Morgunblaðið - 26.03.1986, Qupperneq 50

Morgunblaðið - 26.03.1986, Qupperneq 50
50 MORGUNBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 26. MARZ1986 • Atll Eríandsson keppti nefbrotlnn sfðari hluta mótsins en vann engu að sfður opna flokkinn. MorgunblaAiA/Bjami • Jónfna Olesen og Kristfn Einarsdóttir eru f sérflokki karatekvenna hér á landi. Hér slœr Jónfna til andstæðlngs sfns. Sigraði nefbrotinn Egilsstaðir: Maraþon- knattspyrna hjá 2. flokki Hattar EgUsstBOum, 23. mars. ÁTTA Hattar-strákar f 2. flokki hófu að leika knattspyrnu f íþróttahúsinu á Egilsstöðum f gsar kl. 14:00 og léku sfn á milli nær stanslaust til kl. 6.00 f morg- un eða í 16 klukkustundir sam- fleytt — en þá var þeim gert að hætta vegna eymsla er einn keppandinn hafði fengið í hné. Að sögn formanns knattspyrnu- deildar fþróttafélagslns Hattar, Víðis Guðmundsonar, var efnt til þessarar maraþonkeppni fyrst og fremst til fjáröflunar fyrir starfsemi knattspyrnudeildarinnar — en Höttur mun nú í fyrsta sinn senda keppnislið í 2. flokk íslandsmótsins í knattspyrnu og af því mun óhjá- kvæmilega hljótast talsverður kostnaður. „Strákarnir vilja sýna með þessu að þeir eru reiðubúnir að leggja ýmislegt á sig til að afla fjár fyrir þátttökuna í fslandsmótinu," sagöi Víðir Guðmundsson, formaður þeirra. „Þeir hafa að undanförnu safnað áheitum fyrir þessa mara- þonkeppni ásamt félögum sínum í meistaraflokki — og þó aö keppn- in hafi e.t.v. ekki staðið eins lengi og að var stefnt í upphafi stóðu strákarnir sig prýðilega. Ég vil nota tækifæriö og þakka þeim fyrir þetta framtak þeirra," sagði Vfðir ennfremur. • Ámi Einarsson sigraði í Kata, og í sfnum þyngdarflokki. Hann or einn okkar allra besti karatemaður. dómsmálin settu svip á Islandsmótið f karate FÁAR fþróttagreinar eiga meira undir góðri dómgæslu en karate. Og f fáum fþróttagreinum er erf- iðara að dæma. Þetta hvort tveggja kom berlega f Ijós á öðru íslandsmótinu f karate, sem hald- ið var f Laugardalshöllinni að viðstöddum um 200 áhorfendum á sunnudagskvöldið. Atli Erlendsson, sem er einn okkar fremsti keppnismaður, fékk að reyna þetta. Hann var nýbúinn að ná sér eftir nefbrot, en fékk fljótt högg í andlitið, svo brotið tók sig upp. Samt fékk hann að halda áfram, en tapaði mjög óvænt keppni í sínum þyngdarflokki, sem hann vann fremur léttilega í fyrra. Dómararnir töldu hann hafa beitt of mikilli hörku. í opna flokknum, sem er eins og í júdóinu sameigin- legur vettvangur allra þeirra bestu, vann Atli hinsvegar sigur, þegar Ævar Þorsteinsson, mótherji hans í úrslitunum, fékk á sig refsistig fyrir það sem dómarar töldu of grófa atlögu. Það gekk því á ýmsu á þessu móti. Nokkrir karatemenn, eins og Jónína oa Kristín í kvennaflokki, og Atli, Arni Einarsson og Ævar Þorsteinsson í karlaflokki, hafa greinilega yfirburði í þessari íþrótt, og eru raunar í öðrum gæðaflokki en flest hinna. Raunveruleg spenna um úrslit myndaðist að- eins í úrslitunum í opnu flokkunum, eða þegar jafnir keppendur, annar Shotokan og hinn Go ju-ryu voru að keppa. Greinilegur rígur er nefnilega hjá karatemönnum milli þessara tveggja keppnisstíla, og augljóst að áhorfendur skiptust í tvö horn — með eða á móti Shotok- an aðferðinni, sem þykir ekki jafn fínleg og hin. Allir karatemenn eru hinsvegar sammála um að dómgæslan er höfuðverkur, enda er íþróttin ung hér á landi, iðkendur fáir, og dóm- arar þar af leiðandi ekki á hverju strái. „Við verðum að laga dóm- gæsluna, fá menn að utan til að taka þetta að sér. Það er afleitt að dómgæslan skuli vera svona mikiö í sviðsljósinu, og harkan í þessu móti var alltof mikil", sagði Atli Erlendsson, sigurvegar opna flokksins, en hann er jafnframt landsliðsþjálfari karatemenna. Sigurvegarar í einstökum flokk- um á mótinu urðu: Kata kvenna: Jónína Olesen Kata karla: Árni Einarsson Kata unglinga: Halldór Narfi Stefánsson Kumite kvenna: Kristín Einarsdóttir Kumite karla 65 kg: Árni Einarsson Kumite karla 73 kg: Finnbogi Karlsson Kumite karla 80 kg: Konráð Stefánsson Kumite karla 80 kg: Ævar Þorsteinsson Kumite karla Opinn flokkur: Atli Erlendsson Getrauna- spá MBL. 3 ? 2 > Q £ c c K Oagur z 1 2 < 1 1 Sunday Mirror Sunday People Sunday Express Sunday Telegraph SAMTALS 1 X 2 Chelsea — West Ham 1 1 1 2 1 1 1 X 1 X X 7 3 1 Coventry — Nottlngham Forest X 2 2 1 X 2 2 2 2 2 2 1 2 8 Everton — Newcastle 1 1 1 1 1 1 1 1 1 2 1 10 0 1 Leicester — Luton 1 2 2 X X X X 1 1 X 1 4 5 2 Man. City — Aston Villa X 1 1 X 1 1 1 1 1 1 1 9 2 0 Oxford — QPR 1 2 X 1 1 1 1 1 X 1 1 8 2 1 Sheff. Wed. — Uverpool X 1 X 1 2 1 2 2 2 2 X 3 3 6 Watfo-d — Ipswich 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 11 0 0 WBA — Southampton 2 1 X 2 X X 1 2 X 2 X 2 5 4 Blackburn — Stoke 1 X 1 X 1 1 1 1 X 1 2 7 3 1 Crystal Palace — Brighton 1 X 1 2 1 1 2 1 2 X 1 6 2 3 Hull — Barnsley 2 X X 1 2 1 X 1 1 1 1 6 3 2 Maraþonkeppnin fór fram eftir reglum KSÍ um innanhússknatt- spyrnu. Leikmenn léku í 55 mínút- ur. í senn og hvíldu sig síðan í 5 mínútur. Alls voru skoruð 737 mörk í þessari maraþonkeppni. Maraþonlið Hattar skipuðu eftir- taldir: Grétar Eggertsson, Valgeir Pétursson, Hilmar Gunnlaugsson, Magnús Þórhallsson, Þorsteinn Einarsson, Magnús Jónasson, Þór- arinn Jakobsson og Jón Kristins- son, en Emil Björnsson er þjálfari Hattar-stráka í 2. flokki. íslandsmethafar í maraþon- knattspyrnu munu vera liðsmenn Skalla-Gríms í Borgarnesi. — Ólafur llífjTliini

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.