Morgunblaðið - 16.10.1986, Síða 59
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. OKTÓBER 1986
59
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
691100 KL. 11-12
FRÁMÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
Er akkur í
heimsfrægðinni?
Hvers eiga
stórar kon-
ur að gjalda?
••
Ollum stórum
konum svarað
Hjá versluninni Jénný Frakkastíg
14, getur þú keypt kvensíðbuxur í
hvaða stærð sem þú óskar.
Fatagerðin Jenný hefur um 3ja
ára skeið framleitt og selt kvenfatn-
að í stórum númerum. Á lager eru
framleiddar buxur upp í no. 38
tommur, en sé þörf á stærri fatnaði
saumum við eftir máli. Við fram-
leiðum bæði sígildan fatnað og
tískufatnað, eftir okkar sniðum eða
sniðum viskiptavina.
Framkvæmdastjóri
Stöð 2
bjargaði
miklu
Jóhannes Proppé skrifar:
Stöð 2 bjargaði miklu þessa fjóra
daga sem hún starfaði meðan að
leiðtogafundurinn tröllreið öllum
fjölmiðlum. Forsjónin hefur tekið f
taumana og látið stöðina bila á
þann hátt að hún gat einbeitt sér
að skemmtiefni en ekki tekið þátt
í „frétta" vitleysunni.
Því miður sé ég mér samt ekki
fært að kaupa „afruglarann", ekki
vegna þess að mér líki ekki efni
stöðvarinnar, þar hafa komið marg-
ir stórgóðir og skemmtilegir
amerískir þættir, heldur vegna þess
að ég er neyddur til að kaupa tæk-
ið á einum stað. Ekkert val, alger
einokun. Það er helv... hart að stöð
sem auglýsir sig sem boðbera frels-
is og státar af því að hafa brotið
einokun ríkisfjölmiðla á bak aftur
skuli svo koma fram á þennan hátt.
Ég bíð eftir fijálsri samkeppni.
P.s. Mætti ég benda hinni nýju
stöð á að halda sér við auglýsta
tíma - ekki byija „pínulítið" á und-
an. Og annað: getið þið ekki komið
með Lucy Ball þættina. Að vísu eru
þeir sumir í svart hvítu, en eru svo
stórkostlegir að maður fær krampa
af hlátri.
„Ein á báðum áttum“ skrifar:
Upplýsingar hfa borist úr ferða-
þjónustunni um aukinn fjölda
erlendra ferðamanna til íslands á
þessu ári, ekki síst frá Bandaríkjun-
um. Sumir rekja þetta til þess að
Bandaríkjamenn þori ekki að ferð-
ast til meginlands Evrópu af ótta
við hryðjuverk, en þeim hafi verið
bent á að hér úti á hjara gætu þeir
verið óhultir því að hryðjuverka-
menn hefðu aldrei látið á sér kræla
hér á landi.
Síðan kom leiðtogafundurinn upp
í hendumar á okkur og rækilega
auglýst að honum hefði verið valinn
staður hér vegna þess að hér væm
engir hryðjuverkamenn. Frétta-
menn töngluðust á að meiri land-
kynningu væri ekki hægt að hugsa
sér og fólk á götum úti greip það
á Jofti sbr. svör þess í fjölmiðlum:
„Ágætis auglýsing fyrir ísland",
„Góð landkynning", „Vekur athygli
á íslandi sem ferðamannalandi",
„Beinir athygli heimsins að íslandi"
o.s. frv.
Þessir hringdu . . .
Gleraugu í
Vesturbænum
Kona hringdi:
Ég týndi gleraugunum mínum
í Vesturbænum, ég held á Ásvalla-
götu, Hofsvallagötu eða Hring-
braut. Vinsamlega láttu mig vita
í s. 26423 ef þú hefur fundið þau.
Upp á líf og
dauða
Kattarvinur hringdi:
Á vegi mfnum, í Rafstöðvar-
hverfinu, varð stór og bráðlagleg-
ur högni. Hann er svartur með
hvítar tæ_r, ljósan háls og hvít
veiðihár. Ég bið eiganda kattarins
að hafa samband sem allra fyrst
upp í Víðidal á dýraspítalann þar,
því þangað fór ég með högnann.
Látið leik-
tækjasam-
stæðuna við
Borgarleik-
húsið standa
Vigdís hringdi:
Ég vil þakka borgaryfírvöldum
það framtak að láta reisa leik-
tækjasamstæðu við Borgarleik-
húsið. Jafnframt vil ég vekja á
því athygli að þetta er eina opna
svæðið með leiktækjum í nýja
miðbænum og þvf kærkomið böm-
um í hverfínu sem hingað til hafa
leitað í freistandi hættur sem
fylgja hverfum í byggingu.
Eg vona að leiktækin fái að
standa sem lengst.
En er þessi auglýsing á landinu
til góðs? Erum við viðbúin að axla
þá ábyrgð að hingað flykkist erlend-
ir ferðamenn í auknum mæli? Erum
við viðbúin að taka á móti þeim á
sómasamlegan hátt? Höfum við til
þess nægilega þjálfað fólk? Hvemig
er staðið að menntun fólks í ferða-
þjónustu hér á landi? Getum við
eftirleiðis tryggt ferðamönnunum
það öryggi sem við höfum gumað
af? Hvað ef hryðjuverkamenn upp-
götva ísland, að ekki sé talað um
þá staðreynd sem vinkona forseta
okkar auglýsti svo rækilega í einu
dagblaðinu um daginn, að við for-
setasetrið væri engin öryggisgæsla?
Er ekki ansi tvíeggjað að opinbera
þetta í fjölmiðlum og velqa á því
athygli?
Síðast liðinn laugardag birtist svo
frétt á baksíðu Morgunblaðsins þar
sem látið var liggja að því að hryðju-
verkamenn væra eða hefðu verið á
leið til íslands. Mér era því ofarlega
í huga spumingar sem ég vil beina
til annarra: Er okkur slíkur akkur
í heimsfrægðinni sem látið er í veðri
vaka? Getur það ekki líka verið
kostur að búa afskekkt, fjarri
heimsins glaumi? Hefur það ekki
einmitt verið það sem ferðamenn-
imir hafa verið að sækjast eftir
hér, fámenni, öryggi og kyrrð? Og
hvað um okkur sjálf?
SJÁLFSTÆÐISMENN REYKJAVÍK!
RÚNAR Á ÞING
Kosningaskrifstofa, Klapparstíg 26 e.h. s. 28843.
Iðnaðarhúsnædi
Höfum til leigu 270 fm iðnaðarhúsnæði á jarðhæð,
við Dalbrekku í Kópavogi.
Uppl. í síma: 46688 og 30768.
Hjartanlegar þakkir til barna minna, tengda-
barna, barnabarna, vina og vandamanna sem
glöddu mig meÖ heimsóknum, gjöfum, blóm-
um og skeytum á 70 ára afmœli mínu þann
11. október sl. Sérstakar þakkir flyt ég kven-
félaginu Gefn fyrir mikinn höföingsskap mér
til handa.
GuÖ blessi ykkur öll.
Sigrún Oddsdóttir,
Nýjalandi, Garði.
Innilegar þakkir flyt ég öllum þeim einstakling-
um, félögum og stofnunum er sýndu mér
hlýhug og vinsemd á 80 ára afmceli mínu 5.
októbersl. með nœrveru sinni, gjöfum, blómum
og skeytum.
Sigurður Gunnlaugsson.
Hlíðarvegi 22.
Siglufirði.
STJÓRNANDINN OG HLUTVERK HANS
Stjórnendur fyrirtækja hafa oft tilhneigingu til að
leggja áherslu á atriði er lúta að lausn ákveöinna
verka þar sem árangurinn kemur fljótt I Ijós. En
hlutverk stjórnenda ætti öðru fremur að beinast að
markaðssetningu, stefnumótun, gerð áætlana og
starfshvatningu. Einnig þurfa stjórnendur að gera
sér grein fyrir hlutverki og tilgangi fyrirtækisins.
Markmið: Að gera stjórnendur hæfari til aö meta á
raunhæfan hátt starfssvið fyrirtækja sinna, sem
auðveldar þeim að ná fram markvissara verkefna-
vali, einfaldari og árangursríkari stjórnun.
Efni:
■ Stefnumótun fyrirtækja og deilda
■ Setning markmiða — stjórnun
markmiða.
• Áætlanagerð.
■ Stjórnunarstílar.
■ Ákveðni í stjórnun.
■ Viðurkenning — starfshvatning.
■ Eftirlit — bakveiti (feed-back).
* Gæðaeftirlitshringir kynntir.
Leiðbeinandi: Höskuldur Frímannsson, rekstrar-
hagfræðingur. Forstöðumaður rekstrarráðgjafar-
deildar Skýrsluvéla rlkisins og Reykjavíkurborgar.
Timi: 27,—30. október 1986, kl. 14.00—18.00.
______________________A_________________________________
Scjórnunarfélag------------------
islands
Ananaustum 1S S>mi 6210 6«