Morgunblaðið - 15.10.1986, Page 1

Morgunblaðið - 15.10.1986, Page 1
64 SÍÐUR B STOFNAÐ 1913 233. tbl. 72. árg.________________________________MIÐVIKUDAGUR 15. OKTÓBER 1986_______________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins Viðbrögð við ræðu Reagans: Harkalega deilt um stefnu forsetans Bandarískir ráðamenn bjartsýnir Washinston, frá Agneai Bragadóttur, blaóanunni Morgunblaðsins. LJOST er að Ronald Reagan, Bandaríkjaforseti, á undir bögg að sækja vegna leiðtogafundarins í Reykjavík. Fjölmiðiar draga upp þá mynd, að meirihluti Bandaríkj amanna hafi orðið fyrir vonbrigð- um með Reykjavíkurfundinn. Talsmenn stjórnarinnar segja á hinn bóginn, að mikill árangur bafa náðst. George Shultz, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, kveðst sannfærður um að hann og Eduard Shevard- nadze , utanríkisráðherra Sovétríkj- anna, taki upp þráðinn á ný f Vín eftir hálfan mánuð, þegar framhald öryggisráðstefnu Evrópu hefst þar. Bandarískir embættismenn hafa látið mjög að sér kveða í blöðum og sjónvarpi og ftrekað þau sjónarmið, sem forsetinn lét f ljós f ræðu sinni f fyrrakvöld. Kenneth L. Adelman, forstöðumaður Afvopnunarstofnun- ar Bandaríkjanna, segir t.d. að útlitið f afvopnunarmálum sé mun bjartara en það var. Fyrrum starfsmenn sömu stofnunar eru á öðru máli og segja bandarfsk stjómvöld reyna að fegra árangur fundarins f Reykjavík. Garry Hart, öldungardeildarþing- maður demókrataflokksins, sagði f viðtali við sjónvarpsstöðina CBS f gær :„Ég tel að forsetinn hafi gert hroðaleg mistök og komið þjóðinni f afar erfíða stöðu á fundinum f Reykjavík." Donald Regan, starfsamanna- stjóri Hvfta hússins, sagði í ABC sjónvarpsstöðinni, að almenningur í Bandarfkjunum hefði hingað til ekki gert sér grein fyrir mikilvægi geim- vamaáætlunarinnar fyrir Banda- rfkin. Hann taldi, að póiitfsk staða forsetans væri óbreytt eftir Reykjavíkurfundinn. Sjá ennfremur ræðu Ronalds Reagan Bandarfkjaforseta á miðopnu og fréttir á bls. 22. AP/Símamynd Hlaut friðarverðlaun Nóbels Elia Wiesel, prófessor við Háskólann í Boston, hlaut í gær friðarverðlaun Nóbles árið 1986. Wiesel, sem sést hér með ljölskyldu sinni, lifði af vist í útrýmingarbúðum nasista á árum seinni heimsstyijaldar- innar, og hefur frá þeim tíma haft mikil afskipti af mannréttindamálum. Sjá bls. 24. Yitzhak Shamir Israel: Deilur um valdaskiptin Jerúsalem.AP. ÍSRAELSKA þingið frestaði í gær afgreiðslu á traustsyfírlýs- ingu við Yitzhak Shamir, sem forsætisráðherra, þar sem upp komu deilur á síðustu stundu milli leiðtoga Likudbandalagsins og Verkamannaflokksins um ýmis atriði. Shimon Peres, sagði af sér sem forsætisráðherra sl. föstudag, og átti að taka við embætti utanrfkis- ráðherra f gær. Samkvæmt samkomulagi er gert var eftir sfðustu kosningar átti Shamir að taka við embætti forsætisráðherra. Á blaðamannfundi f gær var Uzi Bar-Am, aðalritari Verkamanna- flokksins, mjög harðorður f garð Likudbandalagsins. Sagði hann, að bandalagið með Shamir í broddi fylkingar hefði óvænt komið fram með óaðgengilegar hugmyndir varðandi stöðuveitingar þ. á m. að Yitzhak Modai, fyrrverandi dóms- málaráðherra, er Peres vék úr ríki88tjóm vegna harðrar gangíýni hans á stjómina, yrði ráðherra í hinu nýja ráðuneyti Shamirs. Mikhail Gorbachev ávarpar sovésku þjóðina: Segir Bandaríkjaforseta hafa eignað sér tillögur Sovétmanna Moskvu, AP. MIKHAIL S. GORBACHEV, leiðtogi Sovétríkjanna , sagði í gær- kvöldi að Ronald Reagan hefði í ávarpi sínu til bandarísku þjóðarinn- ar í fyrrakvöld eignað sér afvopnunartillögur Sovétmanna. Gorbachev ávarpaði sovésku þjóðina í gærkvöldi og var klukkustund- ar langri ræðu hans sjónvarpað beint um Sovétríkin. Mikhail Gorbachev sagði Reagan Bandaríkjaforseta hafa eignað sér afvopnunartillögur Sovétmanna bar sem hann hefði vitað að þær myndu höfða tii bandarísku þjóðarinnar. Sovétleiðtoginn ítrekaði þá skoð- un sína að Reykjavíkurfundurinn hefði verið árangursríkur en sagði ekkert um hvenær hann myndi aft- ur eiga fund með Ronald Reagan. Gorbachev kvaðst enn vera von- góður um áframhaldandi viðræður um afvopnunarmál en sagðist jafn- framt telja að það væri Bandaríkja- manna að ákveða hvert framhaldið yrði. Hann ítrekaði andstöðu sína við geimvamaáætlun Bandaríkja- stjómar og sagði hana vera ógnun við friðinn. Jafnframt benti hann á að Sovétmenn hefðu verið reiðubún- ir til að samþykkja tilraunir með geimvopn svo framarlega sem þær færu fram á rannsóknarstofum. Gorbachev flallaði ítarlega um til- lögur þær sem hann lagði fram á fundinum í Reykjavík og sagði að Ungveijaland: Mannsheilum smyglað vestur yfir járntjald ÞÚSUNDUM mannsheila hefur veríð smyglað frá Ungveijalandi til Vesturlanda um tiu ára skeið. Uppvist varð um hneyksli þetta fyrír skömmu, en vestræn lyfjafyrirtæki kaupa mannsheila dýru verði. Læknaprófessorinn Ferenc Laszlom, við læknaháskólann i Szeged, hefur veríð ákærður fyrir að vera höfuðpaurinn í spill- ingarvef þessum. í flestum vestrænum ríkjum þarf samþykki ættingja til þess að ijarlægja líffæri úr líkum, en í Ungveijalandi mega læknar taka það sem þeir vilja, til rannsókna í þágu vísindanna. Að sögn ríkis- saksóknara var þessi reglugerð grundvöllur hinna óhugnanlegu viðskipta Laszlo prófessors og ítalska fyrirtækisins Serono. Að sögn breska blaðsins The Times hófust viðskipti þessi fyrir tíu árum, en þá kom Laszlo við á krufningastofu háskólans, einnar hinnar bestu í Austur-Evrópu. Laszlo, sem var yfirmaður horm- ónafræðideildar háskólans, stakk upp á því við starfsmenn stofun- ar að þeir færðu sér fjóra mannsheila til viðbótar í viku hverri. Fyrir hvem heiladingul, þann kirtil sem framleiðir vaxtar- hormón, skyldu þeir fá þijár fórintur að launum, en það jafn- gildir tæpum þremur íslenskum krónum. Áður en yfír lauk fengu þeir þó tæpar 40 krónur fyrir stykkið, eftir að þeir uppgötvuðu að Las- zlo græddi ofljár á viðskiptunum. Áður en hann var handtekinn er talið að hann hafi selt um 5.000 heila og hagnast um þijár og hálfa milljón íslenskra króna. Heiladingullinn er verðmætur hluti mannslikamans, þar sem hann kemur visindamönnum að miklu gagni við tilraunir með vaxtarhormón. Réttarhöldin, sem hófust í síðustu viku, halda áfram, en lítið hefur heyrst um þau í Ungveija- andi. Það litla, sem heyrst hefur þó vakið mikinn óhug í landinu, ekki síst vegna þess mikla álits, sem læknar njóta þar. með þeim hefði verið unnt að heQa nýtt skeið í sögu mannkyns. Mikhai) Gorbachev sagði enn- fremur að Bandaríkjamenn virtust telja að Sovétsijómin myndi að lok- um fallast á geimvamaáætlunina og einhliða afvopnun. Þetta sagði hann vera alrangt. Þá sagði hann það vera markmið Bandaríkja- stjómar að sliga efnahag Sovétríkj- anna með vígbúnaðarkapphlaupinu og þannig grafa undan ráðamönn- um í Kreml og viðleitni þeirra til að bæta hag landsmanna. Gorbac- hev ítrekaði hvað eftir annað samstöðu Sovétmanna og sagði þá reiðubúna til að mæta sérhverri ógnun. Sjá ennfremur ræðu Ronalds Reagan á miðopnu og fréttir á bls. 22. Stjjórn Belgíu biðst lausnar Brflssel, AP. WILFRIED Martens, forsætis- ráðherra Belgíu, lagði í gær fram lausnarbeiðni fyrir stjórn sina. Ástæðan fyrir beiðninni eru tungumáladeilumar milli Vallóna og Flæmingja í landinu. Upphaf þessara deilna nú er dómsúrskurður um, að embættistaka bæjarstjóra eins skuli ógilt, þar sem hann haldi fast við frönsku, en neiti að tala flæmsku. Vallónar tóku strax afstöðu með bæjarstjóranum, Jose Happart og halda því fram, að brottvikning hans sé gróft brot á lýðræðisregl- um.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.