Morgunblaðið - 05.11.1986, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. NÓVEMBER 1986
33
AKUREYRI
JÓN Guðmundsson, hinn kunni
kylfingur, varð áttræður síðast-
f
Málþingið
22. nóvember:
Sjö fram-
sögnmenn
ÁKVEÐIÐ hefur verið að mál-
þing um menningu, sem menn-
ingarmálanefnd Akureyrar
ætlar að halda, verði laugardag-
inn 22. nóvember.
Nú er ljóst hveijir verða fram-
sögumenn á þinginu. Þeir verða Jón
Hlöðver Áskelsson skólastjóri Tón-
listarskólans, Jón Laxdal Halldórs-
son skáld og myndlistarmaður,
Helgi Vilberg skólastjóri Myndlist-
arskólans, Pétur Einarsson leik-
hússtjóri, Hermann Sigtryggsson
íþrótta- og æskulýðsfulltrúi, Stein-
dór Steindórsson forstöðumaður
æskulýðsmiðstöðvarinnar Dyn-
heima og Lárus Zophaníasson
forstöðumaður Amtsbókasafnsins.
liðinn föstudag. í samsæti, sem
haldið var honum til heiðurs í
Golfskálanum á laugardaginn,
var Jón gerður að heiðursfélaga
í Golfklúbbi Akureyrar.
Það var Jónína Pálsdóttir, vara-
formaður klúbbsins, sem afhenti
Jóni skjal þessu til staðfestingar og
auk þess nældi hún gullmerki fé-
lagsins í barm Jóns.
En Jóni hlotnaðist enn frekari
heiður í hófinu. Gunnar Kárason,
stjórnarformaður í ÍBA, sæmdi
hann gullmerki Iþróttasambands
Islands, æðsta heiðursmerki sam-
bandsins, fyrir mikil og góð störf í
þágu íþróttamála.
Jón hefur stundað golfíþróttina
í áratugi og það kom fram í máli
manna í samsætinu á laugardag
að þeir vissu jafnan að vorið væri
komið þegar Jón væri farinn að
sjást á golfvellinu, þrátt fyrir að
snjór væri enn á jörðu!
Ungur piltur ját-
ar ellefu innbrot
- þrjú innbrot í bænum um helgina
UNGUR piltur játaði við yfir-
heyrslur hjá Rannsóknarlögregl-
unni um helgina að hafa framið
11 innbrot á Akureyri að undan-
förnu, flest í miðbænum.
Pilturinn var handtekinn eftir að
öryggisvörður í versluninni Hag-
Morgunblaðið/Skapti
Þátttakendur í keppninni á Akureyri, frá vinstri: Særún Jóns-
dóttir ásamt módeli, Sigurkarl Aðalsteinssson ásamt módeli og
Inga Lóa Birgisdóttir ásamt módeli.
Frístælkeppni á Akureyri
FRÍSTÆLKEPPNI, tízku- og hársýning, var haldin í Sjallanum
á Akureyri laugardaginn 25. október á vegum tímaritsins Hárs
og fegurðar.
Sigurvegarinn í keppninni var Inga Lóa Birgisdóttir, en samkvæmt
frétt frá aðstandendum keppninnar er þetta fyrsta sinni, sem slík
keppni er haldin á Akureyri. Frístælkeppni hefur verið haldin einu
sinni áður, í veitingahúsinu Broadway og fyrirhugað er að slík
keppni verði árlegur atburður í Reykjavík og á Akureyri á vegum
S.H.H.M. og tímaritsins Hárs og fegurðar.
INNLENT
Morgunblaðið/Trausti Þorsteinsson
Eigendur ílex hf. Örn Arngrímsson, Kristín Júlíusdóttir, Jón Jósefs-
son, Anna Jón Geirsdóttir, Þorsteinn Aðalsteinsson og Sigríður
Rögnvaldsdóttir.
Dalvík:
kaup varð hans var á laugardags-
kvöldið. Pilturinn náðist á hlaupum
er hann reyndi að flýja.
Brotist var inn á þremur stöðum
í bænum um helgina; aðfaranótt
laugardags var brotist inn í umboð
Samvinnutrygginga þar sem pen-
ingum var stolið og aðfararnótt
sunnudags var svo brotist inn í
Spilahöllina, sem er leiktækjasalur,
og þaðan stolið peningum og mynd-
bandstæki.
Áður var minnst á innbrotið í
Hagkaup en hin tvö eru enn óupp-
lýst.
ílex - ný blóma- og
gjafavöruverslun
NÝLEGA var opnuð ný blóma- og gjafavöruverslun að Skíðabraut 3
á Dalvík, þar sem áður var til húsa bókasafn Dalvíkur. Verslunin
hefur hlotið nafnið Ilex og er hún í eigu þriggja hjóna, Kristínar
Júlíusdóttur og Arnar Arngrímssonar, Ónnu Jónu Geirsdóttur og
Jóns Jósefssonar og Sigríðar Rögnvaldsdóttur og Þorsteins Aðal-
steinssonar.
Verslunin Ilex kemur í stað versl-
unarinnar Ýlis að Hafnarbraut sem
áður bauð upp á blóm og gjafavör-
ur en hún hefur nú hætt starfsemi
sinni. ílex er plöntuheiti og nefnist
á íslensku kristþymir eða jólakvið-
ur. Enskumælandi menn nefna við
þennan „Holly“ og hafa mikið dá-
læti á honum sem borgarnafnið
„Iiollywood" ber með sér. Það hef-
ur sýnt sig að þau ár sem Ýlir bauð
upp á blóm að mikil þörf er á slíkri
verslun hér á Dalvík. Hjá ílex er
mjög fjölbreytt úrval af pottablóm-
um, afskomum blómum svo og
þurrkuðum blómum til ýmiss konar
skreytinga og er verslunin öll hin
huggulegasta. Auk þess em á boð-
stólum gler- og leirvörur til gjafa.
Fréttaritarar.
Sauðfjárslátrun lokið á Dalvík:
^ 14 dilkar í stjömuflokk
SAUÐFJARSLATRUN er lokið á
Dalvík í sláturhúsi útibús Kaup-
félags Eyfirðinga. Alls var
slátrað 10.745 kindum. Af þess-
ari tölu voru 9.130 dilkar og
1.624 fullorðið fé. Þetta er held-
ur fleira fé en ráð var fyrir gert
Kaldbakur:
Landaði afla að verð-
mæti 2,5 milljónir kr.
KALDBAKUR landaði 151 tonni
hjá Útgerðarfélagi Akureyringa
á mánudaginn. Heildarverðmæti
aflans voru 2 milljónir og 578
þúsund krónur.
Kaldbakur kom með mest af grá-
lúðu að landi, 69 tonn. í aflanum
voru svo 42 tonn af þorski, 32 tonn
af karfa og 15 tonn af ufsa.
Fyrir helgina landaði Hrímbakur
hjá ÚA. Hann var með 77 tonn.
Þar af vom 70 tonn af þorski, 4
af grálúðu og minna af öðmm teg-
undum. Heildarverðmæti aflans var
1,7 milljónir króna.
þar sem til kom, vegna riðuveik-
innar, niðurskurður á fullorðnu •
fé af þremur bæjum í Saurbæjar-
hreppi í Eyjafirði: Villingadal,
Hólum og Krónustöðum.
Fallþungi dilka var með mesta
móti hér um slóðir og má rekja það
til góðæris þess sem ríkti síðastliðið
vor, sumar og haust. Meðalfall-
þungi dilka var sem hér segir:
Dalvík 15,76 kg.
Svarfaðardalshreppur 15,4 kg.
Árskógsstrandarhreppur 15,40 kg.
Ólafsfjörður 17,28 kg.
Saurbæjarhreppur 15,52 kg.
Þyngsta dilkinn, sem vóg 29
kgv átti Garðar Steinsson í Engihlíð
á Árskógsströnd og hæsta meðal-
vigt var á innlögðum lömbum
Andrésar Kristinsonar á Kvíabekk
í Ólafsfirði. Tæp 3% af innlögðum
dilkum fóm í O-flokk eða 249
skrokkar og aðeins 14 dilkar fóm
í stjömuflokk.
Fréttaritarar.
Dagskrá til heiðurs Krisljáni frá
Djúpalæk frumsýnd á laugardag
Golfklúbbur Akureyrar:
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Jónína Pálsdóttir, varaformaður GA, sæmir Jón Guðmundsson gull-
merki klúbbsins. Til hægr er eiginkona Jóns, Sigurlína Gísladóttir.
Á LAUGARDAG verður frum-
flutningur á dagskrá til heiðurs
Kristjáni frá Djúpalæk í tilefni
70 ára afmælis skáldsins 16. júlí
á þessu ári. Sýningin verður í
veitingahúsinu Svartfugli og
hefst kl. 15. Gestir geta fengið
sér kaffi og meðlæti áður en
sýningin hefst.
„Þetta er leiklesin og sungin sýn-
ing,“ sagði Sunna Borg, leikkona,
í samtali við Morgunblaðið, en hún
hefur haft umsjón með dagskránni.
Sýningin er sett upp eftir skálda-
ferli Kristjáns, byijað á bemskunni
og hver hluti verka hans tekinn
fyrir sérstaklega.
„í dagskránni em sjómannavals-
Jón Guðmundsson gerð-
ur að heiðursfélaga
ar og þekkt dægurlög, lög úr
barnaleikritum og háklassísk lög,“
sagði Sunna. Flytjendur em Kristj-
ana Jónsdóttir, María Árnadóttir,
Ólöf Sigríður Valsdóttir, Þórey Að-
alsteinsdóttir, Þuríðr Baldursdóttir,
Jóhann Möller, Óttar Einarsson,
Páll Finnsson, Bergljót Borg, Þórey
Ámadóttir og Laufey Árnadóttir.
Sögumaður er Sunna Borg en und-
irleikarar Aðalheiður Þorsteinsdótt-
ir og Ingimar Eydal. Ingvar
Björnsson sér um lýsingu. Sunna
Borg og Kristján Kristjánsson, son-
ur skáldsins, tóku efnið sem flutt
verður saman.