Morgunblaðið - 05.11.1986, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. NÓVEMBER 1986
Morgunblaðið/Kristinn Benediktsson
Úr seiðastöðinni í Sandgerði. Stefán Valdimarsson stöðvarstjóri og annar starfsmaður eru að hreinsa
eldisker. Stefán er búfræðingur af fiskeldisbraut frá Hólum í Hjaltadal.
Grindavík:
Atlantslax hf. byggir
600 tonna laxeldisstöð
Á VEGUM fiskeldisfyrirtækisins Atlantslax hf. er fyrirhugað að
hefja byggingu 600 tonna laxeldisstöðvar í Litlu-Sandvík vestan við
Grindavík. Fyrirtækið er þegar komið með seiðaeldi í bráðabirgðaað-
stöðu í Sandgerði en gert er ráð fyrir að framkvæmdir við fyrsta
áfanga stöðvarinnar hefjist á næstu vikum. Gert er ráð fynr 200
tonna ársframleiðslu í fyrsta áfanga og að sögn eigenda ræðst fram-
haldið síðan af árangrinum.
Benediktssyni ‘ ‘
Atlantslax hf. var stofnað um
mitt síðasta ár. Stofnendur eru sjö
talsins en aðaleigendur eru þrír:
Sigurþór Þorgilsson framkvæmda-
stjóri í Reylg'avík, sem er stjórnar-
formaður fyrirtækisins, Óskar
Ámason forstjóri 5 Sandgerði, sem
er framkvæmdastjóri Atlantslax hf.
og Jón A. Jónsson framkvæmda-
stjóri í Grindavík. Tilgangur hluta-
félagsins er eldi á laxi fyrir erlenda
markaði. Félagið hefur tekið á leigu
40 ha land upp af Litlu-Sandvík sem
tilheyrir ríkisjörðinni Stað í
Grindavík. Er stöðin talsvert vestan
við fiskeldisstöð íslandslax hf. sem
einnig er í landi Staðar. Unnið er
að útvegun fjármagns og nauðsyn-
legra leyfa. Var umsókn fyrirtækis-
ins vel tekið á fundi í bygginga-
nefnd Grindavíkur sem haldinn var
í vikunni.
Sigurþór Þorgilsson sagði í sam-
tali við blaðamann Morgunblaðsins
í gær að stofnendur fyrirtækisins
hefðu í upphafi miðað við byggingu
stöðvar fýrir framleiðslu á 600
tonnum af laxi á ári og tilheyrandi
seiðaeldi. Staðurinn væri ákjósan-
legur til byggingar slíkrar stöðvar
og hefðu tilraunaboranir lofað góðu.
Til seiðaeldisins þyrfti 250 sek-
úndulítra af köldu vatni en Orku-
stofnun leyfír þeim ekki að afla
nema 80 sekúndulítra. „Þeir gera
okkur ákaflega erfítt fyrir með
þessari ákvörðun. Stofnunin gerir
þetta í þvermóðsku sinni án þess
að hafa nokkur rök fyrir sínu máli,‘*
sagði Sigurþór. Þetta varð til þess
að Atlantslax hf. varð að hafa seiða-
eldið annars staðar „á meðan verið
er að fá þetta leiðrétt", eins og Sig-
urþór orðaði það. Seiðastöðin var
fyrst í Reykjavík en er nú í Sand-
gerði og verður það fyrirsjáaniega
næstu árin. Þar eru nú 130 þúsund
seiði í eldi, sem flutt verða í stöðina
í Grindavík til framhaldseldis í vor,
og hátt í milljón hrogn.
Eldisstöðin í Grindavík verður
byggð í áföngum, eins og áður seg-
ir, vegna erfiðleika í fjármögnun
heildar verkefnisins. Sigurþór sagði
að kostnaður við 1. áfangann væri
áætlaður 50 milljónir kr., en stöðin
fullbyggð með seiðaeldi myndi
kosta 152 milljónir kr.
í Grindavík eru nú starfandi þijár
fískeldisstöðvar: Eldi hf. á Húsa-
tóftum, Fiskeldi Grindavíkur hf. og
íslandslax hf. Fyrirhuguð er bygg-
ing fíórðu stöðvarinnar sem ber
nafnið Sjávargull hf. og verður
Atlantslax hf. því fimmta stöðin á
svæðinu.
„ÞAÐ ER EKKI á minu valdi að
kveða upp úrskurð um sekt eða
sýknu varðandi sakargiftir Sjón-
varps 2 á hendur Stefáni
Benediktssyni. Það er annarra,
enda er mér með öllu ókunnugt
um fjármál Bandalags jafnaðar-
manna,“ sagði Jón Baldvin
Hannibalsson formaður Alþýðu-
flokksins, er blaðamaður
Morgunblaðsins spurði hann í
gærkveldi hver hans skoðun væri
á þeirri ákvörðun Stefáns Bened-
iktssonar, að gefa ekki kost á sér
til framboðs á vegum Alþýðu-
flokksins , vegna þeirra ásakana
sem komu fram á Stefán í frétt-
um Stöðvar 2 í gærkveldi.
Jón Baldvin sagði jafnframt:
„Málsatvik koma Alþýðuflokknum
ekki við. Sakargiftir varða þann
tíma, 1984-5, þegar Bandalag jafn-
aðarmanna var starfandi stjóm-
málahreyfíng. Þetta mál verður því
ekki með réttu notað Alþýðuflokkn-
um til ófrægingar."
Þá sagði Jón Baldvin: „Þegar
stjómmálamaður er borinn svo
þungum sökum, er það eðli málsins
samkvæmt, burtséð frá sekt eða
sýknu, að traust hans býður hnekki.
Þess vegna var það rétt ákvörðun
hjá Stefáni Benedikssyni, að gefa
ekki kost á sér til framboðs á vegum
Alþýðuflokksins, meðan þetta mál
er til lykta leitt. Þar með hefur
hann brugðist við á réttan hátt, að
láta ekki aðila sem hér bera enga
sök, gjalda málsins að ósekju."
Jón Baldvin var spurður hvort
hann teldi ekki að það myndi veikja
framboðslista Alþýðuflokksins, að
enginn úr Bandalagi jafnaðar-
manna, myndi verða á framboðs-
lista Alþýðuflokksins í Reykjavík:
„Það liggur ekkert fyrir um það
nú,“ sagði Jón Baldvin, „það hefur
ekki farið fram val á framboðslista
Alþýðuflokksins, hvorki í prófkjöri
um efstu sæti listans, né heldur í
röðun á lista."
Reykjaneskjördæmi:
Víglundur
fékk frest
Á FUNDI kjömefndar Sjálfstæð-
isflokksins í Reykjaneskiördæmi
í gærkvöldi skýrði Gísli Olafsson
formaður kjördæmisráðsins frá
því að Víglundur Þorsteinsson
framkvæmdastjóri hefði óskað
eftir fresti fram að helgi til að
gefa svar um hvort hann tæki
6. sætið á lista flokksins við
næstu alþingiskosningar eins og
kjömefndin hefur gert tillögu um.
Kom fram að formaður kjör-
dæmisráðsins hafði veitt þennan
frest í gær og voru ekki gerðar
athugasemdir við það á fundinum.
Stefán Benediktsson alþingismaður:
Gefur ekki kost á sér á
Jón Baldvin Hannibalsson, formaður
Alþýðuflokksins:
„Rétt ákvörð-
un hjá Stefáni
Saltsíldarviðræð-
ur í Moskvu:
Tíðinda að
vænta í dag
SAMNINGANEFND Síldarút-
vegsnefndar er nú stödd í
Moskvu til viðræðna við sovézka
kaupendur um sölu á saltsíld
þangað. Gunnar Flóvenz, form-
aður samninganefndarinnar,
sagði í samtali við Morgunblaðið,
að tíðinda væri að vænta í dag,
miðvikudag. Samninganefndirn-
ar hafa setið á löngum fundum
á mánudag og þriðjudag og í gær
hafði ekkert gerzt, sem hægt var
að segja frá, að sögn Gunnars.
Viðræður voru hafnar að nýju á
mánudag eftir nokkurt hlé. Vonazt
liefur verið til að samningar næð-
ust um svipað magn og á síðasta
ári og á verði svipuðu því, sem
fengizt hefur í Svíþjóð og Finnl-
andi. Sovétmenn hafa hins vegar
viljað miða verð við það, sem þeir
borga Kanadamönnum og þeim
stendur til boða í Noregi. Fulltrúar
Sfldarútvegsneftidar telja ekki
koma til greina að miða við verð
hjá löndum, sem niðurgreiði sjávar-
útveg sinn.
lista Alþýðuflokksins
STEFÁN BENEDIKTSSON alþingismaður tilkynnti í gær, eftir að
Stöð 2 hafði birt frétt hafða eftir fyrrverandi samflokksmönnum
hans, ónafngreindum, úr Bandalagi jafnaðarmanna, að hann gæfi
ekki kost á sér á framboðslista Alþýðuflokksins í komandi kosning-
um. í frétt Stöðvar 2 komu fram ásakanir frá þessum fyrrverandi
samflokksmönnum Stefáns, þess efnis að hann hefði notað fé Banda-
lags jafnaðarmanna eins og það væri hans eigið, þótt um hafi verið
að ræða fé sem annars vegar kom úr ríkissjóði, og hins vegar söfnun-
arfé frá velunnurum flokksins.
I fréttinni var Stefán ásakaður
um að hafa tekið sér 200 þúsund
króna lán, og sett á móti innistæðu-
lausa ávísun. Auk þess var því
haldið fram að hann hefði tekið án
leyfís tvær ávísanir frá B.J. og
skrifað út tvær 50 þúsund króna
ávísanir, til þess að nota í eigin
þágu.
Morgunblaðið ræddi í gærkveldi
við Stefán Benediktsson um sakar-
giftir Stöðvar 2 og þá ákvörðun
hans að gefa ekki kost á sér á fram-
boðslista Alþýðuflokksins í komandi
kosningum:
„Ég hef ekkert ólöglegt aðhafst,"
sagði Stefán í upphafi og hélt síðan
áfram: „Rétt er í þessu efni að fram
komi, að ásakanir þessar eru frá
nafnlausu fólki. Hvað efnisatriðum
viðvíkur þá er rétt, að á árinu 1984
fékk ég 110 þúsund krónur af sér-
fræðistyrk þingmanna, til þess að
standa undir hluta af þeim kostn-
aði, sem ég varð fyrir á ferðalögum
mínum, og þegar ég hafði loksins
gert upp við þingið, þá endur-
greiddi ég þessa peninga, því það
var alls ekki ætlunin að sjóður okk-
ar skaðaðist af þessum viðskiptum.
Það leikur ekki nokkur vafí á því,
að ég hafði fullan rétt til þess að
ráðstafa þessum peningum, þar sem
ég hafði bæði umráðarétt yfír þeim
og prókúru fyrir Bandalagið," sagði
Stefán.
Stefán hélt áfram: „Rétt er einn-
ig að á meðan ég beið eftir
bankaláni á árinu 1985, þá fékk
ég hjá skrifstofu Bandalagsins 200
þúsund króna lán í stuttan tíma,
sem ég endurgreiddi að fullu, þegar
bankalánið kom í gegn. Öll önnur
efnisatriði þessa máls eru ósönn.
Þau eru rógburður fólks sem ekki
þorir að sýna á sér andlitið," sagði
Stefán.
Stefán sagði jafnframt: „Ég held
að það fari enginn í grafgötur með
það, að eftir að hafa dottið inn í
þingmennsku, með allsérkennileg-
um hætti, þá gaf ég Bandalagi
jafnaðarmanna alla mína starfsorku
og gerði það sem ég gat, til þess
að vegur þess yrði sem mestur.“
— Hvers vegna hættir þú nú við
að gefa kost á þér, á framboðslista
Alþýðuflokksins?
„Ástæður þess að ég hef ákveðið
að fara ekki í framboð, eru fyrst
og fremst þær, að ég vil aflétta
þeim þiýstingi af saklausu fólki,
sem gróusögur af þessu tagi skapa.
Þá á ég við fjölskyldu mína, félaga
mína og vini, eins og Guðmund
Einarsson, Kolbrúnu Jónsdóttur, og
starfsmenn þingflokksins fyrr og
síðar. Fólk sem á ekki skilið að
verða bendlað við söguburð af þessu
tagi. Einnig á þetta við um sjálfan
mig.
Eins er mér náttúrlega mjög í
mun, að útiloka það, að Alþýðu-
flokkurinn geti skaðast af þeirri
umræðu sem þetta mál vekur, því
augljóst er, að hann á hér ekki
nokkum hlut að máli. Mér er mikið
í mun að skemma ekki þær vænlegu
horfur, sem hann á í komandi kosn-
ingabaráttu."
— Ertu þar með hættur afskipt-
um þínum af stjómmálum, eða er
hér um tímabundið hlé hjá þér að
ræða?
„Enginn veit sína ævina fyrr en
öll er, en þar sem ég tel mig vera
saklausan af þessum áburði, þá
ætla ég mér að standa við mitt
umboð og starfa til vors sem þing-
maður. En ég efast um að ég telji
það svara kostnaði, að fóma kröft-
um mínum í stjómmál, með þeim
hætti sem ég hef gert, eigandi það
á hættu, að fá það launað með
þeim hætti sem nú hefur orðið,“
sagði Stefán Benediktsson.