Morgunblaðið - 16.10.1986, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. OKTÓBER 1986
3
Arfari flýgnr
aftur í desember
ÁRFARI, Fokker vél Flugleiða, sem rann fram af flugbraut við
Suðurgötu í mars sl. verður aftur tekin i notkun á áætlunarleiðum
í byijun desember. Að sögn Sigurðar Helgasonar, forstjóra, var flug-
vélin flutt til Hollands til viðgerðar skömmu eftir óhappið, og er
væntanleg þaðan í fyrstu viku desembermánaðar. Flugleiðir vinna
nú að því að bera skýrslu Flugsiysanefndar, sem Morgunblaðið
greindi frá í síðustu viku, saman við niðurstöður rannsóknarnefndar
félagsins.
Sigurður sagði að gengið hefði
verið frá öllum tryggingargreiðslum
strax eftir óhappið. Niðurstaða
Flugslysanefndar breytti engu um
það hvaða bætur yrðu greiddar fyr-
ir skemmdir á vélinni. Væru þær
greiddar samkvæmt athugun rann-
sóknarmanna tryggingarfélagsins.
„Hér var ekki um að ræða neina
handvömm starfsmanna flugfélags-
ins,“ sagði Sigurður. Nákvæmar
tölur um kostnað félagsins af
óhappinu, viðgerð Árfara, og leigu
á varavélum, liggja ekki fyrir.
Árfari er tveggja hreyfla skrúfu-
þota af gerðinni F-27-200, smíðuð
árið 1969 hjá Fokker verksmiðjun-
um í Amsterdam. í skýrslu Flug-
slysanefndar segir orðrétt um
skemmdimar á vélinni við óhappið:
„Fremri vængbiti í vinstri vængnum
brotnaði, allur vængurinn gekk nið-
Fjárlagafrumvarpið;
Fram-
kvæmdafé
til grunn-
skóla aukið
um 55%
FRUMVARP tíl fjárlaga sem
Þorsteinn Pálsson fjármálaráð-
herra hefur lagt fram á Al-
þingi, gerir ráð fyrir að fé til
framkvæmda í grunnskólum
landsins hækki úr 120 miiyón-
um króna fyrir árið 1986 í 185
milljónir króna, eða um nær
55%.
Fjárveitinganefnd Alþingis á
eftir að fjalla um skiptingu þessa
fjármagns með tilliti til tillagna
menntamálaráðuneytis og stöðu
hinna ýmsu framkvæmda. Tals-
vert á annað hundrað fram-
kvæmdir eru nú í gangi um allt
land í skólabyggingum þannig að
þörfin er mikil. Á undanfömum
árum hefur vantað á að glöggt
uppgjör um reikningsskil milli
ríkissjóðs og heimaaðila á hinum
ýmsu stöðum lægi fyrir en núver-
andi fjármálaráðherra hefur lagt
kapp á að gera upp framkvæmda-
kostnað hinna ýmsu mannvirkja
og koma á hreint kostnaðarskipt-
ingu sem óvíða hefur verið samið
endanlega um, þar sem fram-
kvæmdir eru í gangi.
ur og miklar skemmdir urðu á
skrokk og væng. Eldsneytisleiðslur
tognuðu og skekktust í vængnum
jrfir skrokknum og við vinstri hreyf-
ilinn...Vinstri hreyfilfestingar
brotnuðu og hreyfillinn drúpti nið-
ur. Skrúfublöð hans slógust ofan í
malbikið á götunni áður en þau
stöðvuðust. Nefhjólið gekk upp í
gólf stjómklefans, sem gekk upp
og skekkti mjög stjómtæki, þannig
að m.a. reyndist ekki unnt að hreyfa
eldsneytislokana“.
Unnið að þvi að flytja Árfara burt af Suðurgötunni, 10. mars sl.
Morgunblaðið/Ol. K. Magnússon
Nú er bara að glíma við
eigin sköpunargáfu því
’ &$&&&&&» *
pmMNar
• «
Kambaröst
seldi í Hull
EITT íslenskt fiskiskip seldi
erlendis á miðvikudag og fékk
ágætis verð fyrir aflann.
Það var Kambaröst SU sem
seldi 84.4 tonn í Hull fyrir sam-
tals tæpar 5.9 milljónir króna.
Aflinn var að mestu þorskur og
fór hann á 69.52 krónur að meðal-
verði.
8900
TOYOTA 8900 er með 25 sporum sem gefa þér allar auðveldustu leiðirn-
ar til frábærs saumaskaps.
Þú snertir bara hnappinn og velur sporið sem þú vilt.
SOLUUMBOÐÍ
VIÐ ERUM EINU SPORI A UNDAN TIMANUM:
'VARAHLUTAUMBOÐIÐ
Bkotic
ARMULA 23 SIMAR 685870-681733
KLAPPARSTIG 31 SIMI 14974