Morgunblaðið - 05.11.1986, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. NÓVEMBER 1986
3
Sigríður Hagalín í hlutverki Helen og Guðrún S. Gísladóttir sem leikur EIsu i leiknti Athol Fug-
ards „Vegurinn til Mekka“.
LR frumsýnir Veginn til Mekka
LEIKFÉLAG Reykjavíkur
frumsýnir nk. sunnudag ieikrit-
ið „Vegurinn til Mekka“ eftir
Suður-afríska rithöfundinn
Athol Fugard. Þetta er í fyrsta
skipti sem verk eftir Fugard
er sýnt hérlendis. Með aðal-
hlutverk í sýningu LR fara
Sigríður Hagalín, Guðrún S.
Gísladóttir og Jón Sigurbjörns-
son. Leikstjóri er Hallmar
Sigurðsson. Með þessari sýn-
ingu er haldið upp á 40 ára
leikafmæli Sigriðar.
Leikritið gerist í smábæ í Suð-
ur-Afríku. Segir þar frá roskinni
konu sem um miðjan aldur fór
að fást við óhefðbundna listsköp-
un. Listaverk hennar þykja ögrun
við vanabundna hugsun og siði
þorpsbúa. Öðrum þræði fjallar
verkið um rétt manneskjunnar til
frelsis og sjálfstæðis, spumingar
sem hafnar eru yfir tíma og rúm,
segir f fréttatilkynningu Leikfé-
lagsins.
Amf etamínsmyglið:
Þriðji maðurinn
handtekinn
FÍKNIEFNALÖGREGLAN hand-
tók síðastliðinn sUnnudag þriðja
manninn i tengslum við amfet-
amínsmygl, sem tengist ákveðnu
fyrirtæki í Reykjavik. Maðurinn
er starfsmaður þessa fyrirtækis,
eins og hinir tveir, sem áður höfðu
verið handteknir vegna málsins.
Við húsleit hjá manninum fannst
talsvert magn af amfetamini og
hefur hann verið úrskurðaður í
18 daga gæsluvarðhald.
Eins og greint hefur verið frá í
frétt Morgunblaðsins voru tveir menn
úrskurðaðir í gæsluvarðhald í fyrri
viku vegna þessa máls. Annar þeirra,
32 ára gamall eigandi fyrirtækisins,
var úrskurðaður í gæsluvarðhald
fram í miðjan nóvember, en hinn, 45
ára gamall starfsmaður fyrirtækisins,
var úrskurðaður í gæsluvarðhald
fram yfir síðustu helgi og var honum
sleppt síðastliðinn suniiudag. Ekki
fengust upplýsingar um það magn
af amfetamíni sem lagt hefur verið
hald á vegna þessa máls, en fíkni-
efnalögreglan vinnur áfram að
rannsókn málsins.
Smygl í
Dettifossi
TOLLVERÐIR í Reykjavík lögðu
hald á smyglvarning um borð í
Dettifossi við komu skipsins til
landsins aðfaramótt þriðjudags-
ins. Hefur einn af yfirmönnum
skipsins játað aðild að smyglinu.
Dettifoss kom til Reykjavíkur frá
Norðurlöndunum og Sovétríkjunum
og við leit um borð í skipinu fundu
tollverðir 24 kassa af bjór og 24 flösk-
ur af vodka, en vamingurinn hafði
verið falinn á milli þilja. Við nánari
eftirgrenslan kom í Ijós að einn af
yfirmönnum skipsins átti vaminginn
og hefur hann játað aðild sína að
málinu.
Fyrri umferð
forvals Alþýðu-
bandalags á
Vestfjörðum:
Líklega talið
á f östudag
AÐ LÍKINDUM verður talið í
fyrri umferð forvals Alþýðu-
bandalagsins á Vestfjörðum, sem
fram fór um siðustu helgi, nú á
föstudag. Fyrri umferðin var
einungis tilnefningarumferð, en
i síðari umferðinni sem verður
23. þessa mánaðar verður kosið
á milli þeirra manna sem flestar
tilnefningar fengu í fyrri um-
ferðinni.
Magnús Ingólfsson á Vífilsmýri,
Önundarfírði, er formaður kjör-
dæmisráðs Alþýðubandalagsir.s á
Vestfjörðum. Hann sagði í samtali
við blaðamann Morgunblaðsins í
gær að seinni umferð forvalsins
yrði með þeim hætti, að þeir sex
sem fengju flestar tilnefningar í
fyrri umferð, auk mögulega þriggja
nafna frá uppstillingamefnd, yrðu
á atkvæðaseðli, og þeir sem tækju
þátt í síðari umferð forvalsins,
myndu síðan númera við þrjú nöfn,
1, 2 eða 3. Talningarreglan yrði
síðan sú, að sá sem fengi flest at-
kvæði í 1. sæti, yrði í 1. sæti, og
svo framvegis.
Engar líkur eru taldar á að Sva-
var Gestsson formaður Alþýðu-
bandalagsins muni fara í framboð
í Vestfjarðakjördæmi, enda hefur
Svavar sjálfur sagt að hann verði
í framboði í Reykjavík. Það liggur
hins vegar ekki fyrir, fyrr en á
föstudag, hversu margar tilnefning-
ar formaðurinn fékk í fyrri umferð
forvalsins á Vestfjörðum.
Magnús sagði að mikil spenna
ríkti meðal alþýðubandalagsmanna
á Vestíjörðum, vegna forvalsins og
væri búist við að mjótt yrði á mun-
unum, hjá þeim ijórmenningum,
sem helst hafa verið orðaðir við
efstu sætin í forvali flokksins. Þeir
eru: Kristinn H. Gunnlaugsson í
Bolungarvík, Finnbogi Hermanns-
son á Isafirði, Sveinbjöm Jónsson
á Súgandafirði og Magnús Ingólfs-
son, Önundarfirði.
Fródleikur og
skemmtun
fyrirháa semlága!
SVEDBERGS
Veljirþú
Svedbergs
baðinnréttingar...
... ertu hagsýnn og nákvæmur og lætur
ekki smáatriðin fara fram hjá þér.
Þar að auki ertu mikill smekkmaður.
Sænsku SVEDBERGS baðinnréttingarnar
eru þaulhugsaðar með tilliti til nýtingar-
möguleika og samsetningar og eru ekki
síður hannaðar fyrir minnstu baðherbergin
en hin stóru.
Það er hægt að segja svo margt
... en gefðu þér tíma til þess að líta
inn til okkar í BYKO því „sjón er sögu
ríkari“ og alltaf nóg af bílastæðum.
KÓPAVOGI
SÍMI 41000
HAFNARFIRÐI
SÍMI 54411