Morgunblaðið - 05.11.1986, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. NÓVEMBER 1986
21
Já o g nei
Heimir Pálsson beðinn um stutta ræðu
Skattheimta
Þegar stjórnvöld standa frammi
fyrir því að þurfa að afla tekna til
að mæta útgjöldum er mikilvægt
að hafa til hliðsjónar eftirfarandi
grundvallarreglur:
* Skattkerfíð á að vera einfalt,
auðskiljanlegt og ódýrt í fram-
kvæmd.
* Við skattheimtu á að gæta fyllsta
samræmis, þ.e.a.s. hvers konar
mismunun milli atvinnugreina,
félagsforma, sparnaðarforma og
neyslu er óæskileg og ýtir undir
óhagkvæmni.
* Skattbyrðin má ekki vera svo
þung, að hún dragi úr framtaki
einstaklinga eða hvetji til undan-
dráttar.
Óhætt er að fullyrða að þessar
grundvallarreglur eru brotnar nú.
í fyrsta lagi er skattkerfið af-
skaplega flókið. Framtali skatta,
innheimtu þeirra og greiðslu fylgir
ómæld skriffinnska. Tími og verð-
mæti fara því forgörðum, bæði hjá
gjaldendum og hinu opinbera.
í öðru lagi er misræmi mikið.
Söluskattskerfið gerir upp á milli
vörutegunda vegna fjölmargra und-
anþága, en þar að auki mismunar
það atvinnugreinum vegna upp-
söfnunar söluskattsins. Þótt tekju-
skattskerfið hafi verið endurskoðað
að nokkru 1984 með það fyrir aug-
um að jafna skattameðferð hluta-
bréfa og annars sparifjár, vantar
mikið á, að jafnræði sé náð. Gjöld
af innflutningi eru fjölmörg og
skyldum vörum mismunað. Mis-
ræmið sem skattakerfið skapar er
fyrst og fremst slæmt vegna þess
að eitt skilyrða hagkvæmrar verð-
mætasköpunar er jafnræði.
Samkeppni á jafnréttisgrundvelli er
líklegust til að leiða til mestrar verð-
mætasköpunar. Mismununin
dregur úr eðlilegri viðleitni til þess
að skapa verðmæti.
í þriðja lagi er hætt við að of
mikil heildarskattbyrði dragi úr
framtakssemi og skerði þar með
skattstofninn. Dæmi eru um það
erlendis að lækkun á skatthlutfalli
tekjuskatts hafí leitt til meiri skatt-
tekna en ekki minni eins og
mönnum hættir til að álykta.
Tvennt kemur hér til: Það borgar
sig að auka vinnuframlag og þar
með tekjur. Hitt skiptir þó ekki
minna máli hér, þar sem vinnutími
er langur, að líklegra er, að talið
sé rétt fram og síður leitað leiða
til að komast hjá skattgreiðslu, séu
skattar hóflegir og einfaldir.
Til að ráða bót á þessu þarf að
gera skattkerfið einfaldara, regl-
urnar almennari og lækka skatt-
prósentur. Virðisaukaskattur er í
þessum anda og einnig fyrirhugað-
ar breytingar á aðflutningsgjöldum,
en þar er gert ráð fyrir lækkun og
samræmingu. Tekjuskattskerfinu
ætti að breyta með sömu grundvall-
aratriði til hliðsjónar. Þannig á að
greiða sama hlutfall af öllum tekj-
um og heimila aðeins frádrátt vegna
framfærslu bama. Að öðm óbreyttu
ætti 15% skattur á tekjur með sam-
tímagreiðslu að nægja til að afla
ríki og sveitarfélögum þeirra tekna,
sem nú fást með tekjuskatti og
útsvari. Jafnframt er nauðsynlegt
að eigið fé og arður af því verði
skattlagt með sama hætti og annað
sparifé. Til að bæta eiginfjárstöðu
fyrirtækja væri einnig rétt að beita
skattalögunum til að hvetja al-
menning til að íjárfesta í atvinnulíf-
inu. Þá ætti fasteignaskattur að
koma í stað aðstöðugjalds sem
helsta tekjuöflunarleið sveitarfé-
laga enda er lítið samhengi á milli
aðstöðugjaldsstofns og þjónustu
sveitarfélaga við fyrirtæki auk þess
sem gjaldið hefur óeðlileg áhrif á
skipulagningu atvinnustarfsemi.
Aðra skatta og gjöld ber að leggja
niður.
eftir Gísla Ól.
Pétursson
Umræðan heldur áfram.
Heimir Pálsson gagnrýnir í
Mbl. og Þjv. 29. okt. sl. hvemig
ég rökstyð NEI-afstöðu mína og
hvetur félagsmenn okkar í HIK
til að segja JA. Þetta kemur ekki
á óvart enda vomm við hvor um
sig forsvarar þessara andstæðu
sjónarmiða á síðasta þingi félags-
ins.
NEI-afstaðan — hlutlæg rök.
NEI-afstaðan er sú, að HÍK
verði ekki lagt niður en sameigin-
leg verkefni færð undir umsýslu
Bandaiags kennarafélaga. Það er
í samræmi við það, sem næstsíð-
asta þing félagsins taldi sig
samþykkja sem stefnumótun um
samstarf við KÍ. Þessa afstöðu er
auðvelt að rökstyðja með hlutlæg-
um rökum m.a. eins og ég gerði
í grein minni og Heimir staðfestir,
þó honum þyki þau ekki nægileg
fyrir sig.
JA-afstaðan — huglæg rök.
JÁ-afstaðan er sú, að HIK, KI
og BK verði öll lögð niður og stofn-
að eitt félag gmnn- og framhalds-
skólakennara, en sú mun hafa
verið stefna forystu KÍ um þetta
samstarf. Þessa afstöðu er ekki
gott að rökstyðja með hlutlægum
rökum og Heimir, sem og aðrir
talsmenn þessarar afstöðu, hafa
notað huglæg rök.
Við erum sammála um hver eru
meginatriðin.
Heimir tekur sér fyrir hendur
að svara spumingum mínum fyrir
sitt leyti. Með því staðfestir hann
að þær taka til meginatriða og að
þeim er verið að svara þegar tekin
er afstaða til þess hvort HIK-
kennarar eru betur settir með
félag sitt eða án þess.
Lakara var að svör hans voru
ekki sérlega hlutlæg. Satt best að
segja voru þau sisona fremur í
formi dulítils útúrsnúnings ásamt
með smávegis rýrð á mína per-
sónu.
Röksemdafærslan kom ekki.
Heimir segir í grein sinni:
„Freistandi væri að setja hér á
langar ræður um fagvitund kenn-
arastéttarinnar og baráttumál og
rifja þannig upp enn eina ferðina
það sem margoft hefur verið skrif-
að. Það var ekki ætlun mín.“
Skamman tíma hafði Heimir til
að semja grein sína og ekki nægan
til að setja saman hinar löngu
ræður. Svo er á honum að skilja
að í þeim sé að fínna hinar gildu
röksemdir. Skaði var að þær komu
ekki fram.
Beðið um ræðu.
Við, kennarar í HIK, viljum
geta tekið afstöðu á grundvelli
rökstuðnings með og móti.
Ég vil því í einlægni biðja Heimi
að setja saman nokkra ræðu um
þetta efni, þar sem verði að finna
röksemdimar fyrir því að leggja
beri niður félag okkar. Þær eru
nauðsynlegar til að taka megi
ígrundaða ákvörðun. í hóflega
löngu máli eiga þær erindi á síður
dagblaða því alls eru kennarar vel
á fimmta þúsund í okkar tindrandi
Gísli Ól. Pétursson
„HÍK er stéttarfélag og
gætir hagsmuna félags-
manna sinna á tiltekinn
hátt. Egtel óviðunandi
að leggja það niður
nema vissa sé um að
með því styrkist staða
okkar. Heimir telur
önnur sjónarmið vega
þyngra. Hver eru þau?“
fagra landi og ekki á annan betri
hátt hægt að ná til þeirra allra.
Með stéttarfélagi gætum vlð
hagsmuna okkar.
HÍK er stéttarfélag og gætir
hagsmuna félagsmanna sinna á
tiltekinn hátt. Eg tel óviðunandi
að leggja það niður nema vissa
sé um að með því styrkist staða
okkar. Heimir telur önnur sjónar-
mið vega þyngra. Hver eru þau?
Höfundur er kennari og á sæti í
stjórn HÍK ogístjóm BK.
.HAPPDRÆTH
HAUSE
SJALFSTÆÐISFLOKKSENSi
VERÐMÆTIR VINNINGAR
GREIÐSLUKORTAÞJÓNUSTA
HRINGIÐ I SIMA 82900
Skrifstofan Háaleitisbraut 1 er opin virka daga
frá kl. 9-22 og um helgar kl. 10-17.
Sjálfstæðismenn, eflum flokksstarfið,
gerum skil á heimsendum happdrættismiðum