Morgunblaðið - 05.10.1986, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. OKTÓBER 1986
IQðPlMWflli
FYRIR ÞIE OG/SNILUNGANA!
«9swm«n
Mim
Nú er kominn tfmi
til að bregða undir
sig betri fœtinum
og skreppa á skíði
til Mayrhofen
í Austurríki.
Á þessum skemmti-
lega skíðastað eru
brekkur við allra
hœfi, frábœrt
gönguskíðasvœði
og víðfrœgir skfða-
skólar í öllum
greinum skíða-
íþrótta. Veitingahús
eru um allar brekkur
þar sem notalegt
er að setjast niður
með ölkollu og slappa af fyrir
nœsta áfanga. Á ölstofum þorpsins
safnast fólk saman eftir góðan dag
á skíðum, þregður sér á diskótek
eða slappar af
á glœsilegum gististað.
Allt þetta og meira
til kostar
ekki svo mikið:
Tveggja vikna
ferð með
gistingu og
morgunmat á
Rauchenwalder-
hof, sem er
sérlega fallegur
gististaður í ekta
tírólskum stíl,
kostar
ekki nema
kr. 24.435
á mann,
sé miðað við tvo í herbergi.
Allar nánari upplýsingar fást á
söluskrifstofum Flugleiða, hjá umboðs
mönnum og ferðaskrifstofum.
Upplýsingasími 25100
FLUGLEIDIR
Úr einu í annað
Þrútin augn
Ef þú vaknar oft á morgnana
með þrútin augu og það stafar
ekki af neinum sérstökum heil-
brigðisástæðum, gæti ástæðan
verið röng notkun næturkrems. Ef
til vill hefur þú borið á þig of mik-
ið krem eða þá ekki strokið nógu
vel úr því umhverfis augun. Sé svo
getur kremið smogið inn í augun
þegar það linast. Það er ekki
hættulegt en það getur valdið roða
eða þrota. Leifar af augnháralit og
augnskuggum geta haft sömu
áhrif. Þá er bezt að nota augn-
hára-hreinsi til að ná burt öllum
litnum. Ekki er heppilegt að nota
oliur í þessum tilgangi. Þær leysa
að vísu litinn upp, en fítan getur
myndað poka undir augunum.
Fitugurtoppur
Allar sem eru með ennistoppa
vita að hárið safnar þar í sig meiri
fitu en annars staðar á höfðinu.
Ennistoppurinn og húðin fara illa
saman. Hárið safnar fljótt í sig fitu
og við það bætist fítan úr húðinni
og andlitskremum. Auk þess verður
húðin fyrir ertingu frá hárinu. Sér-
lega er þetta slæmt ef húðin er
óhrein, því ennistoppurinn lokar úti
bæði ijós og loft, sem hafa góð
áhrif á húðina. Það er þess vegna
ágætis hugmynd að greiða toppinn
frá enninu þegar þess er kostur
úti við. Þegar þið fáið ykkur
göngutúr eða þið hjólið eða bara
sitjið úti undir beru lofti, er upp-
lagt að greiða toppinn frá.
Ef mikil fita safnast i toppinn
má gjaman þvo hann sér svo ekki
sé verið að þvo hárið allt of oft.
Það má gera með því að setja
sjampó í þvottapoka og nudda topp-
inn með honum og skola svo hárið
með blautum klút eða svampi.
Allt er nú til!
Konur búsettar í bænum Dyers-
burg í Tennessee-ríki í Banda-
ríkjunum gerast brotlegar við lögin
ef þær hringja í karlmann til að
ákveða stefnumót við hann.
Þetta er samkvæmt einu hinna
mörgu skringilegu lagaákvæða í
Bandaríkjunum sem mismuna kon-
um. Nokkur ruglingur hefur lengi
rfkt í lagasetningu í Bandaríkjun-
um, því það er ekki nóg með að
hvert ríkjanna 50 getur sett sín
eigin lög, sem einungis gilda þar,
heldur geta bæjarfélögin það einn-
ig. Langfiest þeirra lagaákvæða
sem mismuna konum hafa löngu
verið numin úr gildi og samkvæmt
landslögum er mismunun kynjanna
ólögleg. Engu að síður eru enn til
á pappímum lagaákvæði sem mis-
muna konum þótt aldrei sé farið
eftir þeim. í bandarísku kvenna-
timariti var nýlega getið nokkurra
þessara lagaákvæða, eins og til
dæmis þeirra sem hér fara á eftir.
í bænum Reading í Pennsylvania
mega konur ekki hengja nærföt sín
út á snúmr nema þær tjaldi fyrir
snúmmar svo þvotturinn sjáist
ekki.
í Providence í Rhode Island
mega konur ekki klæðast neinum
fötum sem em gegnsæ, en undir
það flokkast einnig nælonsokkar.
í Owensboro í Kentucky mega
konur ekki kaupa sér nýjan hatt
nema eiginmaðurinn sé ánægður
með hann.
í Iowa-ríki er það brot á lögum
ef kona gengur í lífstykki og lög-
gjafinn hefur heimild til að koma
sér upp lífstykkja-eftirlitssveit til
að fylgjast með því að konur fari
eftir lagabókstaftium með því að
þukla á þeim.
Ef kona í Michigan-ríki yfirgefur
mann sinn er honum heimilt að
elta hana uppi á götum úti og rífa
af henni fötin af því þau em „hans
eign".
í bænum Oxford í Ohio er konum
bannað að afklæðast frammi fyrir
ljósmynd af karlmanni. Og í Suð-
ur-Dakota-ríki er eldri konum
bannað að nema staðar úti á götu
til að ræða við yngri karlmenn.
Svo mörg vom þau orð!