Morgunblaðið - 05.10.1986, Side 61

Morgunblaðið - 05.10.1986, Side 61
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. OKTÓBER 1986 6T atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna Bókari eða við- skiptafræðingur af endurskoðunarsviði Fyrirtækið er endurskoðunarskrifstofa í kauptúni á Vesturlandi. Starfið felst í umsjón og frágangi bókhalds- gagna ásamt uppgjörum og gerð skattafram- tala. Hæfniskröfur eru að viðkomandi sé við- skiptafræðingur af endurskoðunarsviði eða hafi haldgóða þekkingu og reynslu af bók- haldsstörfum. Vinnutími er frá kl. 8-16 auk töluverðrar yfir- vinnu um háannatímann. Góð laun eru í boði fyrir hæfan starfsmann og möguleiki er á útvegun húsnæðis. Umsóknarfrestur er til og með 10. október nk. Ráðning verður sem fyrst eða eftir nán- ari samkomulagi. Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar á skrifstofunni frá kl. 9-15. Afleysmga- og ráðmngaþjónusta Lidsauki hf Ifi' Skólavörðustig 1a - 101 Reykjavik - Simi 621355 Atvinnurekendur Ef þér leitið að hæfu starfsfólki sparið þá tíma og fyrirhöfn. Vér höfum nú þegar ítarlegar upplýsingar um fjölda góðra starfsmanna með margvís- lega menntun og starfsreynslu, sem leita að ýmiskonar störfum. Margir þeirra gætu hafið störf nú þegar. snmjúmm w Brynjólfur Jónsson • Nóatún 17 105 Rvik • simi 621315 • Alhlida raöningaþjonusta • Fyrirtækjasala • Fjármálaráðgjöf fyrir fyrirtæki Sérhæft starf fiskvinnsla/sjávar- útvegur Öflug fjármálastofnun í höfuðborginni vill ráða starfsmann til að annast sérhæfð verkefni á sviði sjávarútvegs. Starfið er laust nú þegar eða eftir nánara samkomulagi. Leitað er að aðila með góða menntun, sem vinnur sjálfstætt og skipulega. Æskilegt að viðkomandi hafi þekkingu og reynslu á sviði fiskvinnslu og sjávarútvegs t.d. varðandi markaðs- og lánamál, og þekki til framleiðenda og samtaka þeirra. Enskukunnátta og tölvuþekking æskileg. Þar eð hér er um að ræða nýtt starf, fara fyrstu mánuðirnir í að skipuleggja og móta það, en síðar meir yrði viðkomandi sérfræð- ingur stjórnenda fyrirtækisins í þessum málum. Tilvalið tækifæri fyrir aðila með starfs- reynslu að skipta um starf og takast á við krefjandi verkefni hjá traustu fyrirtæki. Umsóknir er tilgreini menntun ásamt starfs- reynslu, sendist skrifstofu okkar fyrir 19. okt. Algjör trúnaður. QjðntTónsson RÁÐCJÖF & RÁÐN I N CARÞJÓN USTA TÚNGÖTU 5, 101 REYKJAVÍK - PÓSTHÓLF 693 SÍMl 621322 Markaðsstjóri Eitt stærsta fyrirtæki landsins á sviði mat- vælaframleiðslu og dreifingu vill ráða markaðsstjóra til starfa, sem fyrst. Hægt er að bíða í smátíma eftir hæfum aðila. Viðkomandi hefur yfirumsjón með markaðs- og sölumálum fyrirtækisins, m.a. kynningar og auglýsingamál. Leitað er að duglegum aðila, með góða al- menna menntun ásamt einhverri starfs- reynslu, sem hefur tamið sér sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð og á gott með að stjórna og vinna með öðrum og er lipur í allri umgengni. Nauðsynlegt að viðkomandi tali vel eitt Norðurlandamál og ensku. Góð laun í boði. Gott framtíðarstarf. Um- sóknir er tilgreini aldur, menntun og fyrri störf sendist skrifstofu okkar fyrir 12. okt. nk. QjðnjTónsson RÁÐCJÖF b RÁÐN I NCARÞJÓN USTA TÚNGÖTU 5. 101 REYKJAVÍK - PÓSTHÓLF 693 SÍMI 621322 Vaktavinna Við óskum eftir mönnum í eftirtalin störf: 1. Vaktstjóri: samviskusamur og reglusamur maður sem er fljótur að læra ásamt því að hafa stjórnunarhæfileika. Meðmæli áskilin. 2. Aðstoðarmenn: samviskusamir og reglu- samir menn, laghentir og fljótir að tileinka sér ákveðin vinnubrögð. Með- mæli áskilin. Væntanlegir umsækjendur komi í viðtal til verkstjóra, Daníels Guðmundssonar, milli kl. 14.00-16.00 dagana 8.-12. okt. Plastprent hf. Höfdabakka 9, Reykjavik. Verðlagningardeild Sambandsins óskar að ráða tvo starfsmenn nú þegar. Viðkomandi þurfa að hafa þekk- ingu á innflutningsskjölum og nokkra tungu- málakunnáttu. Unnið er á tölvuskjái. Nánari upplýsingar veita starfsmannahald Sambandsins og deildarstjóri Verðlagningar- deildar Sambandsins. Sími 28200. SAHIBAND ÍSL. SAMVINNUFÉIAGA STARFSMANNAHALD Framleiðslustörf Starfsfólk óskast til framleiðslustarfa. Breytt launafyrirkomulag. Upplýsingar gefur framleiðslustjóri. Opal Fosshálsi 27. Sími 672700. Atvinna óskast Ungur trésmiður óskar eftir starfi í Reykjavík. Er vanur allri verkstæðisvinnu. Annarskonar atvinna en trésmíði kæmi einnig vel til greina. Nánari upplýsingar veittar í síma 688128 (um helgar í síma 99-1525). m ^ÆSTINGAMIÐSTÖÐIN SF. Síöumúla23. Sími 687601. Ræsting — helgarvinna Okkur vantar gott og duglegt fólk til starfa nú þegar. Allar nánari upplýsingar eru gefnar hjá Ræstingamiðstöðinni sf. Síðumúla 23 eða í símum 687601 og 687603. LAUSAR STÖÐUR HJÁ REYKJAVÍKURBORG Staða forstöðumanns Manntalsskrifstofu Staða forstöðumanns Manntalsskrifstofu Reykjavíkurborgar er laus til umsóknar. Nánari upplýsingar um starfið gefur Gunnar Eydal skrifstofustjóri, Austurstræti 16. Umsóknum sé skilað til starfsmannahalds Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, 6. hæð, á eyðublöðum sem þar fást fyrir 1. nóvem- ber nk. Líffræðistofnun Háskóla íslands óskar að ráða til starfa: sérfræðing eða rannsóknamann f örveruf ræði Um er að ræða vinnu með ýmsar tegundir örvera t.d. ræktunartilraunir, mælingar á ensímvirkni o.fl. Æskileg menntun er á sviði örverufræði, lífefnafræði eða sameindalíf- fræði. Umsóknir ásamt uppl. um námsferil, rann- sóknir og fyrri störf sendist til örverufræði- stofu Líffræðistofnunar Háskólans, Sigtúni 1, 105 Reykjavík. Frekari uppl. veita Jakob K. Kristjánsson og Guðni Á. Alfreðsson í síma 688447. RlKISSPÍT ALAR LAUSAR STOÐUR KÖPAVOGSHÆLI Þroskaþjálfar óskast til starfa á nokkrum deildum. Hluta- starf eða einstakar vaktir koma til greina. Starfsmenn óskast til starfa á deildum, í „býtibúr“ og til ræstinga. Upplýsingar veitir forstöðumaður og yfir- þroskaþjálfi, sími 41500. Reykjavík, 5. okt. 1986. Oskum að ráða eftirtalið starfsfólk sem fyrst: Hjúkrunarfræðinga, sjúkraliða og aðstoðarfólk við hjúkrun. Fullt starf eða hlutastarf. Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri í síma 29133 kl. 8.00-16.00. Handavinnukennara/föndurkennara til starfa í föndurstofu (50% vinna). Upplýsingar í síma 29133 kl. 10.00-17.00. Sjálfsbjörg - landssamband fatlaðra Hátúni 12 - Sími 29133 - Pósthólf 5147 - 105 Reykjavlk - tsland

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.