Morgunblaðið - 16.10.1986, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 16.10.1986, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, FTMMTUDAGUR 16. OKTÓBER 1986 Konur 1 prófkjöri Sjálfstæðisflokksins eftirBjörn Matthíasson Nú þegar próflqor Sjálfstæðis- flokksins í Reykjavík fer í hönd, er vert að veita því athygli að uppstill- ing frambjóðenda er á þann veg að hægt er að skipta þeim í fjóra aðalhópa. í þeim fyrsta eru núver- andi eða fyrrverandi þingmenn flokksins, í öðrum er hópur nokk- urra ungra manna sem þegar voru á listanum í síðustu kosningum eða hafa talsvert komið við sögu í flokksstarfinu. Þeir hafa góða ástæðu til að ætla að nú geti þeir náð talsverðu fylgi_ og hugsanlega komist inn á þing. í þriðja hópnum eru fjórar konur sem allar hafa komið við sögu í starfí flokksins en hafa hvergi nærri sýnt það at- kvæðaaðdráttarafl sem tveir hinir næsttöldu hópar hér á undan hafa þegar sýnt. í fjórða og síðasta hópn- um eru tveir menn sem aldrei hafa komið við sögu stjómmála áður. Eftir reynslu af síðasta prófkjöri flokksins til Alþingiskosninga hér í Reykjavík að dæma má ætla að núverandi og fyrrverandi þingmenn fíokksins fái flest atkvæði. Þar sem það eru fyrst og fremst flokksmenn sem taka þátt í prófkjörinu er það ekki ólíklegt að þeir haldi sig við þá þingmenn og frammámenn flokksins sem þeir þekkja nú þegar og raði þeim í efstu sætin. Þar á eftir má telja líklegt að þeir raði upp þeim sömu mönnum og síðast fengu flest atkvæði á eftir öruggu sætunum. Þetta þýðir það að þær fjórar konur sem nú eru í framboði og ekki eru þingmenn raðist á listann á eftir ofangreindum tveim hópum, þ.e. þær lendi nokkuð neðarlega og alls ekki neins staðar í nálægð við örugg sæti. Útkoman úr slíku prófkjöri mundi þégar í stað vera túlkuð af andstæðingum flokksins sem and- staða flokksmanna við konur. Og hér ber að hafa það hugfast að aðrir flokkar hafa ekki stillt upp á sína lista fyrir næstu kosningar og hafa því það forskot fram jrfir Sjálf- stæðisflokkinn að geta stillt upp með fullu tilliti til þess sem Sjálf- stæðisflokkurinn er búinn að gera. Það skal vera kaldhæðni örlag- anna að prófkjörsdýnamikin kunni að verða til þess að ýta konum til hliðar á lista hjá flokki sem gegnum árin hefur haft tiltölulega fleiri kon- Björn Matthíasson „Því er þessi grein skrifuð til að benda fylgismönnum Sjálf- stæðisf lokksins á að til þess að góður og fram- bærilegur listi komi út úr prófkjörinu verði fleiri konur að komast í örugg sæti.“ ur í sínum þingmannaröðum en aðrir flokkar. Því er þessi grein skrifuð til að benda fylgismönnum Sjálfstæðis- flokksins á að til þess að góður og frambærilegur listi komi út úr próf- kjörinu verði fleiri konur að komast í örugg sæti. Það mun ekki gerast nema fjöldi sjálfstæðismanna setji fleiri en þijár konur í efstu sætin, því eitt einkenni á útkomu undan- farinna prófkjöra hefur einmitt verið að flestir hafa haft konur á sínum atkvæðaseðli en ekki nógu ofarlega til að fleiri nái kjöri en sú eina kona sem þar situr nú með sóma fyrir hönd Reykvíkinga, Ragnhildur Helgadóttir ráðherra. Þær konur sem nú bjóða sig fram í prófkjöri flokksins eru allar sér- lega frambærilegar og mundi hver þeirra um sig sóma sér vel í öruggu sæti á listanum. Ég ætla ekki að gera upp á milli þeirra en ítreka þá skoðun mína að listinn muni í lokin verða mun sterkari ef fleiri en ein kona og helst fleiri en tvær lendi þar í öruggu sæti. Höfundur er hagfræðingur þjá Seðlabonka tsl&nds. Sólveig Pétursdóttir er okkar maöur Sjálfstædisflokkurinn í Reykjavík stefnir að sigri í næstu Alþingiskosningum. 7/7 þess að svo megi verða þurfum við að stilla upp sterkum lista, - lista sem höfðar til allra aldurs- og þjóðfélagshópa. Sólveig Péturs- dóttir er 34 ára lögfræðingur, sem myndi styrkja þingflokk Sjálfstæðismanna með þekkingu sinni og áhuga. Stuðningur við Sólveigu í prófkjörinu 18. október mun stuðla að sterkum lista, starfi okkar og stefnu til framdráttar. Kosningaskrifstofan að Suðurlandsbraut 4, 3ju hæð er opin frá kl. 14.00-21.00, sími 38303 og 84990. Veljum Só/veigu Pétursdóttur sæti meóa/ efstu manna i prófkjörínu.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.