Morgunblaðið - 15.10.1986, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 15.10.1986, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. OKTÓBER 1986 5 Ferðahandbók Útsýnar 1986—1'87 komin út: Fjölbreytt- ir ferðamögu- leikar vetrar- ins kynntir Ferðaskrifstofan Útsýn hefur sent frá sér 16 siðna litprentaða áætlun um vetrarferðir. Kennir þar margra grasa, enda eykst fjðlbreytnin í ferðavali stöðugt. Auk almenns yfirlits yfir lægstu fargjöld frá Islandi, er lýsing á stórborgarferðum bæði til Evr- ópu og New York, og ferðatim- inn sveigjanlegri en áður bæði í helgar- og vikuferðum sem eru algengastar. Er London þar efst á blaði og völ um dvöl á um 20 hótelum á sérkjörum í mismun- andi verðflokkum. Útsýn mun halda uppi ferðum til Costa del Sol í allan vetur fyrir iangdvalarfarþega, en auk þess verður sérstök jólaferð 18. desem- ber til 4. janúar. Vetrardvöl á Costa del Sol er sérstaklega ódýr og veð- urfar svipað og gott íslenzkt sumar. Skíðaferðir eru í boði til Aust- urríkis og sólarferðir bæði í suður, austur og vestur. Kanaríeyjaferðir á vetuma hafa notið vinsælda, en nú bætast við nýir vetrarstaðir eins og blómaeyjan Madeira og Flórída, allt með beinu flugi héðan. Ferðir Útsýnar til St. Petersburg í Flórída voru fjölsóttar fyrir nokkrum ámm, og nú hafa þær tekið kipp að nýju með tilkomu beina flugsins til Or- lando frá næstu mánaðamótum. Einnig stendur til boða hin sívin- sæla Austurlandaferð, heimsreisa Útsýnar til Thailands, Bali og Sin- gapore, sem hefst hinn 7. nóvem- ber, og er nú farin fjórða árið í röð. Ferð til Brasilíu er ráðgerð í febrúar á næsta ári, en heimsreisa Útsýnar í ár hefst hinn 16. þ.m. og liggur leiðin um Las Vegas, Los Angeles, Hawaii-eyjar og á baka- leið er stansað í San Francisco og New York. Er sú ferð löngu upp- seld og sjaldan hefur verið jafn- mikið um farpantanir hjá Útsýn á þessum tíma árs og nú undanfarið. Hálkan kom ökumönnum áóvart ÖKUMENN voru greinilega ekki viðbúnir því í gærmorgun að hálka væri á götum. Urðu nokkur óhöpp vegna þessa. Tvær bflveltur urðu á Reykjanes- braut í gærmorgun, en sem betur fer urðu ekki slys á fólki. Á Vestur- landsvegi urðu einnig óhöpp. Bifreið valt út af veginum við Úlfarsá um kl. 7:40 og lenti á toppinum. Um svipað leyti valt bifreið á Sand- skeiði. Urðu skemmdir á bifreiðum þessum nokkrar, en ekki voru meiðsli mikil. Lögreglan sagði að greinilega væru menn ekki viðbúnir hálkunni, sem hefði verið lúmsk í gærmorgun. Götur voru auðar og erfítt að sjá glerunginn á þeim. Ökumenn eru hvattir til að vara sig betur, því nú er veður farið mjög að kólna. Hafnarstræti 7 101 Reykjavík ^ (91) 28566 VIS/VSQ

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.