Morgunblaðið - 05.10.1986, Qupperneq 5
-
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. OKTÓBER 1986
5
Bandaríkjamenn um
fríverzlunarsamning
við Islendinga:
Ekki til
viðræðna
fyrr en
árið 1988
Washington, frá Jóni Ásgeiri Sigurðssyni,
fréttaritara Morgunblaðsins.
BANDARÍKJAMENN eru ekki
reiðubúnir til viðræðna um
fríverzlunarsanming við íslend-
inga, hvorki á þessu ári né þvi
næsta. Þetta kom fram í ávarpi
Þórhalls Ásgeirssonar, ráðuneyt-
isstjóra í viðskiptaráðuneytinu á
ráðstefnu íslenzk-ameríska
verzlunarráðsins í Washington
s.l. föstudag.
Þórhallur skýrði fréttaritara
Morgunblaðsins frá því að síðastlið-
inn þriðjudag hefðu hann og Hans
G. Andersen, sendiherra, átt við-
ræður við Michael B. Smith, sendi-
herra og talsmann viðskiptafulltrúa
Bandaríkjaforseta. Þar hefði komið
fram að vegna anna væru Banda-
ríkjamenn ekki reiðubúnir til
viðræðna um fríverzlunarsamning
við Islendinga fyrr en í fyrsta lagi
1988.
Ennfremur tók Michael B. Smith
fram að hugsanlegur fríverzlunar-
samningur verði að ná til allra
vörutegunda og allrar þjónustu.
„Þar gæti skapast vandamál, til
dæmis í sambandi við landbúnaðar-
afurðir, “ sagði Þórhallur Ásgeirs-
son.
—GuðmunduL-
H. Garðarsson
Kosningaskrifstofa stuðnings-
manna Guðmundar H. Garðars-
sonar vegna prófkjörs Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjavik, hefur verið
opnuð á jarðhæð Húss verslunar-
innar, gengið inn Miklubrautar-
megin.
Skrifstofan er opin frá kl. 9.00—22.00
og símareru 68 18 41 og 68 18 45.
Allir stuðningsmenn Guðmundar
eru hvattir til að Irta inn.
GUÐMUND A ÞING
Sjálfstæðisfólk!
Við stuðningsmenn Jóns Magnússonar höfum
opnað kosningaskrifstofu á homi Vitastígs og
Skúlagötu.
Opid 13.00 tU 21.00
daglega.
Simi 16320 og 27182.
Stuðningsmenn
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins
í Reykjavík 18. okt.
Ragnhildur Helgadóttír
heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra
leitar stuðnings í 2. sæti listans.
Skrifstofa í Kjörgarði, niðri, Laugavegi 59.
Sími 16637 og 19344.
Opiðfrá kl. 2.00, eftir verslunartíma er gengið inn Hverfisgötumegin.
Flokksþing
Alþýðuflokksins:
Stjórn íhalds
og framsókn-
ar versta hlut-
skipti landsins
- segir í drögum að
stj órnmálaályktun
Alþýðuflokksins
FLOKKSÞINGI Alþýðuflokks-
ins, undir yfirskriftinni „ísland
fyrir alla“ var fram haldið á
Hótel Örk i gær.
Flutt var skýrsla kjörbréfanefnd-
ar og framsaga undirbúnigsnefnda
um nýtt skattakerfi, húsnæðislána-
kerfi og atvinnustefnu, einn lífeyris-
sjóð fyrir alla landsmenn og
samræmda launastefnu. Eihnig
fiutti Jón Baldvin Hannibalsson
formaður Alþýðuflokksins fram-
sögu um stjómmálaályktun en f
drögum að henni segir m.a.: „Fer-
tugasta og þriðja flokksþing
Alþýðuflokksins lýsir þvf yfir að það
hljóti að vera megin verkefni
Alþýðuflokksins og verkalýðshreyf-
ingar að tryggja launafólki rétt-
mætan hlut í afrakstri þjóðarbúsins
í góðæri undangenginna missera.
Forsenda þess að svo megi verða
er að núverandi ríkisstjóm fari frá
en við taki stjóm þar sem Alþýðu-
fiokkurinn hafi úrslitaáhrif." Síðar
segir: „Helmingaskiptastjómir
íhalds og framsóknar em versta
hlutskipti sem þjóðin getur kosið
sér.“ Þá tóku við almennar umræð-
ur og kjör formanns, varaformanns,
ritara, gjaldkera og formanns fram-
kvæmdastjómar
í dag hefst þingið með kosningu
framkvæmdastjómar og síðan verð-
ur framsaga starfshópa þingsins.
Ályktanir verða afgreiddar og kosið
í flokksstjóm og verkalýðsmála-
nefiid. Þinginu lýkur síðdegis.
H AMC Jeep AMC Jeep VIAMC Jeep ri AMC Jeep F1AMC Jeep FIAMC
1987
Þar sem við fengum ekki þá afsláttarbíla af árgerð
1985 og 1986 sem við áttum
von á núna í haust, þá hafa
verksmiðjurnar ákveðið
að við fáum
örfáa vel útbúna
Jeep Cherokee
Pioneer, árgerð
1987 á einstöku
verði
Kr. 1.050.000,
ri AMC Jeep
□ 2,51 bensínvél,
□ 4gíra,
□ Aflbremsur
□ Vökvastýri
□ Veltistýri
□ Sportstýrishjól
□ Litaðgler
□ Teppalagður □ Útvarp
□ Tauklaeddur □ Stokkur á milli sæta
□ Krómhringir á felgum □ Stólar (bucket seats)
□ Þurrka á afturrúðu □ Opnanlegirhliðargluggar
□ Rúðusprauta að aftan og fleira
□ Klukka (digital)
□ Vindlakveikjari
Aðalsmerki
EGILL VILHJÁLMSSON HF
Smiðjuvegi 4, Kópavogi. Símar 77200 - 77202