Morgunblaðið - 15.10.1986, Side 50

Morgunblaðið - 15.10.1986, Side 50
50 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. OKTÓBER 1986 Wilkins ekki íhópnum - Beardsley í byrjunarliðinu gegn Norður-írum íkvöld Frá Stainþórl GuAbjartuyni, blaðamanni Morgunblaðaina i Englandi. ENSKA landsliðið í knattspyrnu leikur gegn Norður-írum í Evr- ■w ópukeppni landsliða á Wembley- leikvanginum f kvöld. Bobby Robson, landsliðsþjálfari, hefur gert flmm breytingar á enska lið- inu sem tapaði 0:1 fyrir Svfum f sfðasta mánuði. Ray Wilkins, fyrrum fyrirliði, er ekki í hópnum og ástæðan að sögn Robsons er sú að hann vill hafa markaskorara á bekknum sem getur leikið á miðjunni. Þess vegna valdi hann Nil Webb, Nottingham Forest, á bekkinn því hann hefur skorað 10 mörk fyrir lið sitt bað • David Speedie getur nti farið frá Chelsea. Vitað er að um mörg lið hafa áhuga á að kaupa þennan snjalla knattspyrnumann. sem af er tímabilinu. Peter Beardsley, framherji Newcastle, verður í byrjunarliðinu og er það í fyrsta skipti sem hann leikur á heimavelli fyrir England, en hann hefur leikið 9 landsleiki utan Englands, síðast í Mexíkó. Enska landsliðið verður annars þannig skipað: Shlhon (Southampton), Anderson (Arse- nal), Butcher (Rangers), Watson (Ever- ton), Samsom (Arsenal), Waddle (Tottenham), Hoddle (Tottenham), Rob- son (Man. Unhed), Hodge (Aaton Vllla), Berdsley (Nottlngham Forest) og Qary Uneker (Barcelona). Varamenn eru: Woods (Rangers), Madbutt (Tottenham), Webb (Nott. For- est), Hateley (AC Mllan) og Cottee (West Ham). Billy Bingham, þjálfari Norður- (ra, tilkynnir lið sitt í dag en hann hefur þegar greint frá því að hann muni ganga í hjónaband skömmu fyrir leikinn. # Peter Beardsley. Newcastle, er f byrjunarliði enska lendsllðsins sem mastir Norður-lrum f Evrópukeppni landsliða á Wembley f kvöld. Þetta verður ffyrsta sinn sem Beardsley leikur landsleik á heimavelli. Evrópukeppnin íknattspyrnu Speedie laus allra mála hjá Ch Frá Stslnþóri GuAb|artssyni, biaAamsnni MorgunblsAslns á Englsndi. DAVID Speedie, framherjinn hjá Chelsea, lék ekki með llði sfnu á laugardaginn og fór fram á að vera seldur. Chelsea varð við ósk hans f gær og er hann nú laus allra mála hjá fálaginu. 4 Speedie er 26 ára gamall skosk- ur landsliðsmaður og hefur leikiö með Chelsea undanfarin 4 ár. Hann hefur átt í útistöðum við fé- lagið upp á síðkastið og segist vonast til þess að geta farið aö helga sig knattspyrnunni 100 pró- sent á ný. Vitað er að Glasgow Rangers og Liverpool hafa áhuga á að kaupa Speedie og er gert ráð fyrir að verðið verði um milljón pund. Dalglish á bekknum - þegar Skotar mæta írum í kvöld þessa leiks og annar leikmaður sem venjulega leikur með Skotum í landsleikjum, Souness, er ekki í hópnum. Hjá írum stendur Bonner í mark- inu en aðrir leikmenn eru: Langan, McCarthy, Moran, Beglin, McGrath, Houghton, Bridy, Sheedy, Aldridge og Stapleton. Bridy mun leika sinn 59. lands- leik fyrir Skota í dag og þar með hefur hann jafnað landsleikjamet Gials sem lék hér á árum áður með hinu fornfræga félagi Leeds United. Stapleton er nú í samningavið- ræðum við Mechelen í Belgíu og er talið mjög Ifklegt að hann verði seldur þangað á næstu dögum. Þess má geta að löngu er upp- selt á leikinn og það verða því 49.000 áhorfendur sem sjá leikinn auk þeirra sem munu fylgjast með honum í sjónvarpi. Bæöi Skotar og írar hafa leikið einn leik til þessa í sínum riðli og báðir enduöu þeir með jafntefli. Skotar gerðu marka- laust jafntefli gegn Búlgörum í Skotlandi og Irar náðu 2:2 jafntefli gegn Belgum í Belgíu. EVRÓPUKEPPNIN f knattspyrnu verður á daaskrá f dag en þá leika Skotar og Irar landslelk f 7. riðli og Englendlngar msata Norður- írum á Wembley. Landsliðin sem hefja leikinn í Dublin í kvöld voru tilkynnt í gær og er landslið Skota þannig skipað að i markinu stendur Leighton en aðrir leikmenn eru Stewart, Gough, Hansen, Narey, Strachan, Aitken, McStay, MacLoud, Mo Johnson og Sharp. Dalglish er einn af varamönnum V—Þýskaland og Spánn leika í kvöld VESTUR—ÞJÓÐVERJAR leika vln- áttuleik við Spánverja f knatt- spymu í kvöld. Vestur-Þjóðverjar er eina þjóðin sem kemst sjálf- krafa f 8-liða úrslit Evrópukeppni landsliða, þar sem þeir halda úr- slitakeppnina. Bæöi Beckenbauer, þjálfari Vestur-Þjóðverja og Miguel Munoz, þjálfari Spánverja, hafa til- kynnt lið sín sem mætast í kvöld. Lið Vestur-Þjóðverja veröur þannig skipað: Schumacher, Hörster, Kohler, Buchwald, Berthold, Matthaeus, Rolff, Rahn, Frontz- ek, Waas og Eckstein. UA Spánverja: Zubizarreta, Camacho, Chendo, Julio Alberto, Coicoechea, Gal- lego, Michel, Gordillo, Victor, Senor og Butragueno. Vandereycken til Blau-Weiss - er leigður út keppnistímabilið BLAU—WEISS Berlin, sem nú er f neðsta sæti vestur-þýsku Bun- desligunnar f knattspyrnu, hefur fengið belgfska landsliðsmann- inn, Rene Vandereycken, að láni frá Anderlecht. Vandereycken verður hjá Berlin- arliðinu út þetta keppnistímabil og má leika með liðinu gegn Bayern Munchen á laugardaginn. Vandereycken er 32 ára miðvall- arieikmaður og var í landsliöi Belga sem náði fjórða sæti í heimsmeist- arakeppninni í Mexíkó í sumar. Þaö kom til greina að Guðmundur Torfason færi til liðsins en forráða- menn Blau-Weiss hafa tekið belgíska landsliðsmanninn fram- yfir hann.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.