Morgunblaðið - 05.10.1986, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. OKTÓBER 1986
33
vegna þeirra væntinga sem bundn-
ar eru við vinnuaðferðir þeirra. En
ólíkir hópar hafa ólík áhugamál.
Og þegar kvennahrejrfingin er skoð-
uð aftur í tímann er greinilegt að
það hefur alltaf verið til bæði borg-
araleg kvennahreyfing og sósíalísk
kvennahreyfing. Þær hafa afar
sjaldan getað unnið saman. En þó
getur maður hugsað sér að þær
stefni á einhvem hátt að sama
marki, þótt þær fari ólíkar leiðir.
Ekki nóg' sem nægir___________
Ég sá það haft eftir þér í viðtali
fyrir nokkru að nú yrði karlmaður-
inn að breytast. Hvað áttu við með
þvf?
1 Ju sjáðu til. Nú skortir ekki leng-
ur réttindi til handa konum. Við
þurfum ekki fleiri réttindi. En karl-
menn þurfa fleiri skyldur. Ég álít
að jafnrétti í heimilisvinnu leiði til
jafnréttis á vinnumarkaðinum. En
jafnrétti á vinnumarkaðinum leiðir
ekki til jafnréttis í heimilisstörfum,
heldur eykur aðeins álag konunnar.
Við stefnum í rétta átt. Þú veist
að foreldrar hér á landi eiga til
dæmis rétt á fríi á launum vegna
bama og þeim rétti er skipt á milli
foreldra. Það er ekki lengur þannig
að eingöngu móðirin eigi rétt á
fæðingarorlofi. Þau eiga rétt á að
skipta því með sér. Ef karlmaður
ákveður að taka sitt pabbaorlof er
atvinnurekandinn skyldugur til að
veita honum það. En þetta finnst
mér ekki nægja, skilurðu. Mér
finnst það ætti að skylda feður til
að taka sitt orlof. Þar nægir ekki
rétturinn til að taka orlof, svona
ef þá langar mikið til. Hugsaðu nú
aðeins um hvað þetta táknar.
Þú getur ímyndað þér ungam
mann og unga konu, sem sækja
um sama starf — hjá sama fyrir-
tæki. Þau em bæði tekin í viðtal.
Þá spyr atvinnurekandinn konuna
hvort hún geri ráð fyrir að eignast
böm. Já, svarar hún. Þá hrakkar
atvinnurekandinn ennið. Síðan
ræður hann karlmanninn. Það
breytir nefnilega engu þótt hann
eignist böm. En eignist konan
bam ... jahá, þá veit vinnuveitand-
inn ósköp vel að hún þarf að vera
heima, bamið getur veikst og þar
fram eftir götunum. En meðan
pabbaleyfið er ekki skylda, aðeins
réttur föðurins, er hætt við að það
sé notað gegn honum, notfæri hann
sér rétt sinn af fijálsum vilja. Hann
fær jafnvel á sig stimpil sem
ótraustur vinnukraftur, sem láti
böm og heimili ganga fyrir vinnu
og jafnvel frama, sem hann annars
ætti kost á. Það er því ekkert skrýt-
ið þótt eins margir og raun ber vitni
veigri sér við að taka pabbafrí, í
dag. Ég held það séu aðeins 14%
sem notfæra sér það. En væri það
skylda yrði afstaðan öll önnur. Það
er augljóst.
Að sjá í gegnum
það sem gerist
Að lokum Gunhild, hvemig get-
um við notfært okkur söguna til
að læra af?
Það er auðveldara að sjá hvað
er að gerast í dag ef við vitum
hvað gerðist í gær. Ef maður skoðar
ákveðið tímabil og lítur á valdastöð-
una milli kynja eða milli ákveðinna
hópa í samfélaginu sér maður
nokkuð vel hvemig valdatafl lítur
út. Að lesa söguna getur auðveldað
manni að sjá undir yfirborðið. Og
valdatafl er nokkuð sem á sér stað
á öllum tímum. Maður fær einskon-
ar þjálfun í að sjá í gegnum það
sem gerist, þannig að maður hoppar
ekki með á hvað sem er, alltaf f
góðri trú, heldur leyfir sér að efast
og vera gagnrýninn. Þannig held ég
að sagan komi þeim að gagni sem
kynna sér hana. Veiti þjálfun í að
sjá þá tíma sem maður lifir, þrátt
fyrir að sama sagan endurtaki sig
ekki. Aðstæður breytast og við
breytumst.
Engin sérmál
Islendinga
reifuð
Frá fundi utanrfldamálanefind-
ar, þar sem utanríkisráðherra
greindi nefndinni frá undirbún-
ingi að fundi leiðtoganna í
næstu viku. Eyjólfur Konráð
Jónsson formaður utanrflds-
málanefndar sagði í samtali við
blaðamann Morgunblaðsins að
mikill einhugur hefði ríkt á
fundinum, um að ekki kæmi til
greina, af hálfu íslenskra stjórn-
valda að reifa við leiðtogana
sérmál íslendinga.
I fyrsta sæti vinsældalistans:
HOUAND ELECIfíO
Holland Electro er í efsta sæti íslenska ryksuguvinsældalistans - og hún hefur
veriö þar í meira en áratug.
ÞaÖ ætti ekki að koma neinum á óvart því Holland Bectro er enqin veniuleq
ryksuga.
• Kraftmeiri gerast ryksugur ekki.
Holland Electro hefur allt að 1200 watta mótor sem tryggir aukinn sogkraft og einstakan
árangur.
• Breytilegur sogkraftur.
Með sjálfstýringu ersogkraftinum stjómað eftir þörfum - Þykkustu teppin sleppa ekki.
• Lág bilanatíðni.
Bilanatíðni Holland Electro er lægri en hjá öðrum tegundum.
• Góðþjónusta.
Viðgeröa- og varahlutaþjónusta er eins og hún gerist best.
• Teppabankari.
Holland Electro býóur sérstaka teppabankara til að friska teppin upp.
ÞaÖ er engin tilviljun að Holland Electro hafi setið svo lengi í fyrsta sæti ryksuguvinsældalist-
ans, þetta er nefnilega engin dægursuga heldur ryksuga sem kann tökin á teppunum.