Morgunblaðið - 24.05.1986, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 24.05.1986, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. MAÍ1986 39 Bryn veig Þorvarð- ardóttir — Minning Fædd 22. apríl 1907 Dáin 15. maí 1986 Fimmtudaginn hinn 22. þessa mánaðar var Brynveig Þorvarðar- dóttir frá Stað í Súgandafirði, jarð- sungin frá Grundtvig-kirkju í Kaup- mannahöfn. Brynveig var dóttir hjónanna séra Þorvarðar Brynjólfssonar og Önnu Stefánsdóttur. Foreldrar séra Þorvarðar voru Brynjólfur Oddsson, bókbindari í Reykjavík, sem nefnd- ur hefur verið Reykjavíkurskáld og Rannveig Ólafsdóttir, Péturssonar, lögréttumanns frá Kalastaðakoti á Hvalfjarðarströnd. Anna, móðir Brynveigar, var dóttir séra Stefáns Péturssonar, Jónssonar, vefara frá Víðivöllum ytri í Fljótsdal. I beinan kvenlegg í fjórða lið var Brynveig komin út af Þórði bónda Pálssyni frá Kjama í Eyjafirði. Hugur Brynveigar stóð alla tíð til nokkurra mennta þótt eflaust hafi verið erfítt um vik þar eð systkinin voru mörg og ekki til siðs að ungar stúlkur væru að eyða tíma í skólagöngu og við það bættist að hún missti föður sinn um tvítugt og það kom í hlut eldri systkinanna að aðstoða móður sína við heimilið og ala önn fyrir þeim yngri. Bryn- veig útskrifaðist þó frá Húsmæðra- skóla Vesturlands árið 1926. Á fullveldisdaginn árið 1928 gekk Brynveig að eiga Stefán Bjömsson, prentara í Reykjavík. Þeim varð tveggja dætra auðið, Olgu Guðbjargar, sem fórst í flug- slysi við Reykjavík fyrir 35 ámm og Önnu, sem stundar verzlunar- störf í Kaupmannahöfn. Stefán og Brynveig slitu samvistir eftir 11 ára sambúð. Undanfarna áratugi bjó Brynveig lengst af í Danmörku, ýmist í Minning. Gróa Amadóttir Fædd 15. janúar 1914 Dáin 6. maí 1986 Mig langar með nokkrum orðum að minnast fóstursystur minnar, Gróu Ámadóttur, sem lést 6. maí og varjarðsungin 15. maí sl. Gróa fæddist í Norður-Vík í Mýrdal 15. janúar 1914, dóttirhjón- anna Guðríðar Sveinsdóttur og Ama Gíslasonar. Ólst Gróa upp í föðurhúsum í Vík ásamt yngri syst- ur sinni, Margréti, en hún lést árið 1946 og var öllum harmdauði sem hana þekktu. Árið 1934 giftist Gróa Sigurjóni Mýrdal Skaftasyni, mikl- um gæðamanni. Eftir 5 ára hjóna- band lést Sigurjón í blóma lífsins. Gróa starfaði um nokkurra ára skeið á Vífilsstöðum til að geta verið sem næst eiginmanni sínum og systur er þar vom sjúklingar. Markaði sá tími djúp spor í sálarlíf hennar og óhætt mun að segja að Gróa hafí aldrei náð sér til fullnustu eftir það. Árið 1950 kynntist Gróa ágætismanni, Guðjóni Guðbrands- syni frá Rauðalæk í Holtum, og eignuðust þau eina dóttur, Margréti Sigrúnu, og veitti hún þeim mikla hamingju. Árið 1968 lést Guðjón eftir erfiða sjúkdómslegu. Aftur mátti Gróa sjá á bak ástvini út yfir gröf og dauða. Líf Gróu var enginn dans á rósum, hún mátti þola mót- læti og erfíðleika en bjartar hliðar vom í lífi hennar sem annarra. Dóttirin, Margrét Sigrún, var henni allt og henni helgaði hún allt sitt líf. Hennar er missirinn mestur. Ég vil að leiðarlokum þakka Gróu fyrir allt sem hún hefur verið mér. Megi Guð blessa hana og varðveita í nýjum heimkynnum. Eg vil votta dóttur hennar og öðmm ástvinum mína innilegustu samúð. Fari hún í friði, friður Guðs hana blessi, hafí hún þökk fyrir allt og allt. Haraldur Þór Jónsson Kaupmannahöfn eða í Óðinsvéum, þar sem hún vann við saumaskap eða sem ráðskona. Á þessu er þó sú undantekning að á ámnum 1972—1975 var Brynveig búsett í Reykjavík. Brynveig hafði yndi af útiveru og ferðalögum, hún reyndi að njóta hvers sólargeisla sem gafst. Sér- staklega er mér minnisstæð fjöl- skylduferð, sem farin var vestur til Súgandafjarðar í tilefni þess að hundrað ár vom liðin frá fæðingu séra Þorvarðar. Brynveig lék á als oddi og var hrókur alls fagnaðar eins og henni var von og vísa. Það var aldrei nein lognmolla í kringum Brynveigu. Hún fór sínu fram, var hreinskilin og dró ekki úr neinu. Vestfirðir hafa löngum þótt erfið- ir yfirferðar og vegakerfíð var ekki neitt til að hrópa húrra fyrir fyrir 20 ámm. Þá var Þingmannaheiðin ennþá farin, varla annað en niður- grafnir troðningar. Það var því engin furða þótt fólk væri yfírleitt þreytt eftir slíkar ófæmr og vildi njóta hvíldar eftir að vera búið að skrölta um óvegi daglangt. Bryn- veig lét hins' vegar engan bilbug á sér finna heldur stakk strax upp á því þegar ferðalangar vom komnir dauðlúnir í áfangastað, að skreppa til ísafjarðar í bíó, þótt slíkt hefði kostað tvær ferðir til viðbótar yfír Botnsheiðina. Þannig var Bryn- veigu rétt lýst. Hún lét ekkert aftra sér, setti ekki fyrir sig vestfírzka fjallvegi frekar en þeir væm hunda- þúfur. Brynveig geymdi heldur ekki það til morguns, sem hún gat gert ídag. Brynveig var listelsk, lék bæði á píanó og orgel og fékkst mikið við hannyrðir, sem ættingjarnir fengu að njóta í ríkum mæli. Eitt fyrsta merki þess að jólin væm í nánd vom tilkynningar frá póstinum þess efnis að viðtakandi ætti sendingu frá Danmörku á pósthúsinu. Oftast var þetta eitthvað sem Brynveig hafði útbúið sjálf, pijónað eða heklað. Ekki má heldur gleyma jóla- dagátölunum sem hún var vön að senda litla frændfólkinu sínu og vom alltaf komin upp úr miðjum nóvembermánuði. 1 Brynveig var frændrækin og lagði sig í líma við að halda reglu- legu sambandi við fjölskyldu sína og skyldulið á Fróni. Hún var höfð- ingi heim að sækja hafandi það í huga að þar sem er hjartarúm, er húsrúm. Ég átti þess kost að heimsækja Brynveigu nokkmm sinnum á und- anfömum ámm og alltaf vom mót- tökurnar jafn góðar, þótt heilsan væri farin að bila. Var þá rætt um allt milli himins og jarðar eins og gengur og gerist en Brynveig hafði alltaf vakandi áhuga á að vita hvernig frændfólkinu vegnaði og hvernig heilsufarið væri. Hún lét sér annt um náungann þó hún væri stundum tannhvöss og dóm- hörð þannig að þeir sem þekktu lítt til hennar áttu e.t.v. til að fyrtast. Danir hafa löngum fengið orð fyrir að vera góðir matargerðar- menn og danskur matur verið talinn Ijúffengur. Þessa list kunni Bryn- veig. Því verða hamborgarhrygg- imir, sem boðið var upp á hjá Brynveigu, ógleymanlegir. Hún átti það jafnvel til að leysa gesti sjna út með nesti væri allt rými fyrir frek- ari veitingar þrotið. Eitt sinn er við hjónin vomm á ferð í Kaupmannahöfn og orðin uppiskroppa með töskur vegna pinkla er höfðu bætzt við í förinni fengum við lánaða tuðm hjá Bryn- veigu og varð það að samkomulagi að henni skyldi skilað er ég yrði næst á ferðinni. Snemma í desem- ber lá leiðin aftur um Kaupmanna- höfn. Nú skyldi tækifærið notað og tuðmnni komið til eiganda síns. Reyndin varð önnur. Taskan sneri aftur til íslands full af bögglum frá Brynveigu, ekki aðeins jólagjöf- um heldur einnig afmælisgjöfum til þeirra, sem faeHdir vom snemma í árinu. Alltaf var Brynveig sjálfri sér lík. Blessuð sé minning hennar. Kristjón Kolbeins
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.