Morgunblaðið - 05.10.1986, Síða 80
Launakjör kenn-
aranna erfiðasti
vandi Háskólans
LAUNAMÁL kennara er erfið-
asta vandamál sem Háskóli
Islands glímir við og brýnustu
þarfir hans eru meira og betra
húsnæði til kennslu og rann-
sókna. Þetta kom fram í ræðu
Sigmundar Guðbj arnasonar,
rektors Háskólans, f Háskólabfói
f gær.
Rektor sagði að vandamálin sem
við Háskólanum blöstu væru eink-
um tvennskonar, húsnæðisvandi og
Iéleg launakjör. „Háskólinn er ekki
samkeppnisfær um menn og eru
margir hæfír menn ekki lengur fá-
anlegir til að sækja um lausar
Enn deilt um
sýnatöku:
Loðnubát-
arnir landa
ekkiá
Siglufirði
LOÐNUBÁTARNIR virðast
hafa ákveðið að sigla ekki
til Siglufjarðar með afla
sinn. Að sögn Kristins Lund,
starfsmanns loðnunefndar,
tilkynntu nfu bátar um afla
á föstudag, alls 5500 tonn.
í gær var útgefið þróarrými
hjá Sfldarverksmiðjum
Ríkisins á Siglufirði 6000
tonn en ekkert skip var á
leiðinni þangað.
Fjórir bátanna sigldu til
Raufarhafnar, þrír suður til
Grindavíkur, einn til Ólafsvík-
ur og Bolungarvíkur. Stjóm
Síldarverksmiðjanna hefur
ákveðið að áfram verði tekin
sýni bæði í skipinu og í verk-
smiðjunni. Tekur hún ákvörð-
un á mánudag um hvor
mælingin verði látin gilda.
stöður. Vandamálið verður alvar-
legra þegar fáliðaðar námsbrautir
missa meirihluta kennara," sagði
rektor orðrétt í ræðu sinni. Neftidi
hann sem dæmi að tveir af þremur
kennurum Háskólans í matvæla-
fræði hefðu nýlega farið á fengsælli
mið og tekið önnur störf fram yfir
þau sem þeir höfðu. Benti hann á
að matvælafræðin væri mikilvæg
námsgrein við Háskólann þvf henni
væri ætlað að styrkja matvælaiðn-
aðinn, sem væri undirstöðuatvinnu-
vegur landsmanna. Sagði hann að
þegar svona væri komið væri Há-
skólinn í hættu, þvi hann þyrfti að
geta laðað til sín hina hæfustu
menn á hveijum tíma.
Varðandi húsnæðisvandann
nefndi rektor að nú þegar væri
húsnæði orðið of lítið, óhentugt og
dreift of vfða um bæinn. Sagði hann
þetta torvelda kennslu og nám, svo
og rannsóknir og stjómun. Hann
kvað þörf fyrir stærri fyrirlestra-
sali og benti á að nú þegar væri
farið að kenna í Háskólabíói því
eigið húsnæði Háskólans væri nýtt
að fullu.
I sólarátt
Raimsóknaþj ónusta
Háskólans stofnuð
Er ætlað að auðvelda samstarf Háskólans og atvinnulífsins
RANSÓKNAÞJÓNUSTA Há-
skólans hefur verið stofnuð og
er hlutverk hennar að auðvelda
samstarf Háskólans og atvinnu-
lífs á sviði rannsókna og
þróunarstarfa. Valdimar K.
Jónsson, prófessor, veitir Rann-
sóknaþjónustunni forstöðu.
Sigmundur Guðbjamason, rekt-
or Háskólans, gat þess í ræðu sinni
á hátíðardagskránni í Háskólabíói
í gær að markmiðið með stofnun
Rannsóknaþjónustu Háskólans
væri að skapa tengsl milli þeirra
sem leita vilja ráða og aðstoðar
annars vegar og hinna fjölmörgu
sérfræðinga Háskólans hins vegar,
sem veitt geta umbeðna aðstoð.
Verður henni ætlað það hlutverk
að efla og auðvelda rannsóknir í
þágu atvinnulífsins. Er ráðgert að
tekjum af rannsóknum þessum
verði siðan varið til að efla aðstöðu
til rannsókna og til að styrkja
Rannsóknaþjónustuna.
Þá sagði rektor í ræðu sinni í
gær að samskipti atvinnulífsins og
Háskólans væru tvíþætt: „Annars
vegar styður Háskólinn atvinnulíf-
ið, hins vegar verður atvinnulífið
Ingvi S. Ingvarsson, ráðuneytisstjóri:
Reglunum ekki beint
gegn neinum hópum
INGVIS. Ingvarsson, ráðuneyt-
isstjóri utanrikisráðuneytisins,
sagði, að reglunum, sem settar
hafa verið um komu útlendinga
til landsins væri ekki beint
gegn neinum sérstökum hóp-
nm. Eins og fram kemur í
Morgunblaðinu i gær telja tals-
menn samtaka gyðinga, að
reglunum um að menn sýni
staðfestingu um að þeir hafi
gistirými, sé beint gegn sér.
Ráðuneytisstjórinn sagði, að
reglumar væru settar til að koma
í veg fyrir, að erlendir ferðamenn,
sem hingað vildu koma frá 3. til
13. október lentu í vandræðum.
„Það eru ekki fáanleg nein hótel-
herbergi í Reykjavík eða ná-
grenni," sagði Ingvi, „reglunum
er auðvitað á engan hátt beint
gegn neinum sérstökum hópum.
AUir þeir, sem eiga tryggt gisti-
rými geta að sjálfsögðu komið til
landsins. Stjómvöld vona, að
menn átti sig á nauðsyn þess, að
við sérstakar aðstæður sem þess-
ar, sé óhjákvæmilegt að grípa til
óvenjulegra ráða. Jafnframt
vænta þau þess, að þetta skapi
ekki veruleg óþægindi."
Sjá bls. 2: Höfum ekki enn
þurft að beita nýju reglun-
að styðja Háskólann," sagði rektor
og lét þess getið að nú við þetta
tækifæri byði Háskólinn fyrirtækj-
um og einstaklingum að styðja
starfsemina, til dæmis með því að
leggja fram rannsóknarstyrki sem
síðan yrðu notaðir fyrir tíma-
bundnar stöður innlendra eða
erlendra vísindamanna sem, ráðnir
yiðu sem rannsóknaprófessorar til
allt að þriggja ára. Sagði hann
slíka rannsóknarstyrki verða aug-
lýsta og veitta í nafni gefenda.
Kvaðst hann vænta jákvæðra und-
irtekta forystumanna í atvinnulíf-
inu.
Tekinn
á 150 km
LÖGREGLAN á Selfossi stöðvaði
14 bifreiðar vegna hraðaksturs á
Hellisheiði siðastliðið föstudags-
kvöld. Einn bilstjórinn var á 150
km hraða.
Lögreglan var við radarmælingar
á Hellisheiði á milli klukkan 19.30
og 23 á fóstudagskvöldið. Á þessum
tíma stöðvuðu lögreglumennimir 14
bifreiðar sem voru á yfir 100 km
hraða. Einn bílstjórinn sló öll met,
var á 150 km hraða. Telur lögreglan
víst að hann missi ökuleyfið og fái
töluverða sekt að auki.