Morgunblaðið - 16.10.1986, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, FTMMTUDAGUR 16. OKTÓBER 1986
Konur 1 prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins
eftirBjörn
Matthíasson
Nú þegar próflqor Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjavík fer í hönd, er
vert að veita því athygli að uppstill-
ing frambjóðenda er á þann veg
að hægt er að skipta þeim í fjóra
aðalhópa. í þeim fyrsta eru núver-
andi eða fyrrverandi þingmenn
flokksins, í öðrum er hópur nokk-
urra ungra manna sem þegar voru
á listanum í síðustu kosningum eða
hafa talsvert komið við sögu í
flokksstarfinu. Þeir hafa góða
ástæðu til að ætla að nú geti þeir
náð talsverðu fylgi_ og hugsanlega
komist inn á þing. í þriðja hópnum
eru fjórar konur sem allar hafa
komið við sögu í starfí flokksins en
hafa hvergi nærri sýnt það at-
kvæðaaðdráttarafl sem tveir hinir
næsttöldu hópar hér á undan hafa
þegar sýnt. í fjórða og síðasta hópn-
um eru tveir menn sem aldrei hafa
komið við sögu stjómmála áður.
Eftir reynslu af síðasta prófkjöri
flokksins til Alþingiskosninga hér í
Reykjavík að dæma má ætla að
núverandi og fyrrverandi þingmenn
fíokksins fái flest atkvæði. Þar sem
það eru fyrst og fremst flokksmenn
sem taka þátt í prófkjörinu er það
ekki ólíklegt að þeir haldi sig við
þá þingmenn og frammámenn
flokksins sem þeir þekkja nú þegar
og raði þeim í efstu sætin. Þar á
eftir má telja líklegt að þeir raði
upp þeim sömu mönnum og síðast
fengu flest atkvæði á eftir öruggu
sætunum.
Þetta þýðir það að þær fjórar
konur sem nú eru í framboði og
ekki eru þingmenn raðist á listann
á eftir ofangreindum tveim hópum,
þ.e. þær lendi nokkuð neðarlega og
alls ekki neins staðar í nálægð við
örugg sæti.
Útkoman úr slíku prófkjöri
mundi þégar í stað vera túlkuð af
andstæðingum flokksins sem and-
staða flokksmanna við konur. Og
hér ber að hafa það hugfast að
aðrir flokkar hafa ekki stillt upp á
sína lista fyrir næstu kosningar og
hafa því það forskot fram jrfir Sjálf-
stæðisflokkinn að geta stillt upp
með fullu tilliti til þess sem Sjálf-
stæðisflokkurinn er búinn að gera.
Það skal vera kaldhæðni örlag-
anna að prófkjörsdýnamikin kunni
að verða til þess að ýta konum til
hliðar á lista hjá flokki sem gegnum
árin hefur haft tiltölulega fleiri kon-
Björn Matthíasson
„Því er þessi grein
skrifuð til að benda
fylgismönnum Sjálf-
stæðisf lokksins á að til
þess að góður og fram-
bærilegur listi komi út
úr prófkjörinu verði
fleiri konur að komast
í örugg sæti.“
ur í sínum þingmannaröðum en
aðrir flokkar.
Því er þessi grein skrifuð til að
benda fylgismönnum Sjálfstæðis-
flokksins á að til þess að góður og
frambærilegur listi komi út úr próf-
kjörinu verði fleiri konur að komast
í örugg sæti. Það mun ekki gerast
nema fjöldi sjálfstæðismanna setji
fleiri en þijár konur í efstu sætin,
því eitt einkenni á útkomu undan-
farinna prófkjöra hefur einmitt
verið að flestir hafa haft konur á
sínum atkvæðaseðli en ekki nógu
ofarlega til að fleiri nái kjöri en sú
eina kona sem þar situr nú með
sóma fyrir hönd Reykvíkinga,
Ragnhildur Helgadóttir ráðherra.
Þær konur sem nú bjóða sig fram
í prófkjöri flokksins eru allar sér-
lega frambærilegar og mundi hver
þeirra um sig sóma sér vel í öruggu
sæti á listanum. Ég ætla ekki að
gera upp á milli þeirra en ítreka
þá skoðun mína að listinn muni í
lokin verða mun sterkari ef fleiri
en ein kona og helst fleiri en tvær
lendi þar í öruggu sæti.
Höfundur er hagfræðingur þjá
Seðlabonka tsl&nds.
Sólveig Pétursdóttir er okkar maöur
Sjálfstædisflokkurinn í Reykjavík stefnir að
sigri í næstu Alþingiskosningum. 7/7 þess að
svo megi verða þurfum við að stilla upp
sterkum lista, - lista sem höfðar til allra
aldurs- og þjóðfélagshópa. Sólveig Péturs-
dóttir er 34 ára lögfræðingur, sem myndi
styrkja þingflokk Sjálfstæðismanna með
þekkingu sinni og áhuga.
Stuðningur við Sólveigu í prófkjörinu 18.
október mun stuðla að sterkum lista, starfi
okkar og stefnu til framdráttar.
Kosningaskrifstofan að Suðurlandsbraut 4,
3ju hæð er opin frá kl. 14.00-21.00, sími
38303 og 84990.
Veljum
Só/veigu Pétursdóttur
sæti meóa/ efstu manna
i prófkjörínu.