Morgunblaðið - 16.10.1986, Side 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. OKTÓBER 1986
Reykjavíkurfundurinn:
Erlendir
blaðamenn
láta vel
af aðbúnaði
Á MEÐAN Reykjavíkurfund-
inum stóð dvaldi hér mikill
fjöldi erlendra blaðamanna
og undruðust sumir aðfarirn-
ar þegar verið var að und-
irbúa fundinn, sem haldinn
var með ellefu daga fyrir-
vara. Flestir virtust hæstán-
ægðir með aðbúnaðinn, eins
og kemur fram í lýsingu
breska blaðamannsins Micha-
el Binyon, við The Independ-
ent, hér á eftir:
„Hvað valið á fundarstaðnum
varðar, eru blaðamenn á einu
máli um að það hafí verið ein-
stakt. Margir frábærir veitinga-
staðir, vingjamlegir leigubílstjór-
ar, gott símkerfí, heitar laugar og
frekar frumlegir og óvenjulegir
skemmtistaðir kunna öðru fremur
að hafa haft áhrif á þennan dóm.
„Miklu betra en Sviss", var
setning sem íbúar landsins kunnu
vel að meta og hefúr vakið vonir
sumra um að haldnir verði árlegir
fundir stórveldanna, þar sem
„Reykjavíkurandans" yrði minnst.
Aðeins fundarmenn sjálfír, úr-
vinda eftir 10 klukkustunda
maraþonnæturfundi um afvopnun-
armál, flug til Brússel og Austur-
landa til þess að skýra
bandamönnum sínum frá árangri
fundarins, kynnu að vonast til
þess að fundir haldnir í Washing-
ton eða Moskvu yrðu aðeins
rólegri."
Leiðtogar stórveldanna:
Telja að samn-
ings möguleikar
séu enn verulegir
Washington og New York, AP.
LEIÐTOGAR stórveldanna, þeir
Ronald Reagan og Mikhail
Gorbachev, kenna enn hvor öðr-
um um ófarirnar í Reykjavík, en
þó hefur borið á jákvæðari yfir-
Iýsingum undanfama tvo daga.
Hafa báðir aðilar lýst yfir samn-
ingsvilja sínum um að vígbúnað-
arkapplaupið skuli stöðvað.
Vitað er að samningamenn
Bandaríkjastjórnar í Genf hafa
fengið ný fyrirmæli, svo að af-
vopnunarviðræðumar þar miðist
við viðræður leiðtoganna á
Reykjavíkurfundinum.
Dudley Herschbach og dóttir hans, Brenda, fagna fréttinni um, að
honum hafi verið veitt Nóbelsverðlaunin.
Nóbelsverðlaunin í efnafræði:
Veitt 3 mönnum fyrir rann-
sóknir á efnahvörfum
Stokkhólmi, AP.
ÞRÍR vísindamenn hlutu i sam-
einingu Nóbelsverðlaunin í efna-
fræði að þessu sinni. Þeir era
Bandaríkjamennimir Dudley R.
Herschbach, prófessor við Har-
wardháskóla, Yuan T. Lee,
prófessor við Kalifomíuháskóla
og John C. Polanyi, prófessor við
háskólann i Toronto i Kanada.
Bandaríkin:
Þingnefndir
samþykkja fjár-
lög fyrir sljórn
Yuan T. Lee.
Fengu þeir verðlaunin fyrir
rannsóknir sínar á efnahvörfum.
í greinargerð sænsku akade-
míunnar fyrir verðlaunaveitingunni
segir, að þessir þrír menn hafí gert
mjög merkilegar uppgötvanir á
vettvangi eðlisefnafræði, sem haft
hafi afar mikla þýðingu fyrir skiln-
ing á efnahvörfúm.
Yuan Lee er fæddur 1936 á Ta-
John Polanyi.
iwan og er hann lfkt og Polanyi,
sem er 57 ára og af þýzkum upp-
runa, í hópi þeirra mörgu vísinda-
manna, sem flutzt hafa til Norður-
Ameríku frá heimalandi sínu á
þessari öld.
Dudley R. Herschbach er fæddur
1932 í San Jose í Kalifomíu. Hann
hefur verið prófessor við Harvard-
háskóla síðan 1963.
Utanríkisráðherrar stórveld-
anna hyggjast hittast í Vínarborg
hinn 5. nóvember, en þeir verða
þar ásamt fulltrúum 33 annarra
ríkja til þess að ræða Helsinki-
sáttmálann. Shultz sagði að ætlun
hans væri að hefja viðræður þær,
er slitið var í Reykjavík, að nýju.
Að undanfömu hafa Reagan,
Shultz og fleiri háttsettir embætt-
ismenn Bandaríkjastjómar kynnt
málstað stjómarinnar og afstöðu
mjög rækilega. Þrátt fyrir að þeir
hafí sagt að langt hafí miðað og
áfram skuli haldið veginn, hefur
hvergi verið gefíð til kynna að
rannsóknir við geimvamaáætlun-
ina verði bundnar við rannsóknar-
stofur.
Gorbachév lítur á geimvamaá-
ætlunina sem beina ögrun við
Sovétríkin. í sjónverpsávarpi sínu
til þjóða Sovétríkjanna sagði hann
það ásetning Bandaríkjamanna að
láta „Sovétríkjunum blæða út
efnahagslega" með því að heyja
dýrt vígbúnaðarkapphlaup í
geimnum.
Reagan sagði að í gær að enn
væm möguleikar á samningum og
að á Reykjavíkurfundinum hefði
verið lagður grundvöllur, sem
hægt væri að byggja afvopnunar-
samninga á. Gorbachev sagði á
hinn bóginn að ekki mætti hætta
viðræðum og að Reykjavíkurfund-
urinn gæti orðið upphafíð að
mikilli breytingu til batnaðar.
Washington, AP.
SAMNINGAMENN fulltrúa- og
öldungadeildar Bandaríkjaþings
komust að samkomulagi 560
miljjarða dollara fjárlagaáætlun
fyrir næsta fjárhagsár. Aætlunin
nær yfir fjárframlög til bæði
hemaðar- Og innanrikiamála.
Formaður nefndarinnar, sem
gerði áætlunina, demókratinn
Famie L. Whitten, kvaðst ætlaði
að leggja áætlunina undir atkvæði
þingsins í gærkvöldi.
Afgreiðsla þessarar áætlunar
gæti stuðlað að því að þinginu verði
slitið, en það hefur nú setið tveimur
vikum lengur en áætlað var til að
Ijúka af ókláruðum málum.
Fjárlagastjóri Ronalds Reagan
Bandarílq'aforseta, James C. Miller
III., sagði að í samkomulaginu um
framlög til vamarmála og erlendrar
aðstoðar hefðu flestir vankantar
verið sniðnir af. Aftu á móti hefði
ekki verið ákveðið hvort Reagan
skrifí undir eða beiti neitunarvaldi.
Berlín:
Upp stiga og
yfir múrinn
Berlin, AP.
TVEIR Austur-Berlínarbúar flúðu
yfir tu Vestur-Berlínar í septem-
ber með þvi að nota stiga til að
komast yfir Berlínarmúrinn.
Að sögn Hans Birkenbeul, tals-
manns innanríkisráðuneytisins, tóku
austur-þýskir landamæraverðir ekki
eftir mönnunum þegar þeir flúðu.
Nokkrar vikur eru liðnar síðan tve-
menningamir flúðu yfir múrinn, en
yfírvöld hafa ekki staðfest þetta fyrr
en nú eftir að frásögn birtist af flótt-
anum I Hamborgarblaðinu Bild.
í blaðinu sagði að Jan Peter Múll-
er, múrari, og Bemd Hansen, lása-
smiður, hefðu klifrað yfir múrinn
skömmu áður en grýja tók af degi
einn morguninn og gengið yfir Bom-
holmer-brúnna sem leið lá í hverfíð
Wedding, sem er í franska hluta
Vestur-Berlínar.
Þegar Múller og Hansen voru
komnir yfir múrinn stóðu þeir við
brúarsporðinn um 200 m frá klefa
austur-þýsku varðanna „og hnén á
okkur skulfu eins og lauf í vindi,"
sagði Múller. „Við kveiktum okkur í
sígarettum og gengum yfír brúnna."
Nóbelsverðlaun í eðlisfræði:
Veitt fyrir smugsjá
og rafeindasmásjá
Stokkhólmi, AP.
ERNST Ruska, prófessor við
Fritz Haber-stofnunina í Vest-
ur-Berlín, fékk helming Nób-
elsverðlaunanna í eðlisfræði,
en þau nema um 11,6 milljónum
íslenskra króna. Hinum helm-
ingnum skiptu Þjóðveijinn Dr.
Gerd Binnig og Svisslendingur-
inn Dr. Heinrich Rohrer á milli
sín, en þeir vinna báðir hjá IBM
í Zlirich. Ruska fékk verðlaunin
fyrir að hafa fundið upp raf-
eindasmásjána og þeir félagar
Binnig og Rohrer fyrir að hafa
fundið upp smugsjána.
Sænska vfsindaakademfan veit-
ir verðlaunin og sagði í tilkynn-
ingu hennar að störf mannanna
þriggja hefðu reynst ómetanleg í
þágu iíffræði og læknavísinda.
Um brautryðjendastörf Ruska
sagði að uppfinning hans hefði
reynst „ein sú mikilvægasta á
þessari öld“.
Binnig og Roher tókst fyrstum
allra að smfða smugsjána, sem
er ekki hefðbundin smásjá, en
þeir hafa unnið saman á rann-
sóknarstofum IBM f Zúrich.
„Ástæða þess að þeim tókst það
sem öðrum tókst ekki, var hin
einstaka nákvæmni f allri gerð
tækisins".
Þetta er annað árið f röð, sem
Vestur-íjóðverjar fá hin eftirsóttu
Nóbelsverðlaun í eðlisfræði, en frá
stríðslokum hefur mest borið á
Bandaríkjamönnum á þessu sviði.
Hönnun rafeindasmásjárinnar
hófst þegar á þriðja áratugnum,
en þá var Ruska enn stúdent við
Tæknihákóla Berlínar. Árið 1933
smfðaði hann fyrstu rafeindasmá-
sjána, sem tók hefðbundnum
smásjám langt fram. Síðan þá
hefur Ruska þróað ýmsar tegund-
ir rafeindasmásjáa.