Morgunblaðið - 05.10.1986, Síða 58
*joo r cra<lArT,\fA a fjrjr^ * í-nT’/T/rrxo mt~r a Trn,/rTTr->cmsiif
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. OKTÓBER 1986
t
Útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdafööur og afa,
BJÖRNS MAGNÚSSONAR,
bifreiðastjóra,
Lækjargötu 11,
Slglufiröl,
fer fram frá Sigiufjarðarkirkju þriðjudaginn 7. október kl. 14.00.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á Hjartavernd.
Sveinfna G. Jónsdóttir,
Haukur Björnsson, Sigríð E. Guðmundsdóttir,
Sverrir Björnsson, Sigfríður E. Óladóttir,
Anna Björnsdóttir, Guðmundur Garðarsson,
Sævar Rafn Björnsson
og barnabörn.
t
Maöurinn minn og faðir okkar,
STURLA JÓHANNESSON,
Sturlu-Reykjum,
lést þann 2. október.
Hanna Inga og Hrafn Sturlubörn.
t
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
STEFÁN HANNESSON,
fv. vörubifreiðastjóri,
Hringbraut 37,
verður jarðsunginn frá Neskirkju mánudaginn 6. okt. kl. 13.30.
Blóm vinsamlegast afþökkuð, en þeim sem vilja minnast hans
er bent á líknarstofnanir.
Björg Ingþórsdóttir,
Stefán Stefánsson,
Svanhildur Stefánsdóttir, Jón Vigfússon,
Sigurður Stefánsson, Guðrún Daníelsdóttir,
Kristinn Stefánsson, Magnúsína Valdimarsdóttir,
Ingþór H. Guðnason, Hrefna Ingimarsdóttir
barna- og barnabörn.
t
Útför föður okkar, tengdaföður og afa
GÚSTAFS A. ÁGÚSTSSONAR,
endurskoðanda,
Laugavegi 70b,
sem andaðist 29. september s.l. fer fram frá Hallgrímskirkju
mánudaginn 6. október kl. 15.00.
Þeir sem vildu minnast hins látna er bent á Krabbameinsfélagið.
Guðmundur G. Gústafsson,
Sigurður Þ. Gústafsson,
Oddur Gústafsson,
Sigrún Gústafsdóttir Ambos
Diljá M. Gústafsdóttir,
Else Zimsen,
Gunnlaugur Sverrisdóttir,
Erna Gísladóttir,
John T. Ambos,
Jón Þ. Gfsiason
og barnabörn.
t
Maðurinn minn, faðir okkar og tengdafaðir,
SIGURJÓN GUÐJÓNSSON,
Kjartansgötu 10,
verður jarðsettur frá Fossvogskapellu miðvikudaginn 8. október
kl. 13.30.
Þeim sem vildu minnast hans er bent á Hjartavernd.
Jóhanna Katrfn Kristjánsdóttir,
Kristjana Sigrún Bjarnadóttir, Tryggvi Rafn Valdimarsson,
Svanhildur Sigurjónsdóttir, Þórhallur Aðalsteinsson,
Kristján Sigurjónsson, Unnur Skúladóttir,
t
Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma,
INGIBJÖRG SARA JÓNSDÓTTIR,
Háteigi 12, Akranesi,
verður jarðsungin frá Akraneskirkju þriðjudaginn 7. október kl.
11.30.
Oliver Kristófersson,
Steindór Kristinn Oliversson, Inga Björg Sigurðardóttir,
Helga Ólöf Oliversdóttir, Pálmi Pálmason,
- Kristófer Oliversson, Svanfrfður Jónsdóttir
og barnabörn.
Guðmundur Illugason
fv. sakaskrárritari
Fæddur 21.júní 1899
Dáinn 25. september 1986
Miðvikudaginn 1. október var
kvaddur frá Reykholtskirkju Guð-
mundur Illugason, og er hann nú
kominn aftur heim í sveitina sína
sem hann unni, kominn í hóp for-
feðra sinna sem hafa verið kvaddir
hinstu kveðju í Reykholti. Hann var
fæddur í Skógum í Flókadal, þeim
stað sem æ síðan stóð hjartanu
næst. En landinu sínu, héraðinu
sínu, vann hann allt sem hann gat.
Foreldrar hans voru Illugi bóndi í
Skógum, annálaður þrekmaður og
sagna- og ljóðasjór, Illugasonar,
lengst á Kópareykjum Ásgrímsson-
ar, og móðir Guðmundar var
Guðrún, lengi húsmóðir í Skógum,
Þórðardóttir á Litlakroppi Oddsson-
ar. Kona Þórðar var Helga Þor-
valdsdóttir, af Deildartunguætt.
Allt er þetta fólk Borgfirðingar í
marga ættliði og Iq'amafólk.
Guðmundur ólst upp í Skógum,
og eins og hann sagði, trúði á huldu-
fólkið í Skógaborg, og horfði af
henni og sá þaðan að heimurinn
var stór. Og hvert fórstu til að sjá
yfir heiminn Ari minn, spurði hann,
og blikið í augunum og glettnin var
björt. „Upp á Stóruborg," svaraði
ég að bragði. En Stóraborg er í fló-
anum inn af Fossabæjunum, og í
þá daga fannst mér hún geysihá.
Ungur fór hann til náms í Hvítár-
bakkaskólann til Sigurðar Þórólfs-
sonar og minntist þeirrar skólaveru
með hlýju og virðingu. Síðan á
Búnaðarskólann á Hvanneyri og
varð búfræðingur þaðan 1918.
Síðan stundaði hann bamakennslu
í nokkra vetur, m.a. norður í Þing-
eyjarsýslu, og átti vini þar æ síðan
eins og hann eignaðist hvar sem
hann var.
Hinn 29. des. 1923 kvæntist
hann Höllu Markúsdóttur, ættaðri
úr Hnappadal, sem síðan hefur þol-
að með honum súrt og sætt og má
nú horfa á eftir honum, sjálf þrotin
að heilsu og kröftum. Þó getur hún
með gleði minnst rúmlega 60 ára
sambúðar, fimm mannvænlegra
dætra, lq'örsonar og fjölda bama-
bama, sem umvefja hana verð-
skuldaðri ást og umhyggju.
Þá gerðist hann bóndi og bjó í
Ystugörðum í Kolbeinsstaðahreppi
í nokkur ár, eða 1924—28. Guð-
mundur reyndist mikill hugsjóna-
maður og félagsmálin lét hann til
sín taka. Ungmennafélögin með
kjörorðinu „íslandi allt“ nutu starfa
Guðmundar vestur þar. Hann var
m.a. formaður Ungmennasam-
bands Snæfellinga og Hnappdæla
1922 og minnugir þess hvemig
hann vann fyrir það var hann gerð-
ur að heiðursfélaga þess 1962.
Þau hjón fluttu til Hafnarfjarðar
og áttu þar heima 1928—32. Var
hann þar verkamaður við kröpp
kjör, lítið um vinnu og lág laun.
Þar starfaði hann í verkalýðsfélag-
inu og þar hóf hann störf í Góð-
templarareglunni, en í henni vann
hann lengi mikið og gott starf.
Árið 1932 verða þáttaskil í lífi hans,
hann gerist lögregluþjónn í
Reykjavík og vann þar síðar sem
rannsóknarlögreglumaður og saka-
skrárritari. Hreppstjóri í Seltjamar-
neshreppi var hann 1961—73 (er
hreppurinn varð að kaupstað).
Þess hefur fyrr verið getið hvers-
konar félög nutu krafta hans, það
voru stéttarfélögin, ungmennafé-
lögin og bindindsfélögin, og hvert
það félag sem hafði íslenska menn-
ingu á sinni dagskrá átti hug hans
og starfskrafta. Hann var í fyrstu
stjóm Borgfirðingafélagsins í
Reykjavík, formaður þess um tíma,
og heiðursfélagi þess frá 1952.
Náttúruvemdarsamtök áttu einnig
hjálp hans vísa og margt er ótalið.
Ungur fékk hann áhuga og forvitni
á að vita hver er maðurinn, hvaðan
er hann og hvemig er hann. Hann
vildi kynnast þeim ættstofnum sem
+
Eigninmaöur minn, faðir og fósturfaðir,
ÞÓRÐURÞÓRÐARSON,
Barmahiíö 53,
sem lést í Landspítalanum 24. september sl. var jarðsettur í kyrr-
þey að eigin ósk.
Una Guðmundsdóttir,
Oli G. H. Þórðarson,
Eria Sveina Jórmundsdóttir.
t
Móðir okkar,
INGVELDUR JÓHANNSDÓTTIR,
áður til heimilis að Þjórsárgötu 1,
lést á Dvalarheimilinu Hrafnistu í Reykjavík 3. október.
Jarðarförin fer fram frá Fossvogskapellu þriöjudaginn 10. október
kl. 15.00.
Fjóla Magnúsdóttir, Kristfn Magnúsdóttir,
Theodóra Guðnadóttir, Guðfinna Guðnadóttir.
+
Innilegustu þakkir til ykkar allra er sýnduð okkur samúö og hlý-
hug vegna fráfalls og útfarar dóttur okkar, systur og mágkonu,
KRISTÍNAR HALLDÓRSDÓTTUR,
og henni hjálpsemi og tryggð.
Guðrún A. Thorlacius, Halldór Geir Halldórsson,
Auður F. Halldórsdóttir, Jens Sigurðsson.
+
Móöir mín og fósturmóðir,
KRISTÍN ELÍNBORG BJÖRNSDÓTTIR,
Akralandi 1, Reykjavfk,
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 7. október kl.
13.30. Blóm afbeðin en þeim sem vildu minnast hennar er bent
á líknarstofnanir.
Fyrir hönd aðstandenda,
Heiðbjört Guðlaug Pétursdóttir,
Guðmundur Bergsson.
Legsteinar
Framleiðum allar stærðir og gerðir af legsteinum.
Veitum fúslega upplýsingar og ráðgjöf
um gerð og val legsteina.
s S.HELGASON HF STEINSMIÐJA 1 SKEMMUVEGI 48 SiMI 76877
byggja það land sem hann unni og
helgaði krafta sína. Hann vildi sjá,
og sá, að mennimir eru misjafnir,
og að það þarf að rækta mannfólk-
ið ekki síður en búféð.
Þessi forvitni leiddi til áratuga
samstarfs hjá okkur um borgfirska
mannfræði og ættfræði. Minni hans
og róleg yfírvegun, ást hans á því
góða í manninum (og hann fann
gott í öllum mönnum) gerði, að það
var gott að vinna með honum. Sú
samvinna hófst á Qórða áratug ald-
arinnar. Hinn 7. des. 1963 var
Sögufélag Borgarfjarðar stofnað og
hófst þá útgáfa á því verki, sem
byggðist á því er við höfum verið
að gera, Guðmundur, Aðalsteinn
Halldórsson og ég. Að því vann
síðan Guðmundur af alhug og sam-
viskusemi, eins og allt sem hann
gerði, meðan þrek og kraftar ent-
ust. Síðastliðið haust fann maður
að hann var fyrir alvöru farinn að
láta sig, en viljinn og þráin eftir
að gera gagn var enn óbilað, og
hann vissi hvert stefndi. Þrátt fyrir
háan aldur entist honum minnið
lengi, þó þrekið dvínaði. Síðastliðinn
vetur veiktist hann og var í sjúkra-
húsi síðustu mánuði ævinnar, og
þar lést hann 25. sept. Hann var
eins og fyrr segir slitinn að kröftum
og heilsu, og þegar svo er komið,
má þakka fyrir hvíldina. Við sem
eftir stöndum söknum samstarfs-
manns og vinar, söknum mikilhæfs
fróðleiksmanns, sem gott var að
leita til. Minnumst glæsilegs heimil-
is Höllu og hans, þar sem heimilis-
faðirinn lék á als oddi, sér í lagi
þegar hann var að ræða hugðarefni
sín. Minnumst þar sem Halla bar
fram af rausn og fannst það aldrei
nógu mikið eða gott. Það verða því
fyrst og fremst þakkir sem móta
minningamar. Fróðleikur sá sem
hann vann að mun varðveitast og
áfram skal haldið, svo best er slíks
manns minnst, að vel sé unnið að
verkum þeim sem hann helgaði
krafta sfna, og má hér reyndar
segja að eplið falli ekki langt frá
eikinni, því Sveinbjörg dóttir hans
mun taka upp merkið og halda
áfram störfum hans. Því fögnum
við um leið og kveðjan til hans verð-
ur þökk fyrir samveruna.
Ari Gíslason
frá Syðstufossum
Blömastofa
Friöfinns
Suðurlandsbraut 10
108 Reykjavík. Sími 31099
0pi6 öll kvöld
til kl. 22,- eínnig um helgar.
Skreytingar viö öll tilefnl.
Gjafavörur.