Morgunblaðið - 30.08.1986, Side 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. ÁGÚST 1986
Jóhannes Páll II páfi um hinn vonda sjálfan:
Satan er alheims-
lygari og morðingi
Vatikanið. Eftir Samuel Koo, blaðamann AP- frettastofunnar.
SATAN, hinn vondi sjálfur, sem fölnað hefur í meðvitund krist-
inna manna undanfarna áratugi, fékk fyrir ferðina í sumar hjá
Jóhannesi Páli páfa II, er hann predikaði yfir pílagrímum. I
upphafi fjallaði páfi um engla og endaði síðan á djöflinum. „Sat-
an er alheimslygari og morðingi," sagði páfinn meðál annars.
Þetta er í fyrsta sinn í 15 ár sem páfi gerir Satan að umtalsefni
opinberlega.
Páfí dró ímynd Satans sterkum
dráttum í vitund áheyrenda sinna
og sótti líkingar til Biblíunnar.
Satan er „hinn illi“, „óhreinn
andi“, „freistari“ og „And-Krist-
ur“. Þá líkti hann honum við ljón,
dreka og nöðru. Páfí sagði að
Djöfullinn væri ennþá athafna-
samur í mannlífínu, hann „freist-
aði manna til illra verka . . . og
sneri þeim brott frá lögmáli Drott-
ins“. Itölsk blöð og tímarit gripu
snarlega tækifærið og birtu frétt-
ir og myndir af páfa, þar sem
hann barðist við risavaxna skepnu
með hom og hala vopnaða
þríforki.
Skýring páfa á tilveru og merk-
ingu Satans kom í lok sex vikna
fræðslu um Drottin, skapara
„allra hluta, séðra og óséðra", þar
með taldra engla og var skýring
hans á líkum nótum og hefð-
bundin skýring kirkjunnar. Kirkj-
an kennir að Satan sé fallinn
engill, genginn á vald hins illa.
Afl sem á í stöðugri baráttu við
hið góða og sem reynir að snúa
siðferðiskennd manna sér í vil.
Predikanir páfa um þetta efni
komust í fréttimar einkum vegna
þess að kenning kaþólsku kirkj-
unnar um Satan hefur mikið til
farið úr tísku undanfamar tvær
aldir. Margir guðfræðingar nú til
dags líta á frásagnir Biblíunnar
um Satan sem líkingamál til þess
að skýra nærveru hins illa í manni
og heimi. Skoðanakannanir, sem
teknar hafa verið í nokkmm evr-
ópskum ríkjum undanfarin 15 ár,
sýna að flestir þeir sem játa ka-
þólska trú, taka ekki kenninguna
um djöfulinn alvarlega.
Páfí sagði að hann vildi búa
trúaða undir heimsendi, eins og
sagt er fyrir um í Biblíunni og
„skýra hina sönnu trú kirkjunnar
gegn þeim sem umsnúa henni,
annað hvort með því að ýkja vald
Djöfulsins úr hófí eða með því að
neita eða draga úr hans illa valdi.
Séra Corrado Balducci, þekktur
sérfræðingur Vatikansins í djöfla-
fræðum, sagði að ræður páfa hafí
verið til þess ætlaðar að setja
kenningu kirkjunnar um Satan í
rétt ljós. Framsókn guðleysis í
nútímanum mætti rekja til þess
að vald hins illa væri vanmetið.
Páfí sagði að Satan „hefði hæfí-
leika til þess að villa um fyrir
fólki og fá það til þess að neita
tilvist hans í nafni skynsemis-
Jóhannes Páll páfi II
hyggju og allrar annarrar heim-
speki, sem leitar allra leiða til
þess að forðast að viðurkenna
verk hans“.
Balducci sagði einnig að kristin
kirkja kynni að hafa lagt of mikla
áherslu á tilvem Djöfulsins fram
á 18. öldina og þannig gefíð for-
lagatrú undir fótinn, jafnvel meðal
kristinna manna. „En í nútíman-
um hefur kenningin um Satan
ekki lengur fylgi og því þarf að
koma á jafnvægi á ný,“ sagði
hann.
Ónefndur embættismaður í
Vatikaninu sagði að sér sýndist
að páfanum hefði gengið tvennt
til með því að vekja upp þessa
umræðu. Annars vegar að kaþól-
ikkar gleymdu ekki tilvem Satans
og hins vegar það að kirkjan
stemmdi stigu við djöfladýrkun
og særingum með því að láta af-
stöðu sína skýrt í ljósi. Færst
hefur í vöxt að almenningur reyni
að særa út djöfla og kirkjuyfír-
völd hafa lagt áherslu á að
særingar ættu að vera undir stjóm
þeirra.
Jón Páll lœtur sér
ekki nœgja
1TONN
1 slncr bisvtiv nvivi iiim
Þing Jafnaðarmannaflokksins í
Niirnberg:
Brandt endurkjör-
inn formaður
Nttrnberg, AP.
WILLY Brandt, fyrrum kanslari
Vestur-Þýskalands, var endur-
kjörinn formaður Jafnaðar-
mannaflokksins með yfirgnæf-
andi meirihluta atkvæða í gær.
Hann hefur verið formaður
flokksins undanfarin 22 ár. Ekk-
ert mótframboð kom fram og var
Brandt kjörinn með 398 atkvæð-
um gegn 28, en fjórir sátu hjá.
Brandt, sem er nú 72 ára að
aldri, hefur verið leiðtogi jafnaðar-
manna lengur en nokkur annar á
þessari öld. Aðeins August Bebel,
sem var formaður flokksins í fjóra
áratugi á síðustu öld, hefur verið
lengur formaður flokksins. Brandt
hlaut friðarverðlaun Nóbels árið
1971 fyrir slökunar- og afvopnun-
arstefnu sína, en þá gegndi hann
embætti kanslara.
Flokksþingið í Niimberg endur-
kaus einnig báða varaformenn
flokksins, Johannes Rau, sem fyrr
í vikunni var kjörinn kanslaraefni
flokksins í þingkosningunum í upp-
hafí næsta árs, og Hans-Jochen
Vogel, sem leiðir flokkinn á þinginu
í Bonn.
Þingið hefur samþykkt stefnu-
yfírlýsingu, þar sem stefna Ronalds
Reagan, forseta Bandaríkjanna, er
harðlega gagnrýnd. Meðal annars
er árás Bandaríkjanna á Líbýu 14.
apríl í vor fordæmd, sem og stuðn-
ingur þeirra við skæruliða, sem
beijast gegn stjómvöldum í Nic-
aragua, geimvamaráætlunin og
staðsetning meðaldrægra eldflauga
í Evrópu.
Þeir sem til máls tóku á þinginu,
skoruðu á Bandaríkjamenn að end-
urtaka ekki árásina á Líbýu, en um
þann möguleika hefur verið rætt í
Willy Brandt
dagblöðum undanfarið.
Jafnaðarmenn eru fylgjandi
áframhaldandi þátttöku Vestur-
Þýskalands í Atlantshafsbandalag-
inu. Þeir vilja bann við tilraunum
með kjamorkuvopn og skoruðu á
Bandaríkjamenn að taka jákvætt í
tillögur Mikhails S. Gorbachev, leið-
toga Sovétríkjanna, um afvopnun.
ENSKA OG SPÆNSKA OG ÞÝSKA OG FRANSKA
hefJ'ast^V
'-'O
Innritun kl. 9-20 ^
alla daga líkaum helgina!4
^Æskuskólinn "
12 vikna námskeið|
) Viðskiptaskólinn (
, 10 vikna námskeið.
Enskuskólinn
7 vikna námskeið
■
Evrópuskólinn
7 vikna námskeið.
Túngata 5
25330
Erlendir Sanngjarnt
kennarar. verð.
Oll námsgögn
innifalin.
OG ITALSKA OG ISLENSKA OG MEIRI ENSKA