Morgunblaðið - 16.10.1986, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ, FTMMTUDAGUR 16. OKTÓBER 1986
43
Stiörnu-
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
í dag ætla ég að §alla um
samband Vogar (23. sept. —
22. okt.) og Fisks (19. feb.
— 19. mars). Einungis er
fjallað um hið dæmigerða
fyrir merkin og eru lesendur
minntir á að hver maður á
sér nokkur stjömumerki.
Aðrir þættir hafa því einnig
áhrif hjá hveijum og einum.
Ólík merki
Vog og Fiskur eru ekki lík
merki en eiga samt sem áður
sameiginlega þætti. Bæði
merkin eru það sem við get-
um kallað mjúk og sveigjan-
leg. Þau ættu því ekki að
rekast á hvort annað, bæði
eru friðsöm, og eiga því auð-
velt með að vinna saman.
Það sem helst er ólíkt er að
Vogin er hugmyndamerki en
Fiskurinn tilfinningamerki.
Viðhorf þeirra til lífsins og
viðfangsefna er því ólíkt,
Vogin mætir heiminum með
hugsun en Fiskurinn tilfinn-
ingum.
Skilningsrík
Vogin vegur og metur allar
hliðar hvers máls og Fiskur-
inn reynir að skilja allt.
Bæði merkin eru því skiln-
ingsrík en sennilega hefur
Fiskurinn vinninginn því
hann dæmir yfirleitt aldrei.
Þó Vogin reyni að skilja tek-
ur hún ákveðna afstöðu
þegar hún getur velt málun-
um fram og aftur. Hún er
því ákveðnari.
Mislyndi
Það sem helst gæti leitt til
árekstra er að Fiskurinn á
til að vera óljós og eiga erf-
itt með að tjá sig um tilfinn-
ingar sínar og líðan. Hann
er einnig oft á tíðum feim-
inn, hlédrægur og mislyndur,
á til að draga sig í hlé og
einangra frá umhverfinu.
Vogin, sem er opin, félags-
lynd ogjafnari í skapi, getur
átt erfitt með að skilja sveifl-
ur og dynti Fisksins. Fiskur-
inn getur aftur á móti átt
erfítt með að umgangast allt
það fólk sem Vogin vill
þekkja. Hann er það við-
kvæmur að honum lyndir
ekki við hvem sem er.
FegurÖ
Ef Vog og Fiskur búa sann
an, ef önnur merki, Tungl
eða Rísandi, eiga vel saman,
má búast við að þau eigi
fallegt og listrænt heimili.
Þegar talað er um fegurð i
sambandi við Vog er rétt að
geta þess að ekki er átt við
Ajax-hreinleika og 100%
snyrtimennsku, röð og reglu,
sem er frekar einkennandi
fyrir hina dæmigerðu Meyju.
Vogin hefur gott auga fyrir
samsetningu lita og vill að
ákveðin mýkt og fríður ein-
kenni umhverfið. Tónlist
getur einnig verið áberandi
þegar þessi tvö merki eru
saman, svo og áhugi á leik-
húsi og dansi svo nokkuð sé
nefnt.
Þœgilegt fólk
Eins og áður var getið, eru
þessi merki mjúk, þægileg
og tillitssöm í umgengni. Því
höfum við hér par sem býður
af sér góðan þokka og ætti
að eiga auðvelt með að miðla
málum. Það sem þau þurfa
helst að taka tillit til ( farí
hvors annars er að Vogin
þarf að skilja viðkvæmni
Fisksins og þörf til að draga
sig ( hlé annað slagið og
hreinsa sig. Fiskurinn þarf
að geta farið á vit drauma-
heimsins. Fiskurinn þarf
aftur á móti að skilja félags-
lega þörf Vogarinnar og
varast að setja sig upp á
móti því að hún umgangist
aðra en hann.
X-9
rthVU 1 LI&SAUM. S£áÐU ) J/í/
t?£U~1 AP j V/P 1/SfíPl/Af AP
/<££>JC/ OáAKXSfí/ A ÍSET/A HANA! í /
© l»*S Ktng F««tur«s Syndlcatc. Inc. WorId rights reserved.
GRETTIR
ER. HIMM LAGLBGI KOTTVR VIR.TI
"fvrir sér heimskona í kRjns-
UM SlG.HMVICKTI H4.MN AFRjl?
HOFPIMU 5KELU-
HUÆOJAMDl--
HA'HAÍ
( oe PATT pA \
I NIE?UR AP /
' 5TOLNUAd )
©1986 United Feature Syndicate.lnc.
TOMMI OG JENNI
. Hirrsrírri i ióqka
7 _ ' —TT / ' —rT7r-—rv —rr.T . ... \
!f!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!l!!!!!!!!!!!!!!!!!??!T!?!!??!!!!!!!!!!!!!i!i!!!!;!!?!!!!!!;!!!!!!!!?
::::::::::::::::::
FERDINAND
SMAFOLK
B0NJ0UR,M0N5IEUR...
MOU) ARE YOU FEELIN6
TOPAV? I BR0U6HT YOU
A NEW5PAPER...
I TH0U6HT VOU MI6HT
LIKETOMAVEME REAP
TO VOU...THE UJAR IS ®
5TILL 60IN6 BAPLV...
-I
THE TR00P5HIP ‘‘LEVIATHAN "
POCKEP AT BRE5T UIITH
TEN TH0U5ANPMEM ABOARP/
F0URTH0U5ANP OFTHEM
HAP THE FLU..
Góðan dag, Monsieur___
Hvernig líður þér núna?
Ég kom með blað fyrir
þig...
Mér datt i hug að þú vild-
ir láta mig lesa fyrir
þig... striðið gengur
enn illa ...
Herflutningaskipið „Le-
viathan" iiggur við
bryggju í Brest með tíu
þúsund menn innan-
borðs, fjögur þúsund
þeirra eru með flensu ...
Áttu
blöð?
ekki nein hasar-
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Á heimsmeistaramótunum
Miami í Bandaríkjunum í síðasta
mánuði var úthlutað hinum
ýmsu verðlaunum, sem Alþjóða-
samband bridsfréttamanna
veitir árlega. Ein venðlaunin eru
fyrir besta úrspilið. í þetta sinn
hlaut Frakkinn Henri Svarc þau,
fyrir spil sem hann spilaði í des-
ember sl. í úrtökumóti fyrir HM
í Miami. Svarc hélt á spilum
suðurs og var sagnhafi i sex
tíglum:
Norður
♦ ÁK4
VÁG2
♦ 8532
♦ 1054
Vestur Austur
♦ D108752 .. ♦ G93
♦ 83 | ♦ D107654
♦ 6 ♦ 9
♦ Á973 +D83
Suður
♦ 6
♦ K9
♦ ÁKDG1074
♦ KG2
í sögnum hafði austur doblað
fyrirstöðusögn norðurs í hjarta,
svo vestur spilaði út hjartaátt-
unni. Svarc setti lítið úr blindum
og drap tíu austurs með kóng.
Það er fljótgert að sjá að spil-
ið veltur á því hvemig farið
í laufið. Auðvitað hafði Svarc
50% möguleika á að hitta á réttu
aðferðina, en hann fann leið til
að losna við þá ágiskun. Sú leið
byggðist að vísu á hjálp frá
vestri.
Svarc tók öll trompin nema
eitt. Vestur þurfti að finna fimm
afköst og hver getur láð honum
að henda þremur spöðum og
einu hjarta? Svarc tók þá tvo
efstu í spaða og trompaði spaða
með síðasta trompinu sínu! !
lokastöðunni átti hann eftir í
borðinu ÁG í hjarta og eitt lauf,
og heima eitt hjarta og KG í
laufi. Austur þurfti auðvitað að
halda eftir drottningunni vald-
aðri í hjarta, svo hann gat aðeins
verið á einu laufi. Svarc var
sama hvort það var drottningin
eða ásinn; hann spilaði gosanum,
og þegar vestur fór að hugsa
sig um lagði hann upp.
Eins og spilið var, gat vestur
valið um að setja lítið og leyfa
makker sínum að eiga slaginn á
drottninguna — þá fengi Svarc
síðustu tvo slagina á hjarta í
blindum; hinn möguleiki vesturs
var að fara upp með ásinn og
fría þar með kóng suðurs. Það
þarf ekkí að taka það fraai hvaír*
hefði gerst ef austur hefði átt
laufásinn.
SKAK
Umsjón Margeir
Pétursson
Hollenska vömin (1. d4 — f5)
er vandtefld byrjun fyrir svart og
hér á stöðumyndinni sézt í hvers
konar úlfakreppu svartur getur
lent ef hann heldur ekki rétt á
spöðunum. Alþjóðlegi meistarinn
Granda Zuqjiga frá Perú hafðr
hvítt og átti leik gegn Spánverjan-
um Blescanes á opnu móti á Spáni
í síðasta mánuði.
Hvíti hrókurinná h4 er króaður
inni, en það kom ekki að sök: 33.
Bxg5! og svartur sá sér þann
kost vænstan að gefast upp, því
eftir 33. — hxg5, 34. Rxg5 er
hann gjörsamlega vamarlaus.
Hvítur getur ótmflaður leikið 35.
Dg6 og 36. Hh7.