Morgunblaðið - 16.10.1986, Page 7
MORGUNBLAÐH), FIMMTUDAGUR 16. OKTÓBER 1986
7
Þegar menntun, reynsla og
þekking á þjóðmálum fara sam
þá er auðvelt að velja
sætið
j’rófkjör
fstæðisflokk
Mezzoforte
í hljómleika-
ferð um
Evrópu
HLJÓMSVEITIN Mezzoforte
verður á tónleikaferð um Evrópu
seinni hluta október og í nóvemb-
er til að fylgja útgáfu á sjöundu
hljómplötu sinni, No Limits, úr
hlaði, en hún er væntanleg á
markaðinn i síðar i mánuðinum.
Fyrstu tónleikarnir verða haldn-
ir á Broadway 24. október nk.,
en það verða einu tónleikar
hljómsveitarinnar hér á landi.
Síðan er ferðinni heitið til Sviss,
Þýskalands, Danmerkur og Noregs.
Alls mun Mezzoforte leika á 30
hljómleikum og síðan er áætlað
frekara hljómleikahald með nýju
ári.
Hljómsveitina skipa þeir Eyþór
Gunnarsson hljómborðsleikari,
Friðrik Karlsson gítarleikari, Gunn-
laugur Briem trommuleikari og
Jóhann Ásmundsson bassaleikari.
Loðnuverð
hækkað á
Seyðisfirði
LOÐNUVERÐ er óbreytt að und-
anskyldu því að ríkisverksmiðjan
á Seyðisfirði hefur hækkað verð
sitt úr 1.700 krónum á tonnið í
1.750 krónur.
Aðrar verksmiðjur eru áfram
með 1.700 krónur nema ríkisverk-
smiðjan á Reyðafírði sem greiðir
1.800 krónur fyrir tonnið. Verð
þetta gildir frá og með 17. október.
Þingmönn-
um boðið
að skoða
Háskólann
Alþingismönnum og framá-
mönnum í atvinnulífinu
verður boðið til kynningar í
Háskóla íslands nk. laugar-
dag, 18. október. Kynningin
hefst kl. 15.00 í Félagsstofnun
stúdenta við Hringbraut þar
sem rektur HÍ, Sigmundur
Guðbjarnason, og fulltrúar
háskóladeilda kynna starf-
semi háskólans.
Því næst verður farið í hið
nýja hús læknadeildarinnar, sem
er rétt við Umferðarmiðstöðina,
húsið skoðað og frekari bygg-
ingaráform kynnt. Eftir það
verður ekið aftur upp á Mela
og þijár stofnanir skoðaðar þar.
Litið verður fyrst inn í Árna-
garð. Síðan verður Raunvísinda-
stofnun skoðuð og að lokum
Verkfræðideild HÍ.
Uppblástur í
Húsavíkurfjalli
Húsavfk:
SKIPTAR skoðanir hafa verið
um uppblástur í Húsavikurfjalli
undanf arna áratugi, en menn eru
sammála um að fræ og dreifing
áburðar Landgræðslu ríkisins
hafi borið góðan árangur.
En vágesti gróðursins, sauðkind-
inni, hefur eftir fækkun mörg liðin
ár aftur farið að flölga á Húsavík
þrátt fyrir offramleiðslu kindalqots
og kvótakerfís. Sauðkindin legst
mjög mikið í gróðurinn í fjallinu og
þá sérstaklega nýgræðinginn.
Heyrst hefur að Landgræðslan neiti
frekari áburðardreifingu í flallið þar
til það hefur verið girt og friðað
fyrir búpeningi.
Vonandi hefur bærinn sem fyrst
efni á því að girða fjallið, enda
hvað ný gerð rafmagnsgirðinga
mjög hafa rutt sér til rúms og vera
kostnaðarminni en gömlu neta- eða
gaddavírsgirðingamar.
Fréttaritari
Frá Húsavik. Húsavfkurfjall f
baksýn