Morgunblaðið - 05.11.1986, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 05.11.1986, Blaðsíða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. NÓVEMBER 1986 fclk í fréttum Phlllp Mlchael. FRANK ZAPPA Undanfarin ár hefur verið til- tölulega hljótt um Frank Zappa í tónlistarheiminum. Hins vegar hefur meira borið á honum á öðrum vettvangi, því Frank er nú ötull baráttumaður fyrir frelsi í rokktónlist. Fyrir nokkrum árum fór að bera á því að einstök foreldrasamtök beittu sér fyrir því að rokkplötur voru bannaðar í vissum verslana- keðjum. Var það aðallega vegna plötuumslaga, sem þóttu í djarfleg- asta lagi. Astandið breyttist þó til hins verra þegar eiginkonur þing- manna í Washington stofnuðu samtök, sem börðust fyrir því að textar rokklaga yrðu með hrein- legra orðbragði og fjölluðu ekki um hvað sem er, s.s. ofbeldi, kynlíf o.s. frv. Mæltu samtökin með því að sér- stök stofnun hlustaði á allár plötur fyrir útgáfu og gæfi þeim einkunn, líkt og gert er með kvikmyndir. Mætti þannig ekki selja bömum plötur svo merktar og væru jafnvel sérstök aldurstakmörk, miðað við hvað á plötunni væri. Frank hefur eytt um 70.000 Bandaríkjadölum af eigin fé í það að beijast gegn þessu átaki þing- mannafrúnna. „Bandaríkin hafa ekki barist fyrir frelsi og gegn naz- isma og kommúnisma til þess eins að einhveijum kerlingum í Wash- Hræðsla stjörnunnar Flestir kannast við sjónvarps- stjömuna Philip Michael Thomas sem karl í krapinu. En hvað segir stjaman úr Miami Vice sjálf? „Flestir halda að ég sé kaldur karl árið um kring, vegna þess að þannig kem ég fyrir í Miami Vice. En sannleikurinn er annar. T.a.m. er ég sjúklega hræddur við ketti og stundum grípur mig áköf lofthræðsla. Eftir að ég var næst- um því drukknaður í sundlaug, þegar ég var fímm ára gamall, hefur mér alltaf verið illa við vatn, þó svo að ég stingi mér nú til sunds ef ég þarf starfsins vegna". Samkvæmt áreiðanlegum heimildum er þetta ekki einu hlut- imir sem hann hræðist. Fyrrver- andi vinkona hans sagði: „Hégómleiki Philips er hreint ótrúlegur. Á hveijum morgni byij- aði hann á að gá hvort einhver hár væru á koddanum. Fyndi hann einhver, var hann sannfærður um að hann væri að fá skalla og var ekki mönnum sinnandi langt fram eftir degi.“ Ekki verður þó séð að hárleysi muni hijá Philip Michael í bráð, en hver veit? Karis ásamt föður sfnum og eiginkonu hans, Jerry Hall. í fanginu ber hún Elizabeth, dóttur Jerry, en við hlið þeirra stendur Jade, dóttir Micks og Bi- öncu Jagger. Gróið um heilt með Mick og Mörshu Eg vildi aldrei búa með Mick Jagger. Það vill bara svo til að við eigum bam saman", segir bandaríska leikkonan Marsha Hunt. Fyrir sextán ámm áttu þau Marsha og Mick í ástarsambandi, en þá var að slitna upp úr sambúð Micks og Marianne Faithful, vegna eiturlyfjavanda Marianne. Sam- band Mörshu og Micks stóð ekki lengi, en afrakstur þess var dóttirin Karis. Þegar Mick frétti af því brást hann æfur við, vildi ekkert hafa Annle Lennox fullfrísk á tónlelkum. Annie Lennox hnígur niður á sviði Söngkona hljómsveitarinnar Eurythm- ics, Annie Lennox, fór fyrir nokkru i mjomleikaför til Norðurlanda. Ekki eru allar ferðir til fjár, því að Annie varð sér úti um heiftarlegt lungnakvef í leiðinni. Það hefur greinilega tekið sér rækilega bólfestu í Annie, því að á dögunum hné hún í ómegin á sviði í Frankfurt, frammi fyrir 10.000 manns. í fyrstu héldu áhorfendur að þetta væri liður í magnaðri sviðsframkomu Annie, en þegar Dave Stewart, góðvinur Annie, bar hana út af sviðinu varð áhorfendum ljóst að hér var alvaran á ferðinni. Stewart vildi hætta tónleikunum, en eftir súrefnisgjöf og aðra meðhöndlun krafðist Annie þess að þeim yrði fram haldið. Aflýsa þurfti tveimur tónleikum í Ham- borg og fjórum í Hollandi eftir að henni elnaði sóttin i Kaupmannahöfn og er óvist um framhaldið. með Mörshu að gera og neitaði að gangast við dótturinni. Skömmu eftir fæðingu Karis, varð Bianca, hin nýja vinkona Micks, einnig þunguð. „Ég sá brúðkaup þeirra í sjón- varpinu og það var engin eftirsjá eða sorg í mínum huga. Ég vonaði bara að annað bam Micks myndi minna hann á hið fyrra“. Marsha hefur nýverið gefíð út 'endurminningar sínar og þar segir hún frá deilu þeirra Micks um Karis. Marsha þurfti að standa í níu ára málaferlum áður en að Mick gekkst við Karis og greiddi með henni. Þrátt fyrir það talar Marsha alltaf vel um Mick. „Vissulega voru sárindi í fortíð- indi, en þegar ég hitti Mick í dag legg ég þær tilfínningar nú á hill- una. Þegar hann kemur að sækja Karis getum við rætt um gamla daga og hlegið saman eins og góð- ir vinir eiga að gera“, segir Marsha. Nú þegar Mick hefur gengist við Karis gerir hann það líka eins og góðum föður sæmir. Hann hefur séð til þess að hún fái ætíð bestu menntun sem völ er á og hann hitt- ir hana reglulega ef nokkur kostur er og hefur sent flugvélar eftir henni yfír Atlantshaf, hafi þess gerst þörf. Karis er orðin fimmtán ára gömul og hinn vænsti kvenkost- ur eins og sjá má af meðfylgjandi myns. trtt 974Ö — Þarna sóröu, ef þú hefðir látið mig fá nóga dag- peninga hefði óg ekki þurft að láta skrifa neitt. i
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.