Morgunblaðið - 16.10.1986, Qupperneq 64
SEGÐU
[RTIARHÓLL
ÞEGAR
EERÐ ÚTAÐ BORÐA
SÍMI18833-----
SIERKTEORT
FIMMTUDAGUR 16. OKTÓBER 1986
VERÐ í LAUSASÓLU 60 KR.
Vigdís
hittir
páfann
VIGDÍS Finnbogadóttir forseti
íslands hittir Jóhannes Pál páfa
í Vatikaninu á morgun.
Vigdís er stödd í Róm, þar sem
hún heldur í dag aðalræðuna á þingi
FAO. Halldór Reynisson forsetarit-
ari sagði að þegar ljóst varð að
Vigdís færi til Rómar hefði verið
kannað hvort páfinn gæti hitt hana
að máli. „Páfí veitir erlendum þjóð-
höfðingjum, sem staddir eru f Róm,
áheym ef fært er,“ sagði Halldór.
„Fyrr í vikunni varð ljóst að hann
hittir Vigdísi fyrir hádegi á morg-
►un-.“
í gær hitti Vigdís forsætisráð-
herra Ítalíu, Craxi. Eftir að páfínn
hefur veitt henni áheym á föstudag
mun hún hitta forseta Ítalíu,
Cossica.
Soðning-
in hækkar
''jfcVERÐLAGSRÁÐ heimilaði
hækkun á ýsuverði á fundi sínum
í gær. Hámarkssmásöluverð á
ýsuflökum hækkar um 30 krón-
ur, úr 160 krónum í 190, eða um
18,75%. Aðrar fisktegundir
hækka ekki.
Georg Ólafsson verðlagsstjóri
sagði um ástæður þessarar hækk-
unar að fyrra verð hefði verið orðið
óraunhæft vegna vaxandi útflutn-
ings á ýsu í gámum og þess háa
verðs sem fyrir hana fengist. Þessi
útflutningur hefði gert það að verk-
um að ýsan væri að hverfa af
neytendamarkaði hér. Með verð-
hækkuninni væri verið að viður-
kenna staðreyndir og tryggja
^/ramboð ýsu á markaði hér.
Hækkun á
fargjöldum
ÁKVEÐIN hefur verið hækkun
á far- og farmgjöldum í innan-
landsflugi. Var hækkunin
ákveðin í Verðlagsráði í gær og
er hallarekstur á innanlandsflugi
flugfélaganna ástæðan.
Georg Ólafsson verðlagsstjóri
sagði i gær að innanlandsflugið
yrði rekið með tapi á þessu ári þrátt
fyrir þessa hækkun.
*
* " " M
TIMIVETRARDEKKJA KOMINN
Morgunblaóið/Júlíus
VETUR er að ganga i garð og bifreiðaeigendur eru farnir að
búa bifreiðar sínar undir ófærðina, sem alltaf fylgir þessum
árstíma. í gær, 15. október, var leyfilegt að setja nagladekk und-
ir bifreiðir og var mikið um að vera á dekkjaverkstæðum i
höfuðborginni. Nokkuð hefur borið á því undanfarið að bifreiðir
hafa verið vanbúnar og ökumenn ekki áttað sig á hálku, sem
gjarnan er á götum á morgnana þó svo að ekkert virðist vera
að færð. í Hjólbarðahöllinni við Fellsmúla voru starfsmenn önnum
kafnir við að koma vetrardekkjum undir bifreiðir borgaranna.
Þegar ljósmyndarinn leit þar við fylgdist Einar Hannesson, full-
trúi hjá Veiðimálastofnun, grannt með er Hreinn Vagnsson setti
vetrardekk undir bifreið hans.
Forsvarsmenn ASÍ og VSÍ:
Vafasamt að mark-
míð stjómvalda náist
FORSVARSMENN Alþýðusam-
bands íslands og Vinnuveitenda-
sambands íslands taka undir þá
ætlan ríkisstjórnarinnar að halda
verðbólgu í skefjum á næsta ári.
Þeir hafa hins vegar efasemdir
um að það markmið rikisstjómar-
innar náist, sem sett er fram i
þjóðhagsáætlun fyrir næsta ár,
að ráðstöfunartekjur aukist ekki
nema um 2%. Benda þeir á að
kaupmáttur kauptaxta verði rúm-
um 4% hærri i upphafi næsta árs,
en var að meðaltali á árinu 1986.
Ásmundur Stefánsson, forseti
ASÍ, sagði að stefnumörkunin í þjóð-
hagsáætlun gerði beinlínis ráð fyrir
því, að fólk fengi því aðeins að halda
þeim kaupmætti sem það býr við í
árslok, að það auki bankainnistæður
Hus’sanlegnr hryðjuverkamað-
ur atti pantað far til landsins
STÚLKA að nafni Diujeva, sem búsett er í Paris og talið er að
geti tengst hryðjuverkum, átti pantað far með Flugleiðum frá Lond-
on til íslands siðastliðið laugardagskvöld, það er að segja að kvöldi
fyrri dags leiðtogafundarins. Starfsfólk Flugleiða lét Útlendingaeft-
irbtið vita um nafn stúlkunnar, en hún mætti ekki í flugvélina.
Árni Siguijónsson hjá Útlendingaeftirlitinu vildi ekki staðfesta það
beint að ferð stúlkunnar hefði verið stöðvuð i London eða París
vegna tilmæla yfirvalda hér.
Sæmundur Guðvinsson blaða-
fulltrúi Flugleiða staðfesti að
Diujeva hefði átt pantað far með
Flugleiðum, þegar hann var spurð-
ur um þetta mál í gær. Hann sagði
að vegna leiðtogafundarins hefði
starfsfólk Flugleiða verið sérstak-
lega vel á verði fyrir fólki frá
löndum sem mikið hafa tengst
hryðjuverkum. Stúlkan hefði pant-
að far í gegn um Air France og
verið bókuð með því félagi frá París
til London og með Flugleiðum, flugi
númer 455, þaðan til Reykjavíkur
klukkan 22.15 á laugardagskvöld-
ið. Sagði Sæmundur að Útlend-
ingaeftirlitið hér hefði verið látið
vita og stúlkan hefði ekki mætt í
flugið til íslands enda hefði sér
skilist að hún væri á alþjóðlegum
lista yfír hryðjuverkamenn.
Ami Siguijónsson, fulltrúi lög-
reglustjóra og yfírmaður í Útlend-
ingaeftirlitinu, vildi í gær hvorki
staðfesta það að umrædd mann-
eskja væri á hryðjuverkalista né
að Útlendingaeftirlitið hefði gert
ráðstafanir til að beina henni frá
landinu. Hann sagðist kannast við
þetta mál, það hefði verið eitt af
mörgum sem þeir hefðu bjargað
eftir ýmsum leiðum á þessum dög-
sínar um það sem nemur 2% af tekj-
um sínum. Það væri óraunhæf
forsenda, sem ólíklegt væri að nokk-
urs staðar fengist samþykkt.
Ásmundur sagði að kröfugerð í
næstu samningum hlyti að miða að
afnámi lægstu taxta. Einnig yrði
lögð áhersla á að stokka upp launa-
kerfíð og færa kauptaxtana að þeim
launum sem raunverulega væru
greidd. „Það er hins vegar alveg ljóst
að þær tölur sem þjóðhagsáætlun
gerir ráð fyrir eru ekki raunhæfar.
Fólk vill sækja meira. Málið snýst
annars vegar um það að koma góð-
ærinu til allra, að þeir sem hafa
orðið eftir, fái eitthvað til sín og
eins að það verði sótt meira fyrir
heildina," sagði Ásmundur.
„I Þjóðhagsáætlun er reiknað með
því að einkaneysla, þ.e.a.s. útgjöld
heimilanna, vaxi ekki nema um 2%
eða tæplega það. Það er því ljóst
að stjómvöld reikna með að bilið
verði brúað með stórauknum inn-
lendum spamaði," sagði Þórarinn
V. Þórarinsson, framkvæmdastjóri
VSÍ.
Hann sagði að á móti kæmi að
fjárlagafrumvarpið væri lagt fram
með halla upp á rúmlega 1 1/2 millj-
arð og áfram væri gert ráð fyrir
auknum erlendum lántökum. Þetta
tvennt virtist setja þau markmið
ríkisstjómarinnar í hættu, að við-
halda stöðugleika á næsta ári og
auka innlendan spamað. Forsendur
þjóðhagsáætlunarinnar stæðu því
tæpt. „Þar horfum við einkum til
aukningar ríkisútgjaldanna, sem
hafa aukist úr hófí fram. Það er
afskaplega óheppilegt að ætla sér
að reka ríkissjóð með halla á næsta
ári við þessar aðstæður. Við óttumst
mikla þenslu og að viðskiptahallinn
aukist enn frekar. Ef þetta gerist,
verður erfítt að halda genginu stöð-
ugu, eins og að er stefnt," sagði
Þórarinn ennfremur.
Leitað að
rjúpnaskyttu
LEIT hófst í gærkvöldi að 55 ára
gömlum manni, sem hafði farið
á rjúpnaveiðar kl. 8 í gærmorg-
un. Hann var væntanlegur til
baka um hádegið í gær. Ferð
mannsins var heitið í svokallaðan
Vífilsfellskrók, sem er við Blá-
fjallaveg. Laust fyrir 21.00 í
gærkvöldi voru sveitir kallaðar
út til leitar. Bill hans, lítil jeppa-
bifreið, fannst skömmu sfðar
mannlaus á þessum slóðum.