Morgunblaðið - 05.11.1986, Qupperneq 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. NÓVEMBER 1986
Matthías Á. Mathiesen á fundi með
Jeffrey Howe:
Samskipti Islands
og EB rædd í Vín
Morgfunbladsins.
Vín. Frá Onnu Bjarnadóttur, fréttaritara
MATTHÍAS A. Mathiesen, ut-
anríkisráðherra íslands, ræddi
við Jeffrey Howe, utanríkisráð-
herra Bretlands, um samstarf
íslands við Evrópubandalagið í
Vín í gær. Howe látvarður ávarp-
aði Ráðstefnuna um öryggi og
samvinnu í Evrópu, RÖSE, fyrir
hönd Bretlands og Evrópubanda-
lagsins í upphafi hennar og átti
Biðst vægðar
fyrir bylting-
ardómstóli
Managua, AP.
EUGENE Hasenfus baðst í gær
vægðar fyrir byltingardómstóln-
um í Nicaragua. Rétturinn mun
skera úr um hvort Hasenfus hafi
gert sig sekan um hryðjuverk og
aðra glæpi þegar hann flutti vopn
fyrir skæruliða, sem berjast gegn
stjórn sandinista.
Veijandi Hasenfus er Griffin Bell,
fyrrum dómsmálaráðherra í Banda-
ríkjunum. Hann sagði að undirbúin
hefði verið yfirlýsing, sem hinn
ákærði ætlaði að lesa. Griffin sagði
að yfírlýsingin mundi ekki breyta
gangi himintunglanna. „Við vonumst
til þess að hún verði til þess að Has-
enfus hljóti vægan dóm. Það er von
okkar að þessi sönnunargögn, sem
við ætlum að leggja fram, verði til
þess að sandinistastjómin sýni mis-
kunn.“
Þrír menn eru dómendur í bylting-
ardómstólnum, lögfræðingur, vöru-
bílstjóri og verkamaður.
fund með Matthíasi skömmu
síðar.
„Við fjölluðum um ráðstefnuna
og þætti sem Howe lagði áherslu á
í sambandi við hana í ræðu sinni,“
sagði Matthías. „Við vorum sam-
mála um að fijáls viðskipti séu
mikilvægur þáttur sem getur stuðl-
að að auknum mannréttindum eins
og hann sagði í ræðu sinni.
Ég gerði honum grein fyrir ætlun
Islendinga að auka samskipti við
Evrópubandalagið með því að opna
sendiráð í sambandi við það í Bruss-
el í desember og bauð honum að
vera viðstaddan opnunina." Howe
er nú formaður ráðherranefndar
bandalagsins. „Við ræddum einnig
samskipti íslands og Bretlands lítil-
lega og samstarf þjóðanna í Atl-
antshafsbandalaginu. Við vorum
sammála um að það verður að
gæta þess vandlega að ekki komist
á misvægi í öryggismálum þegar
afvopnunarml á einu sviði en ekki
öðru eru rædd.“
Howe átti fund með Shew-
ardnadse, utanríkisráðherra Sov-
étríkjanna, í gærmorgun. Þeir
ræddu afvopnunarmál, samband
Sýrlands við hryðjuverkamenn og
útfærslu landhelginnar við Falk-
landseyjar. Hann gerði Shew-
ardnadse grein fyrir stuðningi
Breta við afstöðu Reagans í
Reykjavík. Howe sagði á fundi með
fréttamönnum að Shewardnadse
hefði verið harður á því að Sovét-
menn væru reiðubúnir að semja um
afnám kjamorkuvopna en geim-
vamaráætlun Bandaríkjanna yrði
að vera hluti af því samkomulagi.
AP/Símamynd
Biðin senn á enda
David P. Jacobsen, sem öfgasinnaðir shítar héldu föngum í 17 mánuði í Beirút, kom á þriðjudag
til Vestur-Þýskalands. Mynd þessi af börnum hans var tekin í flugstöðinni í Frankfurt en þangað
komu þau til að taka á móti föður sínum. Lengst til vinstri er Eric, sonur David Jacobsen, en við
hlið hans stendur Diane Duggan, systir hans. Fyrir miðri myndinni er Cathy Jacobsen en hún er
gift Paul sem er lengst til hægri.
Gengi gjaldmiðla
London, AP.
BANDARÍKJADALUR hækkaði
gagnvart jeninu í gær en lækk-
aði gegn öðrum helztu gjaldmiðl-
um. Því var spáð að dalurinn
kynni að lækka enn frekar ef
demókratar ynnu meirihluta í
öldungadeildinni í kosningunum
í gær.
Dalurínn lækkaði gagnvart sterl-
ingspundinu, sem kostaði 1,4155
dollara miðað við 1,4130 í fyrra-
kvöld. Hann hækkaði hins vegar
um 2,15 jen í Tókýó og var skráður
þar á 163,60 jen miðað við 161,45
sl. föstudag, en peningamarkaður
var lokaður á mánudag. í London
í gærkvöldi var dalurinn skráður á
1,6385 jen.
Annars var gengi dalsins þann
veg í gær að fyrir hann fengust:
2,0570 v-þýzk mörk (2,0700)
1,7135 svissn. frankar (1,7223)
6,7115 franskir frankar (6,7500)
2,3245 holl. gyllini (2,3370)
1.420,50 ít. lírur (1.429,00) og
1,39025 Kanadadalir (1,39145).
Gullverð hækkaði í 408,50 dali í
Zurich (405,50) og 408 í London
(406).
ÞEGAR FÆRÐ
OG VEÐUR GERA
AKSTUR ERFIÐAN
TERCEL 4WD
TOYOTA
Á reynslubrautum Toyota hefur Tercel 4WD
farið í gegnum erfið próf.
Hann heldursínu striki í frosti, hita, regni
og þurrki og hefur sannað ágæti sitt við
erfiðustu aðstæður.
En prófraun tímans er samt mikil-
vægust.
Ánægðir ökumenn um allan
heim hafa reynt Tercel 4WD á því
prófi og farið með sigur af hólmi.