Morgunblaðið - 20.08.1986, Page 7
Wr‘0' TTí'/ 0<{ 5ltlí)Amrj!fV01M (HrtA
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. ÁGÚST 1986
i
Unnið var að hreinsun miðborgarinnar eftir hátíðarhöld vegna 200 ára afmælis borgarinnar.
Reykjavík 200 ára:
Miðborgin þrifin á átta tímum
HREINSUN í miðborg
Reykjavíkur eftir hátíðarhöld-
in vegna 200 ára afmælis
borgarinnar gekk vel og hratt
fyrir sig að sögn Péturs Hann-
essonar yfirmanns hreinsunar-
deildar Reylg'avíkurborgar.
„Ég held að verkinu hafi að
mestu leyti verið lokið klukkan
átta í morgun, en þá átti eftir að
raka grasfleti," sagði Pétur í
gær. Milli 30 og 40 manna hópur
hreinsunarmanna með þijá vél-
sópa og tvær bifreiðir sem þvo
götur, hófst handa ki. 4 aðfara-
nótt þriðjudags og var verkinu
lokið að fullu átta stundum síðar.
Engar kvartanir bárust vegna
skemmda en ruslið var gífurlegt
og giskaði Pétur á að milli 5 og
600 ruslapokar hefðu verið fylltir
fyrir utan það rusl sem vélsóparn-
ir, sem voru tæmdir tvisvar, náðu
til.
Reykjavík 200 ára:
Jassað á Arnarhóli
fram eftir kvöldi
JASSTÓNLEIKAR á Arnarhóli,
sem haldnir eru í tilefni 200 ára
. afmælis Reykjavíkur, eru í um-
sjón Jassvakningar og hefjast
þeir kl. 21:00 á miðvikudagskvöld.
Á tónleikunum kemur fram Tríó
Jóns Páls Bjarnarsonar gítarleikara,
en hann var einn af okkar betri gítar-
leikurum frá „gullaldarárum" jassins
eftir 1960, að sögn Jónatans Garð-
arssonar. Jón Páll bjó í Svíþjóð í
nokkur ár, lék þar jass og kenndi
gítarleik. Undanfarin tvö ár hefur
hann dvalið í Bandaríkjunum þar
sem hann stundaði nám við „Guitar
Institute" í Los Angeles og lék hann
nýlega með stórhljómsveit Buddy
Rich. Þá mun kvartett Guðmundar
Ingólfssonar píanóleikara koma
fram, en hann hefur starfað hér
undanfarin ár og m.a. gefíð út hljóm-
plötuna „Nafnakall".
Fulltrúi yngri jassleikara á tón-
leikunum verður Björn Thoroddsen
gítarleikari ásamt hljómsveit, en
þeir félagar komu fram á jasshátíð
í Kongsberg í Noregi í sumar. Björn
stundaði einnig nám við „Guitar
Institute". Jónatan sagðist vonast
eftir sem flestum áheyrendum við
Amarhól, en tónleikamir munu
standa fram eftir kvöldi.
Tæknisýningin í Borgarleikhúsinu:
Hluti sýningar-
innar til 1. október
ÁKVEÐIÐ hefur verið að gefa
skólabörnum tækifæri til að sjá
tæknisýninguna, sem sett var
upp í tilefni 200 ára afmælis
Reykjavikurborgar í Borgarleik-
húsinu.
Sýningin, sem stendur fram til
31. ágúst verður framlengd um eina
viku ef aðsókn gefur tilefni til. Eft-
ir það verður hluti sýningarinnar
tekinn niður en fræðandi efni látið
standa eftir og skólabörnum gefinn
kostur á að koma í skipulögðum
ferðum á vegum skólanna fram til
1. október, að sögn Óskars Jó-
hannssonar rekstrarstjóra sýning-
arinnar.
Afmælishátíð
Reykjavíkur:
„Ovenju
litlar
skemmdir
á gróðri“
„MÉR HEFUR aldrei liðið bet-
ur,“ sagði Theódór Halldórsson
yfirverkstjóri hjá garðyrkjudeild
Reykjavíkurborgar, en hann hef-
ur umsjón með skrúðgörðum
borgarinnar.
Að sögn Theódórs em skemmd-
irnar óvanalega litlar á gróðrinum,
miðað við það hversu hátíðin var
umfangsmikil og miðað við það sem
almennt gerist á slíkum hátíðis-
dögum.
„Umgengnin á 17. júní var mjög
slæm og gróðurskemmdir miklar,
en núna eru skemmdirnar óveruleg-
ar.“ Að sögn Theódórs hjálpast
þarna margt að; þurrt veður, sér-
lega góð umgengni og gott skipulag
hátíðahaldanna.
Þijú skip
seldu af la
erlendis
ÞRJÚ íslensk fiskiskip seldu afla
erlendis á mánudag og þriðju-
dag. Bersi ÍS seldi í Grimsby á
mánudag 161 tonn á rúmar 7,2
milljpnir, meðalverð 44,75 krón-
ur. Óttó N. Þorláksson RE seldi
í Hull á mánudag og þriðjudag
samtals 230 tonn á um 8,6 millj-
ónir, meðalverð 37,10, sem er
mjög slakt. Þá seldi Snorri
Sturluson RE í Bremerhaven á
mánudag og þriðjudag samtals
223 tonn á rúmar 9,5 milljónir á
meðalverði 42,83 krónur.
Þú svalar lestrarþörf dagsins
ásídum Moggans! x
fœrra
GARÐURINN
AÐALSTFÆTI9 12234