Morgunblaðið - 05.11.1986, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. NÓVEMBER 1986
Stefanía Sunna Hockett og Tínna Gunnlaugsdóttir
„Tristan og ísold“
Verður alnæmissjúkl-
ingur sviptur sjálfræði ?
ÆFINGAR eru nú hafnar á kvik-
myndinni „Tristan og ísold“.
Þær Stefania Sunna Hockett og
Tinna Gunnlaugsdóttir munu
væntanlega fara með aðalkven-
hlutverkin í kvikmyndinni, en
höfundur hennar og leikstjóri er
Hrafn Gunnlaugsson.
Myndin er byggð á sögunni um
Tristan og Ísold og er sagan látin
gerast á Sturlungaöld á íslandi, en
leikurinn berst um alla Skandinavíu
og suður til Rómar. Þær Stefanía
og Tinna leika frænkur í myndinni.
Myndin er gerð í samvinnu við
sænsku kvikmyndastofnunina og
sænska sjónvarpið, en framleiðandi
fyrir sænsku kvikmyndastofnunina
er Katinka Faragó, sú hin sama og
gerði „Fanny og Alexander" með
Ingmar Bergman.
LANDLÆKNIR íhugar hvað beri
að gera fylgi eiturlyfjasjúklingur
sem sýktur er af alnæmi, ekki
ströngum reglum sem læknar
hans hafa sett um samskipti við
annað fólk. „Það er rétt að við
höfum íhugað hvort til greina
komi að svipta viðkomandi
sjálfræði haldi hann áfram að
eiga samræði við aðra. Þetta
gæti þetta reynst eina ráðið. En
það verður nægur höfuðverkur
að greiða úr þessu ef að því kem-
ur,“ sagði Ólafur Olafsson,
landlæknir í samtali við blaða-
mann Morgunblaðsins.
Að sögn Ólafs hefur það komið
til tals í nágrannalöndum okkar að
svipta alnæmissjúklinga sjálfræði,
sýki þeir aðra vitandi vits. Þeir al-
næmisjúklingar sem hér um ræðir
eru aðalega í hópi vændiskvenna. í
nokkrum nágrannalandanna hefur
þetta raunar verið framkvæmt, en
fer hljótt að sögn Ólafs. Aðspurður
hvernig hugsanleg sjálfræðiskipt-
ing gæti náð takmarki sínu, og
hvort eiturlyfjasjúklingurinn sem
hér um ræðir yrði lokaður inni sagði
Ólafur: „Það hefur komið til tals,
en hérna er um að ræða gífurlega
flókið mál lagalega séð. Sönnunar-
byrðin hvílir á okkur, þetta heyrir
undir dómara en ekki lækna. Við
Á RÍKISTJÓRNARFUNDI í gær-
morgun kynnti Ragnhildur
Helgadóttir, heilbrigðisráð-
herra, áætlun um að efla varnir
almennings gegn alnæmi. Til
þessa verkefnis hefur verið sett
aukafjárveiting að upphæð 2,5
milljónir króna. Að sögn Ragn-
hildar munu peningarnir renna
til þess að kosta áætlun land-
læknis um að senda erindreka i
skóla og á vinnustaði til að fræða
ungt fólk um sjúkdóminn. í
næstu viku verður byrjað að
heimsækja skóla í Reykjavík.
Einnig er í undirbúningi útgáfa
bæklings sem dreift verður á öll
heimili i landinu seinna i vetur
og dreifirit til fræðslu fyrir
homma.
„Nýjustu tölur brýna okkur enn
á ný til að snúa við blaðinu áður
en útbreiðslan er orðin of mikil.
Smitanatilfelli alnæmis eru því mið-
ur afar fljót að margfaldast," sagði
Ragnhildur. „Áhættan er mest í
yngstu aldurshópunum, 15-25 ára,
því á þeim aldri er fólk oft að leita
sér að maka og stofnar til ýmissa
lausasambanda. Fólk á þessum
aldri þarf því að vita mjög vel um
þær hættur sem slík sambönd hafa
í för með sér.“
Ólafur Ólafsson,landlæknir, vildi
þakka heilbrigðisráðherra fyrir
þetta framtak. „Ég vil þakka henni
þann dugnað að útvega aukafjár-
veitingar í þetta verkefni. Eins og
vitum ekki hver yrði úrskurður
þeirra."
Ólafur staðfesti að tveir eitur-
lyfjasjúklingar, karl og kona, væru
undir slíku eftirliti lækna. Að sögn
hans hefur annar þeirra nú yfirgef-
ið landið.
stendur virðist þetta fé duga vel,
en vitaskuld veit maður ekki hvað
framtíðin ber í skauti sér.“
Að sögn Ólafs hefur það komið
í ljós að alnæmi breiðist út fyrir
áhættuhópana aðallega fyrir til-
stuðlan eiturlyfjasjúklinga. „Það er
útbreiddur misskilningur að hafi
maður ekki náin samskipti við
homma eða eiturlyfjaneytanda sé
viðkomandi á fríum sjó,“ sagði
hann. „Staðreyndin er sú að það
er nóg að eiga samskipti við ein-
hvem sem hefur haft náin kynni
af smituðum eiturlyfjasjúklingi fyr-
ir einu til tveimur árum til þess að
vera í hættu.“ Hann sagði að lækn-
ar og læknanemar hefðu verið
fengnir til þess að fara í fram-
haldskólana og á vinnustaði á
næstu vikum. „Við viljum ekki líta
á þetta sem sérstakt átak sem
gæti fjarað út. Svona aðgerðir verða
sífellt að vera í gangi. Því hef ég
óskað eftir því að ráða fræðslufull-
trúa sem muni sinna slíkum ferðum
í framtíðinni."
Ritinu, sem áður er nefnt og
dreift verður á öll heimili, er rit-
stýrt af Haraldi Briem, smitsjúk-
dómasérfræðingi. Á vegum
landlæknis er einnig unnið að gerð
bæklings fyrir homma og mun hon-
um verða dreift í samvinnu við
Samtökin ’78. Verkefnið í heild er
unnið í samstarfi landlæknisem-
bættisins, heilbrigðisráðuneytisins
og Farsóttanefndar ríkisins.
Kristín Anna Þórarins-
dóttir, leikkona, látin
Fræðsluherferð af
stað gegn alnæmi
VEÐURHORFUR í DAG:
YFIRLIT á hádegi f gær: Um 200 km vestur af Snæfellsnesi er 980
millibara smálægð og önnur álíka 300 km suðvestur af Vestmanna-
eyjum, báðar a leið norðnorðaustur.
SPÁ: Vestanátt, allhvöss eða hvöss (7-8 vindstig), verður rikjandi
á landinu. Él eða haglél um sunnan- og vestanvert landið en úrkomu-
laust annars staðar. Hiti á bilinu -2 til 2 stig.
I/EÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
FIMMTUDAGUR: Aðfararnótt fimmtudagsins verður enn vestanátt
á landinu, með éljum vestanlands og á annesjum norðanlands.
Þegar kemur fram á daginn snýst vindur til suðaustanáttar, hlýn-
andi í bili, og fer að rigna um sunnan- og vestanvert landið.
FÖSTUDAGUR: Útlit fyrir noröaustanátt með snjókomu á Vest-
fjörðum og ef til vill einnig norðanlands, en vestan- eða suðvestanátt
með éljum sunnan til á landinu. Veður fer heldur kólnandi.
TÁKN: x Norðan, 4 vindstig: ' Vindörin sýnir vind- 10 Hhastig: 10 gráður á Celsíus
A stefnu og fjaðrirnar • V * V Skúrir Él
Heiðskírt v vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig.
“(jlk Léttskýjað / / / r r r r Rigning Þoka
r r r z=z Þokumóða
.rA Hálfskýjað * / * ? 5 Súld
*|gjj| Skýjað / * / * Slydda r * r * * * oo 4 Mistur Skafrenningur
0“»* * * * * Snjókoma * * * K Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að M tíma
hiti veflur
Akureyri 3 súld
Reykjavik 6 rigning
Bergen 7 skýjafl
Helsinki 4 rigning
Jan Mayen -2 frostúði
Kaupmannah. 9 skýjafl
Narssarssuaq -5 snjókoma
Nuuk -« skýjafl
Osló 2 léttskýjað
Stokkhólmur S skýjað
Þórshöfn 8 rigning
Algarve 22 heiðskírt
Amsterdam 11 skýjað
Aþena 17 skýjað
Barcetona 16 heiðskirt
Berlín 8 skýjað
Chicago 4 alskýjað
Glasgow 10 skýjað
Feneyjar vantar
Frankfurt 6 skýjað
Hamborg 10 skýjað
Las Palmas 23 hálfskýjað
London 10 skýjað
LosAngeles 14 léttskýjað
Lúxemborg 6 skýjað
Madríd 17 léttskýjað
Malaga 20 hálfskýjað
Mallorca 19 léttskýjað
Miami vantar
Montreal 6 rigning
Nice 17 iéttskýjað
NewYork 9 rigning
Paris 7 þoka
Róm 16 tkýjað
Vín 6 skýjað
Washlngton 8 alskýjað
KRISTÍN Anna Þórarinsdóttir,
leikkona, lést á Borgarspítalan-
um í Reykjavík, aðfaranótt
sunnudagsins 2. nóvember síðast-
liðins á 51. aldursári.
Kristín Anna fæddist í Reykjavík
26. október 1935, dóttir hjónanna
Öldu Möller leikkonu og Þórarins
Kristjánssonar símritara. Hugur
hennar hneigðist snemma að leiklist
og hún hóf ung leiklistarnám og
gat sér g;ott orð fyrir hæfileika sína
á því sviði. Má þar meðal annars
nefna leik hennar í „Glerdýrin" eft-
ir Tennessee Williams og túlkun
hennar á Julíu í „Rómeó og Júlía“
eftir William Shakespeare. Hin
síðari ár fékkst Kristín Anna mikið
við leikstjórn og setti upp fjölda
verka, m.a. fyrir áhugamannaleik-
hús víða um land. Hún starfaði
mikið að leiklistarmálum við
Menntaskólann á Laugarvatni, þar
sem hún bjó um margra ára skeið
með eftirlifandi manni sínum Kristj-
áni Ámasyni. Hún lætur eftir sig
fjögur uppkomin böm.
Kristín Anna Þórarinsdóttir.
Guðmundur G.
í prófkjör
GUÐMUNDUR G. Þórarinsson,
fyrrverandi alþingismaður
Framsóknarflokksins í
Reykjavík, tók þá ákvörðun í
gær, að taka þátt í prófkjöri
framsóknarmanna í Reykjavík
fyrir næstu alþingiskosningar,
og stefna að því að ná fyrsta sæti.
Þegar hafa þeir Haraldur Ólafs-
son alþingismaður og Finnur
Ingólfsson aðstoðarmaður sjávarút-
vegsráðherra lýst því yfir að þeir
taki þátt í prófkjörinu í Reykjavík
og stefni að því að ná fyrsta sætinu.