Morgunblaðið - 05.11.1986, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. NÓVEMBER 1986
27
Grænlenska
landsþingið:
Lagabreyt-
ingvefst
fyrir þing-
mönnum
Frá fréttaritara Morgunblaðsins á Grænl-
andi, N J. Bruun.
GRÆNLENSKA landsþinginu
gengur erfiðlega að koma sam-
an nýrri fiskveiðilöggjöf.
Ákveðið hefur verið að fresta
endurskoðun gildandi löggjafar
fram á næsta vor.
Almennur vilji er fyrir því að
herða reglur um eignaraðild út-
lendinga og fjármagnseigenda í
togaraflotanum. Talið er æskilegt
að skipin séu að öllu leyti í eigu
starfandi útgerðarmanna, sem
hafa fasta búsetu á Grænlandi.
Þannig er stefnt að því að gera
fjármagnseigendum, sem hagnast
hafa á annars konar rekstri, ókleift
að eiga hlut í skipunum. Vitað er
að Danir, Norðmenn og Færeying-
ar auk Grænlendinga sem ekki
hafa lifibrauð sitt af fískveiðum,
hafa lagt fram allstóran hluta þess
íjármagns sem liggur í togaraflota
Grænlendinga.
Þegar Grænlenska landsþingið
hóf að ræða málið varð mönnum
ljóst að ýmsir erfíðleikar eru sam-
fara endurskoðun gildandi löggjaf-
ar. Því var ákveðið að fresta
umræðum fram á næsta vor og
munu embættismenn vinna að
nýrri löggjöf fram að þeim tíma.
Tyrkland:
Löregla náði
10 morfín-
kílóum
Van, Tyrklandi. AP.
LÖGREGLA kom höndum yfir
tiu kíló af morfini, sem unnt
hefði verið að selja fyrir jafn-
virði um 28o milljónir íslenzkra
króna, að því er segir í frétt AP,
þriðjudag. Handteknir voru tveir
eiturlyfjakaupmenn í grennd við
írönsku landamærin. Fimm aðrir
eiturlyfjamangarar komust yfir
landamærin til írans.
Lögreglan mun um hríð hafa
haft gætur á þessu svæði, enda
lengi verið talið, að um það færi
meginhluti þeirra eiturlyfja, sem er
fluttur gegnum Tyrkland. Lögregl-
an fékk upplýsingar fyrirfram um
að smyglaranna væri að vænta. Til
skotbardaga kom, en ekki er vitað,
hvort menn urðu sárir í þeirri viður-
eign.
Chaim Herzog.forseti ísraels
Veggirnir hafa sovésk eyru
Mynd þessi er af sænska sendiráðinu í Moskvu. Þegar unnið var að endurbótum á byggingunni komu í ljós hlerunartæki og er talið
víst að þeim hafi verið komið fyrir þegar húsið var byggt fyrir tæpum 20 árum. Fundist hafa um 30 hlustunartæki af ýmsum gerð-
um. Sænska ríkisstjómin hefur komið harðorðum mótmælum á framfæri við ráðamenn i Sovétríkjunum.
íhaldsmenn saka
BBC um hlutdrægni
London, frá Valdimar Unnari Valdimarssyni, fréttaritara Morgun-
bladsins.
MÁLEFNI brezka ríkisútvarpsins, BBC, hafa mjög
verið í deiglunni eftir að íhaldsflokkurinn sakaði
ríkisfjölmiðilinn um hlutdrægni. Kom þessi ásökun
fram í skýrslu, sem flokkurinn lét frá sér fara í
síðustu viku. Talsmenn BBC hafa visað fullyrðing-
um íhaldsmanna á bug.
N.Tebbit
Það er engin ný bóla að íhalds-
menn væni BBC um pólitíska
hlutdrægni í fréttaflutningi og um-
fjöllun allri. Fyrir nokkru síðan
ákváðu ráðamenn íhaldsflokksins
að reyna að sýna fram á svo að
ekki yrði um villst að ásakanir af
þessu tagi eigi við rök að styðjast.
Fóru starfsmenn flokkins í þessu
skyni rækilega í saumana á tveimur
fréttaþáttum er fjölluðu um árás
Bandaríkjamanna á Líbýu síðastlið-
ið vor. Niðurstöður könnunarinnar
birti íhaldsflokkurinn í skýrslu, sem
send var BBC í síðustu viku. Er
skemmst frá því að segja að íhalds-
menn lesa þar BBC rækilega pist-
ilinn og saka ríkisfjölmiðilinn um
óþolandi hlutdrægni í fréttaflutningi
sínum Líbýumálið. í skýrslunni, sem
Norman Tebbit, formaður íhalds-
flokksins, fylgdi úr hlaði, segir
meðal annars að umfjöllun BBC
hafí ýtt undir andúð almennings á
aðgerðum Bandaríkjamanna og
jafnframt vakið tortryggni í garð
bresku ríkisstjómarinnar vegna
stuðnings hennar við árásina á
Líbýu. Segir í skýrslunni að sú
mynd sem gefin hafí verið af að-
gerðum Bandaríkjamanna hafí öll
verið til þess fallin að baka þeim
óvild meðal bresks almennings en
vekja jafnframt samúð með málstað
Líbýumanna.
Talsmenn íhaldsflokksins segja
að fréttaflutningur af Líbýumálinu
hafí einungis verið tekinn sem dæmi
um vafasama umfjöllun BBC, sem
ósjaldan geri sig sekt um hlut-
drægni er bitni helst á ríkisstjóminni
og málstað íhaldsflokksins. Er þess
krafist í fyrrgreindri skýrslu að BBC
taki sér tak og uppfylli þær ýtmstu
kröfur er gera verði til ríkisfjölmið-
ils, sem aldrei megi gefa höggstað
á sér vegna pólitískrar hlutdrægni.
Forsvarsmenn BBC hafa svarað
íhaldsflokknum fullum hálsi og sak-
að flokkinn um að reyna að hafa
áhrif á fréttaflutning þar á bæ,
engu sé líkar en íhaldsmenn rói að
því öllum ámm að gera ríkisútvarp-
ið að málpípu sinni. Hafa talsmenn
BBC vísað algerlega á bug ásökun-
um um pólitíska hlutdrægni í frétta-
flutningi og segjast ekki í vafa um
að unnt verði að hrekja lið fyrir lið
allar fullyrðingar íhaldsflokksins í
þá átt.
Samtök fréttamanna hér í landi
hafa einnig látið til sín heyra og
fordæmt fyrrgreinda skýrslu íhalds-
flokksins og sakað flokkinn um að
vega að sjálfstæði BBC, sem ávallt
hafí getið sér gott orð fyrir ábyrgan
og áreiðanlegan fréttaflutning. í
svipaðan streng hafa talsmenn
Verkamannaflokksins tekið, hafa
þeir sagt að afskipti íhaldsflokksins
af málefnum ríkisútvarpsins séu
vægast sagt varhugaverð og til þess
fallin að grafa undan tjáningarfrelsi
hér í landi og lýðræði öllu.
fhaldsmenn hafa ekki látið harka-
leg viðbrögð ýmissa aðila á sig fá
og segjast standa við allar fullyrð-
ingar sínar um hlutdrægni í frétta-.
flutningi BBC. Segja þeir að slík
hlutdrægni hafí til dæmis ósjaldan
orðið þess valdandi að steftia og
störf ríkisstjómar Margrétar Thatc-
her hafí verið afflutt og rangtúlkuð,
íhaldsflokknum til tjóns. Ýmsir telja
hins vegar að árásir íhaldsflokksins
á BBC séu síst til þess fallnar að
auk.a hróður flokksins meðal al-
mennings. Sýna lauslegar kannanir,
sem gerðar hafa verið síðustu daga,
að mikill meirihluti almennings telur
íhaldsflokkinn hafa hlaupið illilega
á sig í máli þessu. BBC nýtur ótví-
ræðrar samúðar útvarps- og sjón-
varpsnotenda, sem virðast flestir
ósammála fullyrðingum íhalds-
flokksins um hlutdrægan frétta-
flutning hins ríkisrekna fjölmiðils.
Ótrolegt
Jerry Lee Lewis þekkja allir sem einn
af f rumkyöðlum rokksins ásamt
Elvis, Little Richard, Chuck Berry og
Fats Domino
Jerry Lee Lewis „The KLiller// mun
skemmta ásamt sjóðheitri hljómsveit
sinni f rá Memphis 6., 7., 8. og 9.
nóvember
IEW1S
BCCADHW-'
6.78.9. nóvember
MATSEÐILL
Humarsúpa
Lamba-piparstcik með villikrydduðum
svcppum
Hcimatilbúinn kaffiís með konfekti
Muniö hlna ódýru
Broadway/helgarpakka
Fluglelða
NU ER UM AÐ GERA AÐ TRYGGJA SÉR MIÐA Á ÞENNANN HEIMSVIÐBURÐ
MIÐASALA OG BORÐAPANTANIR í SÍMA 77500 - DAGLEGA