Morgunblaðið - 24.05.1986, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. MAÍ 1986
47
„Ekki rétt að gera eitt
mál að k o sning’ab o mbu “
Fulltrúar Kvennalistans fyrir utan Hótel Vík.
— segja fulltrúar
Kvennalistans
„Borgarstjómarkosningar
snúast fyrst og fremst um
stefnu í borgarmálefnum.
Okkur finnst ekki rétt að taka
eitt mál og gera það að kosning-
arbombu, og leggjum því ekki
áherslu á eitt einstakt mái. Við
leggjum í grundvallaratriðum
áherslu á breytt verðmætamat
og auk þess teljum við nauðsyn-
legt að laun þeirra lægst Iaun-
uðu í borginni hækki,“ sögðu
fulltrúar Kvennalistans í
Reykjavík á fundi með frétta-
mönnum.
Fulltrúar Kvennalistans boðuðu
fréttamenn á sinn fund til að
kynna stefnuskrá í borgarmálefn-
um og sögðust m.a. boða til fund-
arins vegna þeirrar sérstöðu að
hafa ekki yfir ákveðnu málgagni
að ráða líkt og hinir flokkamir.
Stefnuskrá Kvennalistans sögðu
þær byggjast öðru fremur á
kvennapólitík, sem ekki væri
hægt að staðsetja á pólitískum ás
sem liggur frá vinstri til hægri
eða öfugt. Kvennapólitík sögðu
þær líkt og þriðju víddina, eða
þriðja homið á þríhymingi, og
sögðu þær stefnuskrá listans
grundvallast á þessari afstöðu.
Þær töldu að breyta þyrfti stefnu
og starfsháttum flokkanna til að
þeir yrðu konum aðgengilegri, en
Kvennalistinn byggir að sögn
þeirra á dreifingu valds og
ábyrgðar, og í því skyni liggur
fyrir samþykkt um að engin kona
skuli vera lengur en tvö ár í kjöm-
um stofnunum, nefndum og ráð-
um.
Þá nefndu þær helstu viðburði
í kosningabaráttunni, en Kvenna-
listinn hefur gefið út og dreift
stefnuskrá sinni. Þá eru þær með
útimarkað og söng á Lækjartorgi
þegar veður leyfir, fjölskylduhátíð
verður sunnudaginn 25. maí í nýja
Sóknarhúsinu við Skipholt, og
kosningakvöldið og nóttina þar á
eftir verður safnast saman á
Gauki á Stöng.
Vakin var athygli á því að í
15. sæti listans er sænsk kona
sem búsett er hér á landi, en það
Morgunblaðið/Börkur
er að öllum líkindum í fyrsta sinn
sem erlendur ríkisborgari er í
framboði til borgarstjómar.
„Við viljum jafnrétti að nóttu
sem degi,“ sagði einn fulltrúinn,
hinir tóku undir það og sögðust
leggja áherslu á að sjónarmið
kvenna og reynsla þeirra nýttist
betur við ákvarðanatökur í borg-
armálefnum.
í munnstykkinu vinstra megin
er tjara úr einum pakka af síga-
rettum.
Munnstykki sem
draga úr skaðsemi -
reykinga á markað
NÝLEGA hófst hér á landi sala
sígarettumunnstykkja af gerðinni
Tar-Gard, sem draga úr skaðsemi
reykinga á þann hátt að megnið
af tóbakstjörunni verður eftir í
munnstykkinu í stað þess að fara
niður í lungu reykingamanna.
Tar-Gard munnstykkin eru
gagnsæ, svo reykingafólk getur
fylgst með því hversu mikil tjara
berst úr hverri sígarettu, og að sögn
hafa áhrif þess auðveldað mörgum
að hætta að reykja.
Uppgötvun Tar-Gard tjörusíunnar
byggist á lögmáli ítalska eðlisfræð-
ingsins Venturis, sem var uppi á
átjándu öld. Reykurinn dregst gegn-
um örmjótt op og síðan er hraði
hans aukinn upp í um það bil 300
km á klst. Þá rekst reykurinn á haft
sem stöðvar tjöru og nikótín. Reykur-
inn fer siðan fram hjá haftinu og út
í gegnum munnstykkið án þess að
þessi meðferð hafi áhrif á bragð
hans.
Hver Tar-Gard sía dugar fyrir 35
til 40 sígarettur, og þær eru seldar
fimm saman í pakka. Innflytjandi er
ÍSPRÓ, en það er Söluþjónustan í
Kópavogi, sem annastdreifingu.
laugardagkl. 9.00—16.00
sunnudag kl. 13.00—16.00
SIÁTTU
VÉLAR
verHfæRI
SÓL FLAGO
STOFUR STFNGUR