt til kvikmynda. New-
man hefur sex sinnum verið út-
nefndur til verðlaunanna en aldrei
hlotið þau.
Lionel Ritchie hlaut óskarsverð-
launin fyrir besta lagið í kvikmynd.
Lagið heitir „Say You, Say Me“
og er úr kvikmyndinni „Hvítar
nætur" (White Nights).
AP/Símamynd
Fjórir Oskarsverðlaunahafanna með verðlaun sfn. Talin frá vinstri: William Hurt, sem kjörinn var besti
leikarinn, Anjelica Huston, sem fékk Óskarinn fyrir bestan leik í aukahlutverki, Geraldine Page, sem
kjörin var besta leikkonan, og Sydney Pollack, sem kjörinn var besti leikstjórinn.
Jörð í Afríku hlaut sjö Óskarsverðlaun: