Morgunblaðið - 05.11.1986, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. NÓVEMBER 1986
29
j Bandaríkjamanna
fi íslenska ríkisins -
Noregur og Svíþjóð og að hluta til
Bretland, fella alveg niður skatt-
lagningu söluhagnaðar hafi menn
átt viðkomandi hlutabréf í tilskilinn
tíma, oftast á bilinu 2—5 ár.
Fyrir skattalagabreytinguna í
Bandaríkjunum var 60% af sölu-
hagnaði ekki skattskyldur og aðeins
var lagður 20% skattur á þau 40%
sem ekki voru skattfrjáls. Við breyt-
inguna voru þessi fríðindi felld niður
og tekjur vegna söluhagnaðar eru
nú skattlagðar á nákvæmlega sama
hátt og aðrar tekjur. Þar var horfið
frá skattívilnunum sem í upphafi
voru hugsaðar til að örva spamað
og til að laða fram áhættufé og
framtaksfé til atvinnureksturs. I
staðinn var tekið upp kerfi þar sem
skattlagning er hlutlaus gagnvart
því hvemig teknanna er aflað.
Skattfrelsi til
að örva sparnað?
Vaxtatekjur hafa verið skatt-
fijálsar hjá einstaklingum hér á
landi um árabil. Hugsanlegt er að
skattlagning vaxtatekna hefði áhrif
til að draga úr sparnaði og til að
hvetja til neyslu og eyðslu í stað-
inn. Telji stjómvöld ástæðu til að
beita skattkerfínu sérstaklega til
að örva spamað er markvissast að
beita þeirri leið sem nefnd var hér
að framan, þ.e. að veita skattfrá-
drátt í einhveijum mæli vegna
tekna einstaklinga sem ráðstafað
er í viðurkennd spamaðarform en
skattleggja þær síðan, ásamt þeirri
ávöxtun er orðið hefur, er gengið
er á spamaðinn. Nokkrar þjóðir,
t.d. Bandaríkjamenn og Svíar, hafa
beitt þessari aðferð til að gefa
mönnum tækifæri til að koma sér
upp eigin eftirlaunasjóði. Belgar,
sem náðu verulegum árangri við
að glæða hlutabréfaviðskipti í landi
sínu með því að veita tímabundinn
skattfrádrátt vegna hlutabréfa-
kaupa á árunum 1982 til 1985 (sbr.
lög um fjárfestingu manna í at-
vinnurekstri nr. 9/1984), hyggjast
nú breyta til og taka að beita skatt-
kerfinu til að hvetja menn til að
koma sér upp „eigin eftirlaunasjóð-
um“.
í núverandi skattkerfí er veittur
fullur frádráttur vegna vaxtakostn-
aðar fyrirtækja og þeir einstakling-
ar sem eru að fjárfesta í eigin
húsnæði hafa einnig mjög rúmar
heimildir til vaxtafrádráttar. Skatt-
frádráttur vegna vaxtagjalda, bæði
fyrirtækja og einstaklinga, er að
líkindum langstærsti frádráttarlið-
urinn í skattkerfí okkar, þ.e. þeim
sem skulda eru veittar skattívilnan-
ir sem vega þyngra en nokkrar
aðrar. Vegna þess að það eru eink-
um fyrirtæki sem skulda en ein-
staklingar sem leggja fram spamað
verður þessi skattfrádráttur vegna
vaxtagjalda í atvinnurekstri til þess
að flytja skattbyrðina frá fyrritækj-
um til einstaklinga. Áður hefur
verið bent á misræmið í skattlagn-
ingu fyrirtækja eftir því hvort þau
afla sér fjármagns með því að taka
lán og skulda eða með því að selja
hlutabréf og treysta á framtaksfé.
Vakin er athygli á þessum þáttum
hér vegna þess að vilji stjómvöld
beita skattkerfmu til að laða fram
aukinn sparnað hafa þau þama úr
umtalsverðum fjármunum að spila.
Um „eigin eftir-
launasjóði44
Lífeyriskerfi íslendinga hefur
verið í endurskoðun um árabil og
hefur raunar verið bætt og lagfært
til muna á síðustu árum með því
að veita þeim ákveðin lágmarksrétt-
indi sem höfðu engin eða hverfandi
réttindi fyrir. Á hinn bóginn er kerf-
ið enn klofíð í marga tugi lífeyris-
sjóða, sem allir em opinberlega
viðurkenndir (t.d. með því að
greiðslur lífeyrisiðgjalda til þeirra
njóta skattfrádráttar). Þau lífeyris-
réttindi sem sjóðir þessi lofa eru
þó afar mismunandi. Talið er að
margir sjóðanna geti ekki staðið
við skuldbindingar sínar þegar
„þjóðin tekur að eldast", þ.e. þegar
fólk á vinnualdri verður orðið miklu
færra hlutfallslega í samanburði við
böm og unglinga og lífeyrisþega
en nú er.
I nágrannalöndunum hefur í
auknum mæli verið farin sú leið til
að bæta úr ástandinu í lífeyrismál-
um að gefa fólki kost á að koma
sér upp „eigin eftirlaunasjóðum".
Sjóðir þessir geta verið einkaeign
þess sem sparar, einstaklings eða
fjölskyldu, eða á vegum fyrirtækja
fyrir hönd starfsmannanna. Þessir
eftirlaunasjóðir, sem jafnan njóta
einhvers konar skattfríðinda til
jafns við opinber lífeyriskerfi, em
einkum hugsaðir sem viðbót við
þann lífeyri sem opinbera kerfið
tryggir. Með þessum hætti er þeim
sem vilja fresta neyslu og spara til
síðari tíma gefínn kostur á að leggja
fyrir og sá spamaður nýtur sömu
eða svipaðra skattfríðinda og ið- •
gjaldagreiðslur í opinbem lífeyris-
kerfí.
Með skattlagningu fjármagns-
tekna skapast vissulega sú hætta
að spamaðarhneigð almennings
minnki. Sé breytingin hluti af
víðtækri breytingu á tekjuöflunar-
kerfi ríkisins, þar sem m.a. yrði
tekinn upp nokkurn veginn flatur
tekjuskattur með fáum frádráttar-
liðum, staðgreiðsla tekjuskatts og
eignaskattar yrðu felldir niður, virð-
ist ekki ástæða til að óttast
gagngera breytingu á spamaðar-
venjum fólks. Lækkun jaðarskatta
verður að öðm gefnu til að auka
spamað og nokkur skattfríðindi
vegna „eigin eftirlaunasjóða" í svip-
uðum dúr og brotið hefur verið upp
á í viðskiptalöndunum og lýst hefur
verið hér að ofan, gætu orðið til
að auka spamað mikið og jafnframt
orðið umtalsverð uppspretta íjár í
atvinnulífinu.
Núverandi skattlagri-
ing- fyrirtækja á Islandi
Á tekjur íslenskra fyrirtækja er
nú lagður 51% tekjuskattur eftir
að allir frádráttarliðir hafa verið
reiknaðir frá, svo og tillög í fjárfest-
ingarsjóð (hámark 40% af tekjum
fyrir skatt) og tillög í varasjóð.
Varasjóðstillög hafa verið heimiluð
með framlengingu á fyrri heimild-
um allt fram á síðasta ár og hafa
numið 25% af tekjum fyrir skatt.
Fymingarhlutföll eigna ráða
einnig miklu um skattlagningu í
rekstri fyrirtækja. Hraðar afskriftir
hafa í för með sér að fjárfestingu
fylgir mikill frádráttur framan af
endingartímanum og þess vegna
hlutfallslega minni skattskyldar
tekjur, en minni frádráttur er líða
tekur á endingartímann og þess
vegna tiltölulega meiri skattskyldar
tekjur. I íslenskum skattalögum er
heimilað að fyrna verksmiðjuvélar
og hvers konar iðnaðarvélar og
tæki um 15% á ári þannig að fjár-
festingin afskrifast á sex til sjö
ámm, en vélar og tæki til jarð-
vinnslu og mannvirkjagerðar,
bifreiðar og önnur flutningatæki og
skrifstofuáhöld og -tæki um 20% á
ári.
Auk þess greiða fyrirtækin að-
stöðugjald ásamt fleiri sköttum til
sveitarfélaga. Aðstöðugjald mis-
munar fyrirtækjum vemlega eftir
atvinnugreinum og þarfnast nokk-
urrar lagfæringar, en verður ekki
til frekari umfjöllunar hér fremur
en aðrir skattar til sveitarfélaga.
Breytingar á skattlagn-
ingn fyrirtækja í Bret-
landi og Bandaríkjunum
Til samanburðar má geta þess
að fyrir breytingu á bandarísku
skattalögunum var lagður 46%
skattur á tekjur fyrirtækja en í lög-
unum var mikið um alls lags
heimildir til skattfrádráttar. Fyrir
breytingu vom fímm eignaflokkar
þar sem heimiluð var 3 til 19% fym-
ing á ári en flýtifyming var einnig
heimiluð. Eftir skattbreytingu
Bandaríkjamanna em eignaflokkar
átta og fymingarhlutföll á bilinu
frá 3 til 31,5% á ári en heimild til
flýtifymingar hefur verið numin úr
gildi. Með nýju skattalögunum í
Bandaríkjunum verður tekjuskattur
fyrirtækja einnig lækkaður úr 46%
í 34% en á móti verða felldir niður
fjölmargir frádráttarliðir. I heild
verður árangurinn sá að skattbyrði
flyst af einstaklingum yfir á at-
vinnufyrritæki og em þau áhrif
meðal þess sem mest er umdeilt í
bandarísku skattkerfisbreyting-
unni.
I ijárlögum Breta sem lögð vom
fram á árinu 1984 var tekjuskattur
fyrirtækja lækkaður úr 52% í þrep-
um í 35% á árinu 1986. Jafnframt
var 100% flýtifyrningu á fjárfest-
ingarári breytt, einnig í þrepum, í
25% afskriftir á ári (þannig að á
ári 2 er heimilað að afskrifa 25%
af þeim 75% af upphaflegu verði
sem eftir var). Það er ljóst.að breyt-
ingar á skattlagningu bæði í
Bretlandi og í Bandaríkjunum miða
i þá átt að lækka skatthlutfallið og
gera skattlagningu með því móti
sanngjamari, en loka um leið und-
ankomuleiðum og fella niður
frádráttarliði og gera með því skatt-
lagninguna einfaldari. Heildaráhrif-
in verða raunar til að hækka skatta
á fyrirtækjum, a.m.k. í Banda-
ríkjunum.
Breyting-ar á skatt-
lagningu fyrirtækja
á Islandi
Það hefur lengi verið umdeilt hér
á landi að atvinnufyrirtæki greiða
almennt lága skatta og skattheimt-
an fellur því með tiltölulega meiri
þunga á einstaklinga en ella væri.
Má í því sambandi vitna til upphafs-
orða í þingsályktunartillögu
Ragnars Amalds, fyrrverandi fjár-
málaráðherra, sem flutt var á
síðasta þingi (284. mál, 520.
þingskj.) þótt andi tillögunnar að
öðru leyti sé annar á margan hátt
en í þeim breytingum sem hér hafa
verið raktar: „Alþingi ályktar að
brýna nauðsyn beri til að marka
nýja stefnu í skattamálum og end-
urskoða skattalög með það fyrir
augum að skattbyrðin á tekjum og
útgjöldum fólks með lágar tekjur
eða meðaltekjur léttist en atvinnu-
reksturinn í landinu greiði skatt af
tekjum sínum og veltu undan-
bragðalaust og taki þannig hæfí-
lega þátt í sameiginlegum
útgjöldum landsmanna."
I greinargerð með umræddri
þingályktunartillögu kemur einnig
fram að við álagningu tekjuskatts
á árinu 1985 vegna tekna ársins
1984 greiddu 1968 af 3890 ■fyrir-
tækjum i félagsformi (hlutafélög,
sameignarfélög og samvinnufélög)
engan tekjuskatt. Þau fyrirtæki
sem höfðu skattskyldar tekjur á
árinu 1984, alls 1922 af 3890 fyrir-
tækjum, greiddu aðeins um 700
milljónir kr. í tekjuskatt á árinu
1985. í fjárlögum ársins 1987, sem
lögð voru fram á Alþingi í síðustu
viku, er gert ráð fyrir að tekjuskatt-
ur félaga nemi 1.040 milljónum
króna eða um 2,6% af heildartekjum
ríkisins. Til samanburðar má geta
þess að tekjuskattur fyrirtækja sem
hlutfall af heildartekjum ríkissjóðs
í Bandaríkjunum á árinu 1984 nam
7,1%.
Ljóst er að hér er nokkurra breyt-
inga þörf jafnvel þótt leiða megi
að því gild rök að endanlega greið-
ist allir skattar af neytendum.
Jafnlitlar skattgreiðslur fyrirtækja
og hér um ræðir leiða til vannýting-
ar á skattstofninum, þ.e. tekjum
fyrirtækja, og verða þannig til þess
að skattheimtan fellur á aðra skatt-
stofna með óeðlilegum þunga.
Fyrstu skrefin til að færa skatt-
lagningu fyrirtækja í eðlilegra horf
era einföld. Hlutfallið af tekjum
fyrirtækja sem tekið er í skatt, nú
51%, verður að lækka til muna, t.d.
í 30—35%. Jafnframt yrðu felldar
niður heimildir um tillög í fjárfest-
ingarsjóð og varasjóð. Með þessu
fengist mun einfaldari og sann-
gjarnari skattlagning á tekjur
fyrirtækja en sú sem nú er beitt.
Tillög í fjárfestingarsjóð verða til
þess að menn ráðstafa tekjum á
allt annan hátt vegna skattareglna
en þeir gerðu ella og þetta form á
frádrætti veldur því lakari nýtingu
fjármuna en æskilegt er.
Breyting á skattlagn-
ingu fyrirtækja hluti
af stærri heild
Þess er tæpast að vænta að þau
fyrstu skref sem hér hafa verið
nefnd til breytinga á skattlagningu
fyrirtækja nægi til að færa hana í
„eðlilegt" horf. En á þessa breyt-
ingu verður að líta sem hluta af
heildarendurskoðun á skattkerfinu
og aðrir þættir hennar hafa einnig
áhrif á skattlagningu fyrirtækja.
Sem dæmi má nefna að með leið-
réttingu á því misræmi sem felst í
núgildandi reglum á milli skattlagn-
ingar af skuldabréfum og hlutabréf-
um (sjá hér að ofan) verður
fyrirtækjum gert auðveldara að afla
sér framtaksfjár á innlendum mark-
aði vegna þess að hlutabréf verða
samkeppnishæf við skuldabréf. Með
niðurfellingu eignaskatts fellur
einnig niður ein ástæðan fyrir því
að hlutafélög hafa ekki nýtt sér
skattalegar heimildir til útgáfu
jöfnunarhlutabréfa. Eftir því sem
eiginfjárstaða fyrirtækja batnar
eykst einnig geta þeirra til að greiða
arð af hlutafé og eðlilegan hlut sinn
í sameiginlegum útgjöldum þjóðar-
innar. Miklar skuldir atvinnufyr-
irtkja ásamt háum fjármagnskostn-
aði, oft vegna erlendra lána og
jafnvel gengistaps, leiða til óeðli-
lega mikils vaxtafrádráttar og um
leið til slakrar afkomu, þannig að
lítið eða ekkert verður eftir til að
greiða skatta og arð af hlutafé.
Stjómvöld í sumum löndum hafa
beitt skattkerfínu gagngert til þess
að fá forráðamenn fyrirtækja til að
draga úr skuldum, sérstaklega er-
lendum skuldum, og afla sér
framtaksfjár á innlendum markaði
í staðinn.
Hvað getum við lært af
skattkerfisbreytingum
Bandaríkjamanna?
Áhugamenn um skattamál víða
um lönd velta því nú fyrir sér hver
áhrifín af skattalagabreytingum
Bandaríkjamanna verði á skatt-
lagningu annars staðar í heiminum.
Hér að ofan og í fyrri grein í síðustu
viku hefur verið reynt að setja fram
hugmyndir um breytingar á
íslenska skattkerfínu sem gætu orð-
ið til þess að gera skattlagningu
einfaldari, skilvirkari og skiljan-
lega. Að því leyti eru hugmyndimar
vissulega í sama anda og breyting-
ar Bandaríkjamanna. I upplýsinga-
þjóðfélaginu vill fólk vita og skilja
hvemig skattar eru lagðir á hina
ýmsu skattstofna og með hvaða
hætti ríkið ráðstafar sameiginleg-
um fjármunum þjóðarinnar. Af
þessum ástæðum er nauðsynlegt
að færa skattheimtu íslenska ríkis-
ins í nútímalegra horf. Menn munu
jafnan hafa skiptar skoðanir um
það hvað er sanngjamt en verða
minna ósáttir við að greiða skatta
sína ef þeir skilja hvemig þeir eru
reiknaðir og hvemig þeim er ráð-
stafað. í skattkerfi sem er svo flókið
að sæmilega upplýst fólk getur
ekki reiknað skattinn sinn, og ekki
skilvirkara en svo að kostnaður við
innheimtu verður óhæfílega hár
sem hlutfall af skatttekjunum, verð-
ur aldrei hægt að koma í veg fyrir
skattsvik.
Höfundur er ritstjóri ogábyrgðar-
maður Vísbendingar
„Ungt fólk
í nútíð og
framtíð“
Ráðstefna um
æskulýðsmál
MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ
og Samband íslenskra sveitarfé-
laga efna til ráðstefnu um
æskulýðsmál undir kjörorðinu
„Ungt fólk í nútíð og framtíð"
að Borgartúni 6 í Reykjavík nk.
föstudag og laugardag, 7. og 8.
nóv. Ráðstefnan hefst með af-
hendingu gagna kl. 12.40 á
föstudaginn og henni lýkur upp
úr miðjum degi á laugardag.
Ráðstefnan er ætluð kjömum
fulltrúum í sveitarstjómum, æsku-
lýðs-, tómstunda- og íþróttanefnd-
um og félagsmálaráðum sveitarfé-
laga, þar sem þau fara með
æskulýðsmál, framkvæmdastjórum
sveitarfélaga og starfsmönnum,
sem annast æskulýðs- og félags-
mál.
Björn Friðfínnsson, formaður
Sambands ísl. sveitarfélaga, setur
ráðstefnuna og að því loknu flytur
Sverrir Hermannsson, mennta-
málaráðherra, ávarp. Frummæ-
lendur verða Sven-Even Maamoen,
formaður Norræna æskulýðssjóðs-
ins, Jón Sigurðsson, forstöðumaður
Þjóðhagsstofnunar og formaður
framtíðarnefndar ríkisstjómarinn-
ar, Omar Einarsson, framkvæmda-
stjóri íþrótta- og tómstundaráðs
Reykjavíkurborgar, Vilhjálmur Ket-
ilsson, bæjarstjóri í Keflavík, Ágúst
Þorsteinsson, skátahöfðingi, Reynir
G. Karlsson, deildarstjóri í mennta-
málaráðuneytinu, Steindór Steind-
órsson, forstöðumaður félagsmið-
stöðva á Akureyri, Pálmi Gíslason,
formaður Ungmennafélags íslands,
séra Sólveig Lára Guðmundsson á *
Seltjamamesi, Bogi Amar Finn-
bogason, formaður foreldrasamtak-
anna Vímulaus æska, Gísli Ámi
Eggertsson, æskulýðsfulltrúi, Þor-
bjöm Broddason, lektor, Hrafn V.
Friðriksson, yfirlæknir, Guðjón
Magnússon, aðstoðarlandlæknir,
Olafur Oddsson, uppeldisráðgjafí
og forstöðumaður Rauðakrosshúss-
ins og Kristín H. Tryggvadóttir,
skólastjóri Selásskóla.
Nýr bátur
íflota
Dalvíkinga
NÝR bátur bættist í flota Dalvík-
inga í lok október. Það var
útgerðarfélagið Bliki hf. sem
keypti um 50 lesta stálbát, Sæþór
EA 101, frá Arsskógsströnd. Fyr-
ir á félagið Blika EA 12,160 lesta
stálskip auk þess sem þeir eiga
helming i hlutafélaginu Upsa-
strönd hf sem á og gerir út
togskipið Baldur EA 108.
Sæþór er ekki með öllu ókunnur
Dalvíkingum því báturinn var
smíðaður fyrir Snorra Snorrason
skipstjóra á Dalvík árið 1973 í
Hafnarfírði.
Sæþór er með um 400 tonna
þorskkvóta en fyrirhugað er að
hann fari til rækjuveiða. Nú er ver-
ið að sandblása bátinn og lagfæra
í Slippstöðinni á Akureyri og mun
hann heija veiðar strax og því verki
er lokið. Kaupverð bátsins var 20
milljónir króna. Skipstjóri verður
Þórir Matthíasson frá Dalvík.
G.Ben. hf. hefur keypt Votaberg
SU 14 frá Eskifrði 134 lesta stál-
skip. Votabergið hefur nú þegar
fengið nafnið Sæþór EA 101. Fyrir-
tækið á fyrir Amþór EA 16, 155
lesta stálskip sem stundar síldveiðar
fyrir Austfjörðum. Á föstudaginn
landaði Arnþór um 100 lestum af
sfld sem var fryst til beitu hér á
Eyjaijarðarhöfnum en samtals hef-
ur skipið aflað um 500 lestir af 700
tonna sfldarkvóta sínum.
-Fréttaritarar.