Morgunblaðið - 30.08.1986, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. ÁGÚST 1986
31
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
Borðbúnaðurtil leigu
Leigjum út alls konar borðbúnað.
Borðbúnaðarleigan
simi 43477.
Dyrasímaþjónusta
Gestur rafvirkjam. — S. 19637.
Listmálunarhönnun
Myndræn skilta- og plakathönn-
un. Uppl. í síma 17764 á kvöldin.
Karvel Granz, listmálari.
Innrömmun Tómasar
Hverfisgötu 43, s. 18288.
FERÐAFELAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU 3
SÍMAR11798 og 19533.
Dagsgerðir sunnu-
daginn 31. ágúst:
1) Kl. 8.00 Þórsmörk — dags-
ferð á kr. 800. Ath. Dvöl hjá
Ferðafélaginu í Þórsmörk er allt-
af ánægjuleg og góð hvíld.
2) Kl. 10.00 Botnsdalur —
Svartihryggur — Skorradalur
(gömul þjóðleið). Skemmtiieg
gönguleið úr Botnsdal i Skorra-
dal, gengið austan Litlu Botnsár
og yfir Svartahrygg að Efstabæ
i Skorradal. Verð kr. 800. Farar-
stjóri: Guðmundur Pétursson.
3) Kl. 10.00 Sveppaferð f
Skorradal. Hafið meö ilát (ekki
plastpoka). Verð kr. 800. Farar-
stjóri: Anna Guðmundsdóttir.
4) Kl. 13.00 Innstidalur —
Hengladalaá. Verð kr. 400.
Ath.: Vegna lélegrar berja-
sprettu verður engin berjaferð
i ár.
Brottför frá Umferðarmiðstöð-
inni, austanmegin. Farmiðar við
bíl. Fritt fyrir börn i fylgd fullorð-
inna.
Ferðafélag íslands.
UTIVISTARFERÐIR
Sunnudagur 31. ágúst.
Kl. 8.00 Þórsmörk — Goðaland.
Léttar skoðunar- og gönguferð-
ir. Verð 800.- kr.
Kl. 10.30 Hengill — Nesjavellir.
Gengið á Hengil og i dalina fal-
legu norðan hans. Verð 600.-
kr. Fararstjóri: Páll Ólafsson.
Kl. 13.00 Grafningur — berja-
ferð. Létt ganga og berjatínsla
sunnan Þingvallavatns. Verö
600.- kr. Fararstjóri: Þorleifur
Guðmundsson.
Fríttf. börn m. fullorönum. Brott-
för frá BSÍ, bensinsölu.
Sjáumst!
Lltivist.
Krossinn
Ain'ilnvkkii ‘2 — k()|>.i\o^i
Samkomur á laugardögum kl.
20.30. Samkomur á sunnudög-
um kl. 16.30. Biblíulestur á
þriðjudögum kl. 20.30.
Allir velkomnir.
ídag kl. 14.00-17.00 eropiðhús
í Þribúðum félagsmiðstöð Sam-
hjálpar Hverfisgötu 42. Þar
hittumst við yfir.heitu kaffi og
spjöllum um veðrið og tilveruna.
Kl 15.30 syngjum við saman
nokkra kóra. Littu inn og taktu
endilega einhvern með þér. Allir
eru hjartanlega velkomnir.
Samhjálp
Áskriftarsiimnn er 83033
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Við viljum ráða
Vélvirkja, plötusmið og rafsuðumenn.
Við bjóðum góðar tekjur og fjölbreytni í verk-
efnum. Upplýsingar í síma 50145.
Vélsmiðja Hafnarfjarðar hf.
Safnvörð vantar nú þegar að Bókasafni Eyr-
arsveitar, Grundarfirði. Jafnframt að skóla-
safni grunnskólans. Söfnin eru til húsa í
grunnskólanum. Um er að ræða fullt starf
við bæði söfnin.
Upplýsingar gefa Gunnar Kristjánsson skóla-
stjóri sími 93-8802 og Helga Gunnarsdóttir
sími 93-8815.
Bókasafnsnefnd.
Byggingavinna
Starfskraft vantar við byggingavinnu að
Rauðarárstíg 35, áður ölgerð Egils Skalla-
grímssonar. Upplýsingar í síma 53324 og á
byggingastað.
Afgreiðslustúlka
óskast í bakarí í Austurbænum. Upplýsingar
í síma 12590 frá 10.00-16.00.
HAFNARHREPPUR
Höfn f Hornafirði
Á Höfn eru lausar eflirtaldar stöður:
Hafnar- og Heppuskólar
☆ Almenn kennsla í 0-6. bekk.
☆ íþróttakennsla í 0-9. bekk.
☆ Stuðningskennsla 0-9. bekk.
☆ Enskukennsla í 7-9. bekk.
☆ Félagsráðgjafi.
Leikskóli
Fóstrur! Kannið málið. Ýmis hlunnindi.
Upplýsingar gefa skólastjórar í síma 97-8321
eða 97-8148.
1 15 80
Frá Holtaskóla
Keflavík
Við Holtaskóla í Keflavík er laus ein kennara-
staða í líffræði og eðlisfræði. Skólinn er
einsetinn og öll vinnuaðstaða fyrir kennara
og nemendur er mjög góð.
Upplýsingar gefa Sigurður E. Þorkelsson
skólastjóri í síma 92-1135 eða hs. 92-2597
og Ingvar Guðmundsson yfirkennari í síma
92-1045 eða hs. 92-1602.
Skólastjóri.
Sendibflar
Vegna mjög mikillar vinnu getum við enn
bætt við nokkrum greiðabílum.
Upplýsingar veitir stöðvarstjóri í Hafnar-
stræti 2.
Lagermaður
Oskum að ráða áreiðanlegan mann til lager-
starfa. Framtíðarstarf.
©
valdfmar Císlason sf
Umboðs- og heildverslun.
Skeifan 3. Símar 31385 — 30655.
e
FJOLBRAUTASKOLINN VIÐ ARMULA
ARMULA 10—12. 105 R. SIMI 84022
Hagfræðikennara
vantar
nú þegar í heila stöðu að Fjölbrautaskólanum
við Ármúla.
Upplýsingar í síma 84022 eða 43867.
Skólameistari.
mmm
raðauglýsingar
raðauglýsingar
raðauglýsingar
Heytil sölu
Hey til sölu 2,70 kr. kílóið. Bundið á velli.
Upplýsingar í síma 95-1579.
Guðmundur Axelsson
Klausturhólar — sími 19250
Listmunauppboð nr. 135 — bækur
Sunnudaginn 31. ágúst 1986 kl. 14.00 í
Templarahöllinni, Eiríksgötu 5.
Bækurnar verða til sýnis á Laugavegi 8 laug-
ardaginn 30. ágúst kl. 14.00-18.00.
Klausturhólar.
Endurnýjun á þaki
Tilboð óskast í endurnýjun á þaki á Ránar-
götu 2, Rvík. (ca 100 fm). Upplýsingar í síma
610672 eftir kl. 18.00.
Verslunarhúsnæði
Til leigu á góðum stað við Hverfisgötu er
verslunarhúsnæði ca 200 fm, lofthæð 3,80
m. Húsnæðið getur verið laust nú þegar.
Upplýsingar í síma 24321 á skrifstofutíma
og 23989 eftir kl. 19.00.
Frá Öskjuhlíðarskóla
Föstudaginn 5. september eiga nemendur
skólans að mæta sem hér segir:
Nemendur árdegisdeilda og starfsdeilda
(eldri nemendur) kl. 11.00.
Nemendur síðdegisdeilda (yngri nemendur)
kl. 13.00.
Nýir nemendur verða boðaðir símleiðis.
Afhentar verða stundaskrár og kennsla hefst
samkvæmt þeim þriöjudaginn 9. september
og þá hefst einnig akstur skólabíla.
Almennur starfsmannafundur verður í skól-
anum mánudaginn 1. september kt. 13.00.
Skólastjórí