Morgunblaðið - 15.10.1986, Side 40

Morgunblaðið - 15.10.1986, Side 40
40 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. OKTÓBER 1986 Hver talar við hvern? Hér sjáið þið mynd af fólki að tala í síma. Tveir og tveir tala sam- an. Þið eigið að fínna út hver er að tala við hvem. Ef þið fínnið það ekki út öðruvísi getið þið notað blý- ant og rakið ykkur eftir snúrunum. Hafnfirskir brandarar Ágústa V. Sverrisdóttir í Hafnarfírði sendi Bamasíð- unni tvo brandara um daginn. Þeir em að vísu ekki það sem við köllum ekta Hafnarfjarðarbrandara en við látum þá samt flakka: Gesturinn: Þjónn, það er fluga f aúpunni minni. Þjónninn: Bjóstu viðhesti, eða hvað? — Myndagáta 14 - Á síðustu myndagátu, þeirri númer 13, vom gleraugu. Bamasíðan fékk bréf víða að af landinu með svömm við þessari myndagátu. Úr bunkanum kom, þegar dregið var, nafn Guðríðar Esterar Geirsdóttur á Stokkseyri. Þakka ykkur öllum fyrir að senda svör og ræða um síðuna. Hún kemur hálfsmánaðarlega og oftast á miðvikudög- um. E.t.v. verður síðan birt oftar seinna meir. Bamasíðan, Morgunblaðinu, Aðalstræti 6, 101 Reykjavík. Útsala, útsala & öllum hæðum. Útsala, útsala & öllum hæðum. Kjallarinn. Þökk fyrir skemmtunina, Ágústa. Ekkert kynslóðabil? Bamasíðan fékk. sent efni sem böm í bamaskólanum á Þing- eyri unnu á starfsviku um daginn. Hér verða birt tvö viðtöl sem þau tóku við eldri borgara staðarins. Ef til vill er hér um að ræða verð- andi blaða- og fréttamenn þjóðar- innar! Það að ólíkir aldurshópar tali saman ætti að geta eytt þessu svokallaða kynslóðabili þ.e.a.s. ef það er þá til á stað eins og Þing- eyri. Þó viðtölin séu ekki löng ættuð þið að fá örstutt inngrip í hvað við- mælendur hafa verið að gera og hvemig lff fólks var fyrr á öldinni. Fyrst em það íris Thonipsen í 8. bekk og Dóra Sigurðardóttir í 6. bekk sem tala við Gunnar Sig- urðsson. Sp.: Hvað hefur þú gert um dag- ana, alltaf verslað? Gunnar: Ég vann ýmis sveita- störf í uppvextinum. Síðar fór ég Ymislegt um Þingeyri Með skrifum bamanna frá Þingeyri og viðtölunum þeirra er ekki úr vegi að birta nokkrar upplýsingar um staðinn. Hvar er Þingeyri: Á Vestfjörð- um, nánar tiltekið við Dýrafjörð. íbúafjöldi: f Þingeyrarhreppi og nágrenni búa um 495 manns. Atvinna: Aðallega fískveiðar og -vinnsla. Samgöngur: Hægt er að fljúga til Þingeyrar bæði frá ísafírði með Jlugfélaginu Emi svo og frá Reykjavík með Flugleiðum. Aætl- unarbílar aka þangað meðan fært er, en á vetmm getur vegurinn teppst. Ef þið hafíð áhuga á að vita hve langt er að aka þangað má geta þess að það em 477 km frá Reykjavík, 603 km frá Akureyri, 878 frá Egilsstöðum en ekki nema 66 km frá ísafírði. Póstnúmer: 470 Þingeyri. Svæðisnúmer síma: 94. Einkennisstafur bíla: í að vinna á jarðýtu og enn síðar að stunda húsasmíði. Ég hef stundað verslunarstörf núna í 11 ár. Sp.: Við heymm sagt að þú ætl- ir að fara að breyta búðinni. Segðu okkur eitthvað frá því. Gunnar: Já, nú er ég að breyta trésmiðjunni minni fyrrverandi í verslun. Þetta verður kjörbúð sem á bæði að auðvelda mér og við- skiptavinunum að versla. Sp.: Græðir maður á að versla? Gunnar: Ja, til þess að græða á verslun þarf maður mikla vinnu, langan vinnudag, hagsýni og þrifn- að. Sp.: Nú hefur þú unnið ýmislegt um ævina. Hvaða starf líkar þér best og hvers vegna? Gunnar: Ætli mér lfki ekki best við húsbyggingamar vegna þess hve starfið er fíölbreytt. Sp.: Hvað viltu segja að lokum? Gunnar: Ég vil þakka ykkur fyr- ir komuna og er glaður yfír því að nýir kennarar em komnir í skólann, sérstaklega tónlistarkennarinn. Sæborg Reynisdóttir, 9 ára, íris Andrésdóttir, 10 ára, og Guðrún Sigþórsdóttir, 11 ára, spurðu Sigríði Jónsdóttur sem dvelur á öldrunar- deildinni nokkurra spuminga. Sp.: Hvar ertu fædd og hvar átt- irðu heima áður en þú komst hingað?? Sigríður: Ég er fædd 24. októ- ber 1901 í Botni í Mýrarhreppi. Áður en ég kom hingað átti ég heima á Höfða í Mýrarhreppi. Sp.: Hvað getur þú frætt okkur um frá þvi ! gamla daga, t.d. um skólagöngu þína. Sigríður: Ég fór níu ára gömul út á Þingeyri í baraaskóla í einn vetur. Veturinn eftir fór ég á Höfða og var þar til 1915, það var ferm- ingarárið mitt. Það var gott að vera f skóla. Sp.: Hvemig fínnst þér að vera orðin svona gömul, og hvemig hef- urðu það? Sigríður: Ég er nú orðin 85 ára Sigríður Jóna Jónsdóttir, 85 ára. og mér líður vel eftir atvikum. Ég er búin að vera héma síðan 1979. Við þökkum þeim á Þingeyri fyr- ir þessa sendingu og birtum nokkrar upplýsingar um staðinn til glöggvunar þeim ykkar sem ekki þekkja hann. HVAÐA SKUGGI Svarið við hvaða skuggi væri eins og hund- urinn var að skuggi nr. 2 passaði best. Rétt svar hafði meðal annars Guð- mundur Karl Sigurdórs- son á Selfossi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.