Morgunblaðið - 16.10.1986, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. OKTÓBER 1986
25
Fjölskyldan og*
forystuleysi
stjómmálamanna
eftirEsther
Guðmundsdóttur
„Til þess að jafnrétti
verði að veruleika er
það aðkallandi verkefni
fyrir stjórnmálamenn
að hlutat til um að á
vinnumarkaði verði
spilin stokkuð upp
þannig að núverandi
starfsmat verði endur-
skoðað og gamla slag-
orðið um „sömu laun
fyrir sömu vinnu“ verði
að veruleika.“
í málflutningi mínum fyrir það
prófkjör sjálfstæðismanna til Al-
þingis sem nú stendur fyrir dyrum
hef ég haldið því fram að á undan-
fömum árum hafi hagur fy'ölskyld-
unnar verið fyrir borð borinn og
að hann þurfti að rétta. Fjölskyldan
í nútímaþjóðfélagi verður að sjálf-
sögðu aldrei hin sama og fjölskyld-
an hér í Reykjavík fyrir 30—40
árum. Tímamir em breyttir, en fjöl-
skyldunni sem stofnun hefur ekki
verið gert kleift að aðlaga sig
breyttum aðstæðum og halda þann-
ig sessi sínum í þjóðfélaginu. Frá
alda öðli hefur hún verið homsteinn
þjóðfélagsins en sá homsteinn
stendur því miður ekki á traustum
gmnni lengur.
Hvarvetna blasa við merki um
þetta. Böm sem ganga meira og
minna sjálfala, fíkniefnavandamál,
stofnanir fyrir ungviði sem lent
hefur á glapstigum, óheyrileg úti-
vinna beggja foreldra, láglauna-
kerfí, húsnæðiskerfí sem fram undir
þetta hefur ekki gegnt hlutverki
sínu, vegalaus gamalmenni og
sífelld fjölgun hjónaskilnaða. Liður
í þessari óheillaþróun er án efa að
oft er til fjölskyldu stofnað án þess
að aðilar geri sér grein fyrir þeirri
ábyrgð sem þeir takast á hendur
fyrr en í óefni er komið. Þótt hér
sé stiklað á stóm má það hverjum
manni ljóst vera að það er löngu
tímabært að taka í taumana — með
hag fjölskyldunnar að leiðarljósi,
en ekki með tilliti til stundarhags-
muna síbreytilegra þrýstihópa, eins
og alltof oft hefur orðið raunin. Hér
er ekki verið að gera lítið úr einstök-
um þrýsti- eða hagsmunahópum
sem hafa bmgðið á það þrautaráð
að einangra hluta vandans sem
þeir standa frammi fyrir og knýja
fram einhveija bót á málum sínum.
Hér er einungis vakin athygli á
þeim afleiðingum sem forystuleysi
stjómmálamanna hefur haft.
En hvemig þarf forystan í mál-
efnum flölskyldunnar að vera?
Þetta er mikil og margslungin
spuming í samræmi við efnið og
svarið við henni getur aldrei orðið
einfalt. Málefni fjölskyldunnar em
málefni einstaklingsins og fyrsta
spumingin sem svara þarf er sú
hvemig nálgast beri viðfangsefnið.
Á að gera það að hætti vinstri
manna sem sjá ekkert athugavert
við það að láta einstaklinginn lönd
og leið þegar hagsmunir heildarinn-
ar em í húfí — eða að hætti sjálf-
stæðismanna sem vilja taka tillit til
einstaklingsins?
Ef stjómun að ofan og miðstýr-
ingarsjónarmið eiga að ráða örlög-
um einstaklingsins og þar með
fjölskyldunnar kemur það af sjálfu
sér að fylgt er vinstri stefnu í stjóm-
málum. Sé ætlunin hins vegar sú
að búa þessum minnstu einingum
þjóðfélagsins sæmandi lífsskilyrði
er óhjákvæmilegt að fylgja stefnu
Sjálfstæðisfiokksins. Stefna Siélf-
Esther Guðmundsdóttir
stæðisflokksins er ekki gróða-
hyggja í þágu forréttindahópa
heldur er hún íslensk mannúðar-
stefna sem felur í sér jafnrétti á
öllum sviðum.
Til þess að jafnrétti verði að vem-
leika er það aðkallandi verkefni
fyrir stjómmálamenn að hlutast til
um að á vinnumarkaði verði spilin
stokkuð upp þannig að núverandi
starfsmat verði endurskoðað og
gamla slagorðið um „sömu laun
fyrir sömu vinnu" verði að vera-
leika. Það er líka verkefni stjóm-
málamanna að öllum bömum þessa
lands verði sköpuð góð uppeldisskil-
yrði og þannig í haginn búið fyrir
ungt fólk að það hafí jafna aðstöðu
til að nýta hæfíleika sína og velja
sér ævistarf í samræmi við einstakl-
ingsbundna eiginleika sína, þannig
að það hafí jafna aðstöðu til að
uppskera svo sem sáð er til.
Höfundur er markaðsstjóri Spari-
sjóðs Reykjavíkur og nágrennis
og þrettándi i prófkjöri Sjálfstæð-
isflokksins iReykjavik.
Við erum
eð teka
heim nýja
stóra sendingu
af Pallas-hornsófum
og sófasettum
ogverðineru
semáður
þau bestu í bænum
6 sæta hornsófar á kr. 53.820,-
og sófasett 3+1+1 á kr. 51.540,-
Nú borgar sig að koma strax
og panta sett
P húsgs
húsgagnahöllin
EE3233 BÍLDSHÖFÐA 20 - 112 REYKJAVÍK 91 -681199 og 681410
Haustlauka
1S~§Q%
NO Sígur á hausteutotímann. Allir haust,aukar eru nu a storiaekkuð
verði. Notiðtaekifserið.
x. . .... 1 nn cttk. laukari kassa .nn
Dæmiumverð: m
10 stk. lágvaxnirTultpanar ... ^ .
10 stk. margblómaTulipana . .
10 skt. tvl'tir Túlípanar.
1 oo stk. laukar í kassa ^gg
7 mism. tegundir......
Blömun!
inwHVxa vtðawmoW