Morgunblaðið - 26.03.1986, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 26.03.1986, Qupperneq 38
»>OOr ^«7 f »f *>o rrnr> é t^tt^ rortn r nrrr * TrTT/fTT^fJO^f MORGUNBLAÐIÐ, MIDVIKUDAGUR 26. MARZ1986 „Dæmi um úrval það sem Kvennaskólinn hefur“. „Kuennó - félagslíf" Til að ræða félagslíf Kvennaskól- ans fékk ég til mín tvo eldhressa nemendur. Það eru þau Þórir Helgi Bergsson og Ásdís Ingþórsdóttir. Röltarinn fór strax að bauna á hjú- in. Hr öflugt félagslíf í Kvennó? Þórir: Ekki hefur það verið hing- að til, því miður. Ásdís: Ástæðan er einfaldlega sú að í raun var aldrei grundvöllur fyrir félagslífi fyrr en skólinn varð fjölbrautaskóli. Við erum rétt að slíta bamsskónum. Þórir: Ég held að það skipti líka miklu máli að ýtnar og áberandi persónur hafa einfaldlega ekki fúndist og því hefúr vantað al- mennilega stjómendur. Það er líka hrikalega erfítt að virkja fólkið í skójanum. Ásdís: Fólkið er bara einfaldlega öðruvísi. Hópurinn er gífurlega dreifður. Við erum ekki nógu dug- leg að þjappa okkur saman. En eitthvað hlýtur að gerast? Þórir Já, já. Það var t.d. busa- vígsla með breyttu sniði, mjög skemmtileg. Svo höfðum við Epla- kvöld fyrir jól, svona einskonar jóla- hátíð og svo árshátíð nú fyrir mán- uði. Hún var inni í opnu vikunni okkar, Tjamardögum. Þeir tókust mjög vel. Ásdís: 18. apríl verður síðan peysufatadagurinn haldinn, en það er eldgömul hefð. Og ekki má gieyma þátttöku okkar í MORFIS þar sem við töpuðum fyrir FS eftir mjög skemmtilega keppni. Þórir: Síðan fer. bekkur út í sumar og er það frumraun. Ekki má heldur gleyma böllunum, en þau hafa verið ijögur og er eitt eftir. En hvemig er skipulagið á félagslífinu? Þórin Nemendafélagið heitir Keðjan. Stjóm hennar skipa for- maður, ritari, gjaldkeri og þrír meðstjómendur. Einn er kosinn að hausti af nýnemum, en aðrir í stjóm em kosnir að vori. Nefndir á vegum Keðjunnar em: Menningamefnd, sem er einskonar listafélag með Ijamardaga sem aðalverkefni, íþróttanefnd, safnnefnd sem sér um plötusafn skólans og um leið tónlist í mötuneytinu, samvemstað nem- enda. Þá er ritnefnd sem gefur út tvö blöð á ári og bekkjanefnd, skip- uð fulltrúum allra bekkja. Sú nefnd á að vera einskonar tengiliður milli stjómar og nemenda. Einnig er bóksölunefnd, peysufatanefnd og árshátíðamefnd. Ásdís: Stjómin hefur umsjón með öllu félagslífínu. Hún hefur fram- kvæmdavald og peningavald í samráði við skólastjóra. Formaður gætir hagsmuna nemenda út á við. En hvað tekur við á næstu vikum? Ásdís: Peysufatadagur, dimis- sion, kosningar og lokaball. Það er því heilmikið á döfínni. Lokaorð? Þórir: Ég vona að félagslífíð í skólanum okkar haldi áfram að þroskast upp á við. Gmnnurinn er að verða til og brátt getum við hafíð bygginguna. Ásdís: Nú hendum við bamsskón- um út í hom, setjum á okkur striga- skóna og þjöppum okkur saman. Síðan hlaupum við saman í átt til betra félagslífs. Og við það er engu að bæta. Jú, eitt. Félagslífíð i Kvennó á svo sannarlega möguleika á að verða mjög gott, það er Röltarinn með á hreinu. „Kvennó - skólakerfi" Skýjaborg piparsveinanna, Kvennaskólinn í Reykjavík, hóf starf- semi sína árið 1874. Skólinn var lengi vel húsmæðraskóli en smám saman jókst bóklegi þátturinn og 1946 varð skólinn gagnfræðaskóli. Árið 1909 flutti skólinn að Fríkirkjuvegi 9. 1979 var honum síðan breytt í fjölbrautaskóla. Síðan þá hafa piltar farið að sækja nám við skólann og er svo komið að i dag eru strákarnir 15—20% af nemendum skólans. Gott hjá þeim. En hvernig er námsskipulagið? Jú, því er auðsvarað. Skólinn er fjölbrautaskóli en með bekkjakerf i eins langt og það nær. Nemendur geta valið um 3 braut- ir fóstur- og þroskaþjálfabraut sem er 2 ár, félags- og íþróttabraut sem er einnig 2 ár og menntabraut sem er 4 ár til stúdentsprófs. Tekið skal fram að fólk sem veiur sér fyrri brautimar tvær getur fært sig yfír á menntabraut og klárað stúdentinn þar. Eins og áður sagði er bekkjakerfinu haldið að nemend- um Kvennaskólans en fólk getur nokkum veginn ráðið námshraða sínum og ræður tímaíjölda sínum innan vissra marka. Allar frekari upplýsingar er hægt að fá hjá ljúf- menninu Aðalsteini Eiríkssyni, skólastjóra, eða á skrifstofunni í síma 13819. „Kannski örlitið dekkri línur um augun". Iðnskólinn á sögu. „Iðnskólanemar spöruðu ekki danssporin. SævarrÓlafsson Á röftinu í dag er litiA við upp í Kvennó og fólagslífiA og skólakerfiA þar kynnt, vonandi nógu rækilega. LitlA er viA á nokkrum skólaböllum og fleira og fleira. Röltarinn stefnir á aö hafa mikiö af myndum, en láta fylgja meA stuttar og kjarnyrtar greinar. Leitast er eftir góAu samstarfi viA stjórnir og nemendur framhaldsskólanna, svo og viA hinn almenna lesanda. Þó heyrn Röltarans só næm, nemur hún ekki allt sem er aA gerast. Þetta eru ykkar síAur. ÞiA ráAiA ef nisvali. Allt sem þiA þurfiA að gera, er að láta orðið berast. „Skóla- böll“ Röltarinn er orðheldinn maður. Fyrir sléttri viku lofaði hann að birta myndir af skólaböllum. A.m.k. þijú skólaböll voru í síðustu viku. MH hélt veglegt skólaball og að sjálfsögðu var Röltarinn mættur á svæðið ásamt hirðljósmyndaranum. Glaumur, gleði og gaman ríkti á staðnum og mikill fjöldi fólks mætt- ur til að skemmta sér og öðrum. Iðnskólinn hélt sitt ball á fimmtu- daginn. Með Súlnasal Hótels Sögu algerlega undirlagðan, var snætt, horft á sýningu Ladda, sem ber heitið „Laddi á Sögu“, og síðan stig- inn dans til kl. 3 um nóttina. Mikil litadýrð einkenndi ballið og voru gestir að mála sig og aðra án minnsta tillits til vilja fórnarlamb- sins. í Hollywood voru fyrrverandi og núverandi Verzlunarskólanemar mættir til að skemmta sér. Það var einn sjötti bekkur skólans, 6-V, sem hafði það sem verkefni í stjórnun að smala útskrifuðum Verslingum á staðinn. Þetta verkefni leystu þau vel af hendi, og ætti eiginlega að gera þetta að skylduverkefni í skól- anum. VI I Hollywood — núverandi kennar og fyrrverandi nemendur. „Hvað segiði stelpur? VÍ í Hollywood.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.