Morgunblaðið - 05.10.1986, Side 2

Morgunblaðið - 05.10.1986, Side 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. OKTÓBER 1986 Páll páfi heimsækir Frakkland Lyon, AP. JÓHANNES Páll páfi annar kom í gær í fjögurra daga heimsókn til Frakklands í þeirri von að geta eflt guðstrú landsmanna. Heimsókn páfa kemur í kjölfar hryðjuverka, sem sett hafa óhug að Frökkum. Francois Mitterrand, forseti, tók á móti páfa á Satolas-flugvellinum í Lyon og að lokinni athöfn rædd- ust þeir við undir fjögur augu. Páfí sagðist kominn til Frakk- lands í nafni friðar og vináttu, ekki einvörðungu vegna kaþólskra Frakka heldur þjóðarinnar allrar. Kasparov nær öruggur með titilinn Leningrad, AP. Garri Kasparov vann Karpov í 22. skákinni í einvíginu um heimsmeistaratitilinn i gær og hefur þvi nánast tryggt sér sigur í einvíginu. Kasparov þarf eitt jafntefli úr tveimur skákum, sem eftir eru, til að halda heimsmeistaratitilinum, þvf hann hefur IU/2 vinning gegn IOV2. Karpov þarf að vinna báðar til að endurheimta titilinn. Morgunblaðið/Ámi Sœberg Sérfræðingar stórveldanna kanna aðstæður að Höfða Talið er fullvist að Höfði, móttökuhús Reykjavíkurborgar, verði fyrir valinu sem sá staður, þar sem þeir Ronald Reagan og Mikh- aU Gorbachev hittast á einkafundum á iaugardag og sunnudag. Á hinn bóginn er ráðgert, að formiegir fundir með sendinefndum stórveldanna verði á Hótel Sögu. Á myndinni til vinstri eru örygg- isverðir og sérfræðingar Hvita hússins i Washington að koma frá því að kynna sér húsakynnin i Höfða, og i sömu erindagjörðum eru sovésku sérfræðingamir á myndinni til hægri. Ekki enn þurft að beita nýju reglunum; Þeim verður ekki beitt nema í ýtrustu neyð -segir Karl Jóhannsson hjá Útlendingaeftirlitinu Norska feijan Bolette kemur til landsins á þriðjudag. Leiðtogafundurinn í Reykjavík: Fljótandi hótel leigt frá Noregi EIMSKIPAFÉLAG íslands hefur i samvinnu við Ferðaskrifstofu ríkisins og Ferðamálaráð leigt norsku ferjuna Bolette til að mæta aukinni gistiþörf vegna fundar leiðtoga stórveldanna í Reykjavík. Feijan rúmar um 400 manns i gistingu og kemur hing- að til Iands um hádegi á þriðju- dag. Þorkell Sigurlaugsson, fram- kvæmdastjóri Eimskips, sagði í samtali við Morgunblaðið að leig- utíminn væri ein vika og kostnaður vegna leigunnar um það bil 10 millj- ónar króna. „Ferjan verður staðsett í gömlu höfninni og mun að ein- hveiju leyti leysa þann vanda sem upp er kominn vegna skorts á gisti- rými í Reykjavík og nágrenni", sagði Þorkell. Hann sagði að vænt- anlega yrðu það fyrst og fremst fféttamenn og flölmiðlafólk, sem kæmu til með að gista í ferjunni, en þar eru svefnklefar, sem taka um 400 manns í allt. Gisting fyrir tvo kostar um 10 þúsund íslenskar krónur. EKKI hefur komið til þess enn að Útlendingaeftirlitið hafi þurft að beita nýju reglunum um að snúa erlendum ferðamönnum frá, sem ekki geta sýnt fram á að þeir hafi tryggt sér húsnæði í Reykjavík. Þetta staðfesti Karl Jóhannsson hjá Útlendingaeftir- litinu í gær, og sagði að aðeins yrði gripið til þessara fyrirmæla í ýtrustu neyð. Gilda þessar regl- ur frá 3. til 13. þessa mánaðar. Karl sagði að ef þörf krefði yrði fólki frekar bent á að fara til staða, þar sem nægt gistiiými væri, svo sem Húsavíkur, Akureyrar, Homa- fjarðar eða Egilsstaða. Þetta fólk væri búið að kaupa sér dýra ferð til íslands, og því væri reynt að aðstoða það, svo það tapaði ekki stórfé á þessu. Allir afgreiðslustað- ir flugfélaganna úti í heimi væru með þessar reglur, og gætu varað fólk við, ef það væri á leiðinni til Reykjavíkur, án þess að hafa stað- festa gistipöntun. Reglumar eru svohljóðandi: „Er- Þrjár milljónir kr til Rannsóknasjóðs HI í TILEFNI 75 ára afmælis Há- skóla íslands hefur ríkisstjóm- in samþykkt að gera ráðstafan- ir til að efla Rannsóknasjóð háskólans með þriggja milljón króna viðbótar fjárveitingu á fjárlögum þessa árs og markað þá stefnu að fjárveitingar til sjóðsins verði hækkaðar veru- lega á næstu fjórum árum. Sverrir Hermannsson, mennta- málaráðherra, tilkynnti háskóla- rektor þessa ráðstöfun í ávarpi sínu í Háskólabíói í gærdag á hátíðardagskrá sem halain var í tilefni afmælisins. Fjárveiting til starfsemi Rann- sóknasjóðs háskólans á þessu ári var 5 milljónir króna en verður nú 8 milljónir. Þá er ráðgert að fjárveiting næsta árs til sjóðsins tvöfaldist og verði því 16 milljónir króna og að á næstu fjórum árum verði flárveitingin hækkuð í 20 milljónir króna miðað við verðlag í október á þessu ári. lendir farþegar sem ætla sér að koma til íslands á tímabilinu 3. til 13. október 1986 þurfa að hafa í höndum staðfestingu, sem flugvall- arstarfsmenn meta gilda, um að þeir hafí tryggt sér húsnæði á ís- landi. Þessi kvöð gildir ekki um fréttamenn, sem sækja ætla leið- togafundinn í Reykjavík.“ Borgarspítalinn: Aukavakt vegna leiðtogafundar BORGARSPÍTALINN hefur að ósk heilbrigðisráðuneytisins skipulagt aukavaktir vegna komu þjóðarleiðtoganna til Iandsins, að sögn Jóhanns Pálma- sonar framkvæmdasljóra spítal- ans. „Á Borgarspítalanum verðum við reiðubúin að sinna öllum óvæntum uppákomum," sagði Jóhann. Skurð- læknar og hjúkrunarfólk verður á bundnum vöktum og skurðstofa höfð til reiðu allan sólarhringinn. Veitt verður neyðarþjónusta fyrir fylgdarlið leiðtoganna og frétta- menn. Sérstakir beinir símar verða settir upp á slysadeild þar sem enskumælandi hjúkrunarfólk svar- ar spumingum um læknisfræðileg efni allan sólarhringinn. Þessi þjón- usta hefst n.k. mánudag, 6. októb- er. Þar verða einnig gefnar upplýsingar um tannlæknaþjónustu og opnunartíma lyfjaverslana. Símanúmmerin eru: 69-67-90 og 68-66-49. Þá verða neyðarbifreiðir til taks allan sólarhringinn frá og með fímmtudegi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.