Morgunblaðið - 05.10.1986, Page 66
66
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. OKTÓBER 1986
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Sfldarsöltun
Starfsfólk vantar til síldarsöltunar á væntan-
legri síldarvertíð 1986. Nánari upplýsingar
veittar í síma 97-2320 á kvöldin.
Strandarsíid sf.
Seyðisfirði.
Deildarstjóri
Snyrtivörudeild
Þekkt verslunar- og innflutningsfyrirtæki í
borginni vill ráða deildarstjóra í snyrtivöru-
deild til starfa fljótlega. Um er að ræða fullt
starf.
Verksvið: Innkaup og val á vörum, skipulagn-
ing snyrtivörukynninga, mannahald og skyld
verkefni.
Leitað er að snyrtifræðingi, helst með
reynslu í verslunarrekstri, sem er hress og
glaðvær og hefur trausta og örugga fram-
komu.
Góð laun í boði. Gott framtíðarstarf.
Nánari upplýsingar á skrifstofu.
Umsóknir er tilgreini aldur og fyrri störf
sendist okkur fyrir 12. október nk.
GuðniTónsson
RÁÐCJÖF &RÁÐNINCARÞJÓNUSTA
TÚNGÖTU 5, 101 REYKJAVÍK — PÓSTHÓLF 693 SÍMI 621322
Einkaritari
Fyrirtækið annast fjármálaráðgjöf og ávöxt-
unarþjónustu.
Starfið felst í vélritun, skjalavörslu, merkingu
fylgiskjala, innslætti bókhaldsgagna í altos-
tölvu ásamt öðrum tilfallandi skrifstofustörf-
um. Auk ofangreinds mun starfsmaðurinn
annast símavörslu og móttöku viðskiptavina.
Hæfniskröfur eru að viðkomandi hafi reynslu
af ritarastörfum, sé úrræöagóður og eigi
gott með að starfa sjálfstætt. Áhersla er
lögð á þægilega framkomu og snyrtilegan
klæðnað. Góð enskukunnátta æskileg. Versl-
unar- eða stúdentspróf skilyrði.
Vinnutími er frá kl. 13.00-17.00. Góð laun
eru í boði fyrir hæfan starfsmann.
Umsóknarfrestur er til og með 10. október
nk. Umsækjendur þyrftu að geta hafið störf
sem fyrst.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar á
skrifstofunni frá kl. 9.00-15.00.
Skóldvordustig 1a - 101 fíeyk/jvik - Simi 621355
Textainnskrift
Óskum eftir starfskrafti við innskrift á setn-
ingartölvu. Góðrar vélritunar- og íslensku-
kunnáttu krafist. Um er að ræða hálfdags-
vinnu frá kl. 8.00-12.00 f.h. Upplýsingar í
síma í Prenttækni 44260.
Pfcnttcekni
Matráðskonu vantar
Matráðskonu vantar við heimavistarskóla í
nágrenni Reykjavíkur.
Upplýsingar í síma 13899 á skrifstofutíma
og 99-3606 allan daginn.
Skólastjóri.
Stúlka óskast
á heimili í New York. Góð enskukunnátta
áskilin. Má ekki reykja. Nánari upplýsingar í
síma 15024.
Sölumaður óskast
Óskum eftir bráðduglegum og sjálfstæðum
sölumanni strax.
Æskileg menntun en þó ekki skilyrði, raf-
eindavirki — rafvirki.
Skriflegar umsóknir sendist augldeild Mbl.
fyrir 12. okt. nk. merktar:
„Hátækni hf. - 1705“.
Matreiðslumaður
Matreiðslumaður með mikla starfsreynslu,
óskar eftir áhugaverðu starfi.
Listhafendur vinsamlegast leggi nafn og
símanúmer inn á augld. Morgunblaðsins sem
fyrst merkt: „X — 3“.
Óskum að ráða þjón og nema í matreiðslu.
Upplýsingar aðeins veittar á staðnum.
Laugavegi 126
ístess hf.
óskar að ráða
vélgæslumann
í fiskafóðurverksmiðju sína sem er að rísa í
Krossanesi við Akureyri. Um er að ræða
vaktavinnu að hluta. Æskilegt er að viðkom-
andi hafi reynslu í meðferð véla og tölvubún-
aðar. Viðkomandi þarf að geta hafið störf
sem fyrst.
Skriflegar umsóknir skulu sendar ístess hf.
Glerárgötu 30,600 Akureyri fyrir 10. okt. nk.
ístess h.f.
Glerárgata 30
600 Akureyri
Island
@ (9)6-26255
KAUPSTAÐUR
ÍMJÓDD
Starfsfólk óskast
Kaupstaður í Mjódd óskar eftir fólki til eftir-
talinna starfa. Æskilegur aldur 25-40 ára:
A) Næturvörður. Starfið felst í næturvörslu,
þrifum og annarri umsjón með hús-
næðinu.
B) Starfsfólk í eldhús og kjötvinnslu.
C) Starfsmaður á lager.
Nánari upplýsingar veitir verslunarstjóri kl.
13.00-15.00 á mánudag. Upplýsingar eru
ekki veittar í síma.
Skrifstofustjóri
Þekkt verslunarfyrirtæki í nálægð
Reykjavíkur vill ráða skrifstofustjóra til starfa
sem fyrst. Viðkomandi er einnig staðgengill
framkvæmdastjóra.
Starfið felst í almennum stjórnunarstörfum,
umsjón með bókhaldi og fjárreiðum.
Leitað er að aðila með góða bókhalds- og
tölvuþekkingu, ásamt starfsreynslu, sem er
vanur að stjórna og vinna sjálfstætt.
Aldur skiptir ekki máli heldur er verið að
leita að hæfum aðila.
Góð laun í boði. Nánari upplýsingar á skrif-
stofu.
Umsóknir er tilgreini menntun ásamt starfs-
reynslu, sendist skrifstofu okkar, fyrir 12.
október nk.
QjðntTónsson
RÁÐCJÖF & RÁÐN I NCARÞJÓN USTA
TÚNGÖTU 5, 101 REYKJAVÍK — PÓSTHÓLF 693 SÍMl 621322
rMsyJL-,
JÍ
BORGARSPITALINN
LAUSAR STÖDÖR
Sálfræðingur
Sálfræðingur óskast á meðferðarheimilið
Kleifarvegi 15. Umsóknarfrestur ertil 24. okt.
Uppeldisfulltrúi
Uppeldsifulltrúa vantar á meðferðarheimilið
Kleifarvegi 15. Áskilin er framhaldsmenntun
á sviði uppeldiskennslu og/eða sálarfræði.
Umsóknarfrestur er til 24. okt.
Upplýsingar um stöðurnar veitir forstöðu-
maður í síma 82615.
Fóstra — starfsmaður
Fóstra óskast á barnaheimili Borgarspítaians
Skógarborg II, hlutastarf kemur til greina,
einnig vantar starfsmann í fullt starf eða
hlutastarf.
Upplýsingar gefur forstöðumaður í síma
681439.
Eldhús
Starfsfólk óskast í sérfræðieldhús Borg-
arspítalans. Upplýsingar gefur yfirsjúkra-
fræðisérfræðingur í síma 696600 — 597.
Starfsfólk óskast í eldhús Borgarspítalns,
hlutastarf kemur til greina.
Upplýsingar gefur yfirmatreiðslumaður í
síma 696600 — 592.
Félagsráðgjafi
Félagsráðgjafi óskast að geðdeildum Borg-
arspítalans. Yfirfélagsráðgjafi geðdeildanna
veitir allar nánari upplýsingar í síma 13744.
Meinatæknar
Lausar eru stöður meinatækna við rann-
sóknadeild Borgarspítalans nú þegar.
Möguleiki er á barnaheimilisvistun.
Upplýsingar gefur yfirmeinatæknir í síma
696600 - 405.
BORGARSPÍTALINN
O696600
PÓST- OG SlMAMÁLASTOFNUNIN
óskar að ráða
Verkamenn
við jarðsímalagnir á Stór-Reykjavíkursvæð-
inu.
Nánari upplýsingar veita verkstjórar
jarðsímadeildar, Suðurlandsbraut 28, og í
síma 26000.
Sunnuhlíð
Kópavogsbraut 1 Sími 45550
Óskar eftir hjúkrunarfræðingi sem fyrst.
Barnaheimili á staðnum.
Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri.