Morgunblaðið - 05.11.1986, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. NÓVEMBER 1986 55
Magnús ráðinn
þjálfari Selfoss
MAGNÚS Jónatansson hefur
verið ráðinn þjálfari 2. deildarliðs
Selfoss í knattspyrnu til tveggja
ára. Gengið var frá samningum
um síðustu h elgi.
Magnús er ekki ókunnur þjálfun
hjá Selfyssingum. Hann þjálfaöi
liðið 1985 og kom því þá upp í 2.
deild. Einnig tók hann við liðinu á
miðju keppnistímabili 1981 með
United úr leik
Frá Bob Hennessy, fróttamanni Morgun-
blaðsins á Englandi.
ASTON Villa og Southampton
tryggðu sér í gœrkvöldi sœti í 4.
umferð Littlewoods bikarkeppn-
innar á Englandi.
Aston Villa sigraði Derby með
tveimur mörkum gegn einu og
Southampton sigraði Manchester
United með fjórum mörkum gegn
einu. Þetta var seinni leikur þess-
ara liða, þar sem jafntefli varð í
þeim fyrri.
Aston Villa og Southampton
eigast við í næstu umferð.
góðum árangri. Hann þjálfaði lið
Víkings síðasta keppnistímabil.
„Það er engin launung að við
aetlum okkur að ná árangri og
stefnum á að leika í 1. deild í
síðasta lagi eftir tvö ár. Þess vegna
er Magnús ráðinn til tveggja ára,“
sagði Stefán Garðarsson, for-
maður knattspyrnudeildar Selfoss,
í samtali við blaðamann Morgun-
blaðsins í gærkvöldi.
Stefán sagði að ekki vaeri útlit
fyrir miklar mannabreytingar frá
síðasta keppnistímabili. Jón Birgir
Kristjánsson, sem lék áður með
liðinu en var í Danmörku í sumar,
kæmi nú heim og mundi leika með
liðinu næsta sumar. Einnig gerðu
þeir sér vonir um að Sumarliði
Guðbjartsson færi að æfa aftur,
en hann hefur átt við meiösli að
stríða.
„Við vitum ekki annað en að
Tómas Pálsson og Jón Gunnar
Bergs verði áfram. Allavega hafa
þeir ekki skipt um félag og meðan
svo er verðum við að vona að þeir
leiki með okkur næsta sumar,"
sagði Stefán.
Aðalsteinn í ÍR
AÐALSTEINN Aðalsteinsson,
sem lék áður með Víking,
hefur gengið til liðs við ÍR-
inga og leikur með þeim í 2.
deildinni i knattspyrnu næsta
sumar.
Aðalsteinn lék í sumar með
norska 2. deildarliðinu Djerv 1919.
Hann er nú kominn heim og gekk
frá félagaskiptum yfir í ÍR í gær-
kvöldi.
Aðalsteinn er sterkur miðvallar-
leikmaður og á að baki fjölmarga
unglingalandleiki.
Kvennahandbolti:
Nfu marka tap
— afleitt í fyrri hálfleik
en héldu jöfnu f seinni
• Erla Rafnsdóttir stóð sig vel
og skoraði 5 mörk.
(SLENSKA kvennalandsliðið sem
tekur þátt í heimsmeistarakeppn-
inni í handknattleik á Spáni tapaði
fýrir Austurriki, 19:28, ígærkvöldi
eftir aö staðan í hálfleik hafði
verið 5:14.
„Islensku stúlkurnar byrjuðu
Evrópukeppnin íknattspyrnu:
Rangers og Dukla
áfram í 3. umferð
TVEIR leikir fóru fram í Evrópu-
keppni félagsliða í knattspyrnu í
gærkvöldi. Glasgow Rangers
sigraði Boavista frá Portúgal með
einu marki gegn eingu og efsta
lið í vestur-þýsku deildarinnar,
Bayer Leverkusen, náði aðeins
jafntefli 1:1 gegn tékkneska lið-
inu, Dukla Prag.
Falko Götz kom Leverkusen yfir
á 17. mínútu en Tékkarnir jöfnuðu
11 mínútum fyrir leikslok. Fyrri
leiknum lauk með markalausu jafn-
tefli, en mark á útivelli tryggði
Dukla Prag áfram í 3. umferð.
Derek Ferguson skoraði sigur-
mark Rangers gegn Boavista á 63.
mínútu. Rangers vann fyrri leikinn,
sem fram fór í Glasgow, með
tveimur mörkum gegn einu og
heldur því áfram í 3. umferð.
Rangers átti mun meira í leiknum
og var það aðeins stórgóð
markvarsla portúgalska mark-
varðarins sem kom í veg fyrir
stærri sigur.
mjög illa en náðu sér svo upp í
seinni hálfleik og héldu þá jöfnu.
Stærsta vandamálið er að þær trúi
því sjálfar að þær geti staðið í
þessum þjóðum, “ sagði Hilmar
Björnsson, landsliðsþjálfari í sam-
tali við Morgunblaðið.
Erla Rafnsdóttir stóð sig best í
íslenska liðinu og skoraði 5 möriB*
Guðríður Guðjónsdóttir og Ingunn
Bernódusdóttir skoruðu einnig
fimm mörk.
í sama riðli sigruðu Danir Port-
úgal með 33 mörkum gegn 18 og
koma Danir til með að berjast um
efsta sætið í mótinu ásamt Aust-
urríki, Svíþjóð og Spáni. Síðasti
leikur ísland í A-riðli er gegn Finn-
um í kvöld. Liðiö verður að vinna
þann leik til að eiga möguleika á
5. sætinu í keppninni eins og stefnt
var að.
Jim Barron til
Peterborough?
Frá Bob Hennessy, fróttamanni Morgunblaðsins á Englandi.
JOHN Wile, framkvæmdastjóri
Peterborough, sagði upp starfi
sínu hjá félaginu í gærkvöldi.
Jim Barron, sem þjálfaði Akur-
nesinga á sfðasta keppnistíma-
bili, hefur verið orðaður sem
arftaki hans hjá liðinu.
Steve Perryman, sem lék áður
með Tottenham og nú í vetur
með Oxford, hefur gerst aðstoð-
arframkvæmdarstjóri hjá 3.
deildarliðinu Brentford. Fram-
kvæmdastjóri liðsins er Frank
McLintock, fyrrum leikmaður
með Arsenal.
Samvinnuferðir-Landsýn auglýsir:
FUUHIUIDSNÍMSKBD
(FJUtSaUÚTGÁFU
7:559:751 ;3
Passenger ticket &
baggagecheck
_ritish
airways
ATH. Rétt er að taka fram að þátttakendur á námskeiðinu verða ekki sjálfkrafa ráðnir til
starfa á íerðaskrifstofu eða hjá flugfélagi að því loknu, þó að það auki möguleika
viðkomandi áslíkum störfum.
Verð kr. 7.800.- (Kennsla og kennslugögn innifalin).
Samvinnuferdir - Landsýn
Austurstræti 12 • Simar 91-27077 & 91-28899
Hótel Sögu viö Hagatorg • 91-622277 Akureyri: Skipagötu 18 • 96-21
Samvinnuferðir-Landsýn mun dagana 10. til 21. nóv. n.k. gangast fyrir framhaldsnámskeiði
í fargjaldaútreikningum og farseðlaútgáfu. Þátttakendur skulu hafa sótt grunnnámskeið á
þessu sviöi, hjá fiugfélögum, ferðaskrifstofum eða á öðrum vettvangi. Einnig er námskeiðið
opið þeim er áður hafa starfað að svipuðum störfum og vilja auka við, og bæta, þekkingu
sínaáþessusviði.
Námskeiðið stendur í tvær vikur. Kennt verður frá kl. 18 til 22, fimm kvöld í hvorri viku.
Leiðbeinandi verður Jónas Jónasson, sem leiðbeint hefur á svipuöum námskeiðum hjá
Flugleiðum í fjölda ára. Athugið að aðeins
16 nemendur verða teknir inn á námskeiðið.