Morgunblaðið - 05.11.1986, Side 26

Morgunblaðið - 05.11.1986, Side 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. NÓVEMBER 1986 Bandaríkjamenn og Sovét- menn kaupa finnska kafbáta Hejsinki, frá Lars Lundsten, fréttaritara Morgnnblaðsins. ÞRÁTT fyrir að Finnum sé sam- kvæmt friðarsamningum við bandamenn bannað að eiga kaf- báta, framleiðir Valmet-skip- asmíðastöðin í Ábo slíka og hefur hún fengið kafbátapöntun bæði frá Bandaríkjunum og Sov- étríkjunum. Bandarískt fyrirtæki hefur pant- að 15 metra skemmtiferðakafbát sem verður notaður til siglinga með ferðamenn í Kyrrahafínu. Kaf- báturinn á að geta tekið 46 farþega og kafað niður á 100 metra dýpi. Gert er ráð fyrir að hann verði rafknúinn og geti siglt neðansjávar nokkra klukkutíma í einu. Nú sem stendur er Valmet- skipasmíðastöðin að smíða smákaf- bát af öðru tagi handa Sovétmönn- um. Hann verður helmingi minni en ameríski kafbáturinn og verður notaður til eftirlits með olíuborpöll- Finnskar skipasmíðastöðvar hafa verið reknar nær hallalausar undanfarin ár og er það einsdæmi í V-Evrópu. Finnsku stöðvarnar hafa sérhæft sig í smíði ýmissa sérskipa, s.s. rannsóknarskipa, ERLENT, ísbrjóta og skemmtiferðaskipa. ar stefnu enda þótt þeir skipti ekki Smíði kafbátanna er í anda þessar- sköpum fyrir afkomu stöðvanna. Finnskir prestar gera uppreisn Helsinki, frá Lars Lundsten, fréttaritara Morgunbiaðsins. AÐ OLLUM líkindum verður í þessari viku tekin ákvörðun um að leyfa finnskum konum að taka prestvígslu í lútersku þjóðkirkjunni. Kirkjuþing kom saman á mánudaginn og 3A-meirihIuti þingmanna segist vera hlynntur að opna prestsembætti konum. Hvorki meirihluta- menn né minnihlutamenn búast við að kirkjan klofni málsins vegna. Ihaldssamir prestar hafa þegar hafið gagnaðgerðir. Þeir hvetja menn til að eiga ekki samstarf við prestvígðar konur, og nokkrir hafa lagt fram hugmynd um að stofna sérstakan prestaskóla handa þeim sem „vilja starfa á grundvelli Biblí- unnar og hinnar kristnu trúar" en ekki „sveiflum almenfiingsálits". Samskonar íhaldssamir prestskólar eru til í Noregi, Svíþjóð og í Dan- mörku, þar sem konum hefur verið leyft að taka prestvígslu um nokk- urra áratuga skeið. Biskupafundur ákvað fyrir skömmu að leggja aftur tillögu um prestvígslu kvenna fyrir kirkjuþing. Málið hefur komið upp áður en þá hefur vantað nokkur atkvæði í 3/4-meirihluta á kirkjuþingi sem þarf til þess að breyta kirkjulögum. Átta biskupar vilja nú sjá konur í prestsstörfum. Bara biskup Norð- ur-Finnlands er á móti. I hans biskupsdæmi er áhrifamikil íhalds- söm trúarstefna sem er kennd við Laestadius, en fylgismenn hennar hafa átt erfitt með að sætta sig við frjálslyndi þjóðkirkjunnar. John Vikström erkibiskup heldur því fram að finnska þjóðkirkjan geti ekki veitt andstæðingum kven- presta þau sérréttindi að neita samstarfi við konur. í Svíþjóð eru dæmi um að íhaldssamir biskupar hafa neitað að vígja konur til prests, en þess konar ástand vilja menn ekki í Finnlandi. í flestum sóknum Finnlands starfa margir prestar og farið gæti illa ef sóknarprestur og aðstoðar- prestar gætu ekki unnið saman. Hins vegar er ólíklegt að andstæð- ingar prestvígslu kvenna njóti mikils fylgis í prestskoningum í þéttbýli þar sem jafnrétti kynjanna þykir sjálfsagt meðal sóknarbama. Vatnsþéttír, loðfóðraðír KULDASKÓR Nr. 28-36 kr. 1495,- Nr. 35-41 kr. 1995,- Nr. 40-46 kr. 2495,- Q ö c ö) D TORGIÐ, DOMUS, MIKLIGARÐUR, KAUPFÉLAG HAFNFIRÐINGA, SAMKAUP KEFLA VÍK, OG M.H.LYNGDAL AKUREYRI Mannskæðar óeirðir Að minnsta kosti 44 menn hafa beðið bana og 300 slasast í óeirðum og ofbeldisverkum í Karachi, höfuðborg Pakistan síðustu daga. Óeirð- imar brutust út sl. föstudag er sló í brýnu milli manna af tveimur þjóðflokkum, Pathan og Muhajir. í átökunum gripu deiluaðilar til skotvopna og heimasmíðaðra sprengja. Kveikt var í bifreiðum og húsum og reistir bálkestir á götum úti. Farið hefur verið ránshendi um búðir og byggingar. Her landsins reyndi árangurslítið að skakka leikinn um helgina og var mikill liðsauki fluttur til borgarinnar í gær. Þúsundir lögreglumanna reyndu að hemja ólætin en lítt geng- ið. Deiluaðilar hafa virt útgöngubann að vettugi. Nazer vinnur að hækkun olíuverðs Abu Dhabi, Nikósíu, AP. FAHD konungur Saudi-Árabíu fyrirskipaði Hisham Nazer, olíumála- ráðherra, að knýja starfsbræður sína i Persaflóaríkjunum til fylgis við þá afstöðu Saudi-Araba að draga beri úr olíuframleiðslu til að stuðla að verðhækkun. Leiðtogar Persaflóaríkjanna hófu fundi í Sameinuðu furstadæmunum á sunnudag og herma háttsettir heimildamenn að Nazer eigi fund með olíuráðherrum ríkjanna í tengsl- um við þá. Heimildarmenn herma að brottvikning fyrrum olíumálaráð- herra Saudi-Arabíu, Ahmed Zaki Yamani, sé til marks um breytta stefnu þeirra í olíumálum. Reyni þeir nú á bak við tjöldin að knýja OPEC-ríkin til að fallast á samdrátt framleiðslu og festa verð olíutunn- unnar í 18 dollurum í stað 14-15 eins og nú er. Fyrsta embættisverk Nazers var að óska eftir neyðar- fundi verðlagsráðs OPEC þar sem kröfur Saudi-Araba um fast olíuverð verða lagðar á borðið. Yamani var eldhress og lék á alls oddi í samtali við AP-fréttastofuna í gær. Hann sagðist nú íhuga hvað hann tæki sér fyrir hendur og bjóst við að ákvörðun lægi fyrir í næstu viku. Herzog í Astralíu Canberra,Ástralfu. AP. CHAIM Herzog, forseti ísraels kom þriðjudag í opinbera heimsókn til Astralíu og er það í fyrsta skipti sem israelskur þjóðhöfðingi sækir Ástralíu heim. Herzog verður viku í landinu og ferðast um. Strax eftir að Herzog kom til landsins, hitti hann að máli fimmtíu fulltrúa gyðingasamtaka, sem eru búsettir í landinu. Hann mun síðan zeiga viðræður við Hawke, forsæt- isráðherra og aðskiljanlega aðra forystumenn.Israelskir embættis- menn segja för Herzogs kjörið tækifæri til að útskýra framvindu mála í Miðausturlöndum fyrir áhrifamönnum Ástralíu og án efa verði aukin viðskipti ofarlega á baugi. Herzog mun væntanlega verða að leysa úr spumingum frétta- manna um hið margumtalaða hvarf ísraelska vísindamannsins Mordec- hai Vanunu. Vísindamaðurinn hafði sagt fjölmiðlum frá neðanjarðar- kjamorkustöð, sem ísraelar hefðu reist í Negeveyðimörkinni. Ástr- alskur prestur sem er persónulega kunnugur Vanunu, hefiir beitt sér ákaft fyrir að fá upplýsingar um hvarf mannsins.Ýmsir hafa stað- hæft að Vanunu hafi verið rænt, fyrir tilstilli leyniþjónustu ísraels, Mossad, og að hann hafi verið flutt- ur í fangelsi í ísrael og líkast til verði sett yfir honum leynileg rétt- arhöld.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.