Morgunblaðið - 05.11.1986, Page 45

Morgunblaðið - 05.11.1986, Page 45
Ómar og Inga voru-óvenju sam- rýnd. Heimili þeirra óvenju fagurt .og smekkvísi viðbrugðið. A betri jgranna varð ekki kosið. Það er því sárt, ekki síst fyrir Ibörnin, sem Ómar virtist alltaf hafa •ómældan tíma til að ræða við og laða til sín, að sjá nú á bak honum. Það er hreint ótrúlegt að þessi stóri, trausti nágranni skuli hafa slegið blettinn sinn hinsta sinni, mokað snjónum hinsta sinni, komið yfir í heimsókn hinsta sinni. Og við finnum til tómleika, ótrúlegs sökn- uðar. Mestur er þó harmur Ingu, dótturinnar og bamabamanna og Dollýjar, litla hundsins, sem ekki sá sólina fyrir húsbónda sínum. En minningin lifír. Minning sem ekki fellur á, minning um óvenju vammlausan mann. Slíkum mönn- um er gott að kynnast, slíkra manna kært að minnast. Þess vegna er gott í dag, að minnast orða Krists og fyrirheita hans: „Sælir eru hjartahreinir, því þeir munu Guð sjá,“ og „Sælir eru syrgjendur, því þeir munu huggaðir verða.“ Guð gefí Sigurði Ómari eilífan frið, blessi okkur minningu hans og huggi og styrki ástvini hans alla. Guðmundur Einarsson og fjölskylda, Alfred Olsen og fjölskylda. Fregnin um andlát Sigurðar Ómars Þorkelssonar, samstarfs- manns okkar hjá Flugmálastjóm, kom okkur að óvörum og erum við öll harmi slegin yfir að góður dreng- ur skuli á brott kallaður svo skyndilega á miðjun aldri. Það fór á annan veg að bjartsýni okkar og hans um að læknisaðgerðin, sem átti að framkvæma innan skamms, yrði að veruleika, en vonir stóðu til um að aðgerðin stöðvaði langvar- andi veikindi Sigurðar. Eftir stend- ur björt minning um góðan vin. Sigurður Þorkelsson fæddist á Sámsstöðum á Hvítársíðu í Mýra- sýslu 7.9. 1937 og fluttist ungur til Reykjavíkur, þar sem hann ólst upp. Að loknu landsprófi miðskóla stóð hugur hans þegar til fjarskipta- tækninnar og lagði hann fyrir sig nám í Iðnskólanum og lauk námi í rad/óvirkjun 1953. Áhugi Sigurðar á flugmálum vaknaði snemma og var hann virk- ur þátttakandi í starfsemi Svifflug- félags íslands um árabil. Með einstökum hagleik smíðaði hann eigin loftfar, gírókopta, og átti margar ánægjustundir í góðum fé- lagsskap. Eg hef heyrt marga flugáhugamenn minnast góðra samverustunda með Sigurði, eða Ómari eins og hann nefndist í þeirra vinahópi, á þessum árum. Þar fóru sem fyrr einkenni Sigurðar, áhugi, prúðmennska, hugkvæmni og frumkvæði að koma hugmyndum í framkvæmd. Sigurður hóf störf hjá Flugmála- stjóm 1959, þar sem hann starfaði alla tíð síðan. Hann var staðgengill yfirmanns radíódeildar flugmála- stjómar er hann lést. Á starfsævi hans varð mikil uppbygging í tæknivæðingu á sviði fjarskipta og flugleiðsögu og reyndi þá á úrræði og traust tæknimanna flugmála- stjómar. Um og upp úr 1960 varð bylting í fjarskiptamálum, þegar margar fjarskiptastöðvar fyrir flugíjarskipti á metrabylgjusviði MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. NÓVEMBER 1986 Slysavarnafélag íslands Sími (91) 27000 Viljir þú minnast látins vinar, samstarfsmanns eða ætt- ingja og votta aðstandendum samúð, bendum við á minningarspjald SVFI. Minningarspjöld sendum við einnig til útlanda sé þess óskað; á dönsku, ensku eða þýsku. voru reistar víða um landið og tryggðu ömggt samband við flug- menn um allt land. Ný fjarskipta- stjómstöð, sem tengdist fjallastöðv- unum, var byggð í flugtuminum í Reykjavík. Allur þessi tækjabúnað- ur var síðan endumýjaður 1983. Reistar voru ratsjár fyrir aðflug til nokkurra flugvalla. Blindflugskerfi á metrabylgjusvæði fyrir ná- kvæmnisaðflug voru reist víða um land á sjöunda áratugnum. Ratsjár- væðing fyrir flugstjórn hófst 1971 með tengingu ratsjárstöðvarinnar á Miðnesheiði við ratsjárskjái í flug- stjómarmiðstöðinni. Áfram mætti lengi telja um verkefni sem nutu hinna traustu starfskrafta Sigurðar heitins. Verkefnin vom, eins og að framan má ráða, flókin og kröfðust hugkvæmni, nákvæmra vinnu- bragða og samviskusemi í starfi. Eg hygg að allir samstarfsmenn Sigurðar geti vottað, að honum vom þessir eiginleikar gefnir í ríkum mæli. Vegna hlédrægni sinnar og háttvísi barst hann ekki mikið á um kosti sína, en þegar á reyndi í flóknum og erfiðum verk- efnum mátti ætíð finna úrræði til lausnar hjá Sigurði. Með hlýlegu viðmóti sínu og persónueikennum hefur Sigurður án efa að ýmsu leyti orðið fyrirmynd í starfi fyrir þá starfsmenn sem hófu störf á radíó- deild flugmálastjómar nú hin síðari ár. Sigurður og eiginkona hans, frú Inga Eiríksdóttir, reistu sér mynd- arlegt heimili í húsi sínu á Móaflöt 22 í Gárðabæ, þar undi Sigurður sér best við ýmis hugðarefni. Hann var einn af frumkvöðlum þegar hann reisti sér móttökustöð fyrir sjónvarpsefni frá gervihnöttum á lóð þeirra hjóna. Ég votta eiginkonu Sigurðar, vin- um og aðstandendum dýpstu samúð við fráfall hans. Ætíð er erfitt að sætta sig við dauðann, en að lokum er það vegur okkar allra. Við skulum minnast bjartrar eilífðarinnar, sem við tek- ur, með ljóðlínum Jakobs Jóhannes- sonar Smára: Fagna þú, sál min! Allt er eitt í drottni, eilift og fagurt, — dauðinn sætur blundar. Þótt jarðnesk dýrð og vegsemd visni og þrotni veit ég, að geymast handan stærri undur - þótt stórtré vor i bylgjum jarðar brotni, bíður vor allra um siðir Edens-lundur. Haukur Hauksson drengur kvaddi á haustin og eins dimmir núna í lífi okkar þegar hann kveður, en hann skilur eftir í hjört- um okkar minningar, fagrar og hreinar, öllu gulli betri. Við biðjum góðan Guð að blessa og styrkja konu hans og dóttur, systur og aðra ástvini. Systkinin frá Sámsstöðum Nú þegar fögru og björtu sumri lýkur, lýkur einnig lífi Sigurðar Ómars Þorkelssonar, en í dimmu vetrar lýsir ljós sem tendrar minn- ingar um látinn vin. Frá fyrstu Samþykkt um jöfnun húshitun- arkostnaðar FUNDUR kjördæmisráðs Al- þýðuflokksins í Vesturlandskjör- dæmi, sem haldinn var í Borgarnesi nýverið, tekur undir og lýsir stuðningi við samþykkt 43. flokksþings Alþýðuflokksins um jöfnun húshitunarkostnaðar. Fundurinn ítrekar að leiðrétta beri það misrétti, sem íbúar á dýr- ustu hitaveitusvæðunum búa nú við, er greiða einhveija hæstu orku- reikninga, sem dæmi eru um hér á landi. Fundurinn skorar á þingflokk Alþýðuflokks að taka þetta mál hið fyrsta upp á Alþingi og knýja fram leiðréttingu þannig að íbúar þessara svæða sitji við sama borð og aðrir landsmenn að því er orkukostnað varðar. (Fréttatilkynning) kynnum, fyrir tæpum þrjátíu árum, skapaðist sérstök vinátta sem erfítt er að verða svo skyndilega án. Það munaði svo litlu að Sigurði tækist að komast í aðgerð í sjúkrahúsi, sem hefði getað bjargað lífí hans, og hann var bjartsýnn og trúaður á að það tækist, eins og allt annað sem Sigurður tókst á við, en enginn veit sína ævi fyrr en öll er. Hann byijaði ávallt á verki með það í huga að Ijúka því og ekki fyrr en fullkomnu, þetta voru hans einkenni. Öll vandamál er hægt að leysa, en með honum voru þau auð- leysanlegri vegna þess fínleika og nákvæmni, sem hann ávallt sýndi. í dag kveðjum við Ómar frænda okkar hinstu kveðju þessa heims. En hann var meira en frændi okk- ar, hann var líka einn besti leik- bróðir okkar þegar við vorum böm. Mörg sumur var hann hjá okkur á Sámsstöðum í Hvítársíðu þar sem móðir hans, Guðrún Ólafsdóttir, fæddist og ólst upp. Ómar var dálítið sérstakur leik- félagi. Með hugmyndaflugi sínu gæddi hann líf okkar og leiki ævin- týrablæ og allt varð skemmtilegra í návist hans. Hann hjálpaði okkur til dæmis að spekja og temja alla hænuungana. Stundum var hann með unga á öxl sér, lét byggkom milli varanna og unginn náði því snöggt og fimlega. Við létum okkur dreyma um að finna leyniherbergi í húsinu, dularfullan helli í ein- hveiju gilinu eða komast út á eyri langt úti í ánni til að finna kríu- hreiður og þó að þetta rættist ekki, var gott og gaman að eiga þessa drauma Margir leikir okkar vom könnun- arferðir úti í náttúmnni í leit að fjöðrum, fuglshreiðmm, fágætum steinum eða móhellu til að tálga. Um fjaðrasöfnunina giltu vissar reglur sem Ómar setti. Við gátum mörg fundið sömu Qöðrina í einu og þess vegna átti sá fjöðrina sem varð fyrstur til að tileinka sér hana með sérstöku orði, nokkurs konar töfraorði, sem var að vísu óskiljan- legt en dugði vel. Stundum veiddum við síli og geymdum í baðkarinu, leituðum uppi baðstaði sem vom hylur í gili eða lítil tjöm en auðvit- að dreymdi okkur um að stífla vatnsfall og byggja sundlaug. Þannig var Ómar foringi og þátt- takandi í leikjum okkar og draum- um. Það dimmdi yfir í sveitinni þegar þessi ljúfi og skemmtilegi Þeir sem hittu Sigurð í fyrsta skipti gleyma ekki mildu borsi hans (jg hlýju handtaki og fundu síðar hve vandaður hann var til orðs og æð- is, enda átti hann gott með a® eignast góða vini, sem nú sakim hans. Að leiðarlokum emm við vinnufélagarnir þakklátir að hafa notið starfa hans og fengið að starfa með honum. Minningin um góðan dreng er huggun harmi gegn og við biðjum guð að gefa dánum ró og hinum líkn sem lifa. Sérstaka samúð vott- um við Ingu konu hans, dóttur og ættingjum. Þórarinn Guðmundsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.