Morgunblaðið - 05.11.1986, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. NÓVEMBER 1986
Afmæliskveðja:
Hilmar Bjarna-
son, Eskifirði
Sjötugur er í dag, 5. nóvember,
einn þeirra heiðursmanna sem ég
met hvað mest: Hilmar Bjarnason,
skipstjóri á Eskifirði. Foreldrar
hans voru hjónin Gunnhildur Steins-
dóttir og Bjami Marteinsson, bæði
tvö af austfirskum og skaftfellskum
ættum. Fundum þeirra bar saman
á prestsetrinu Hólmum á fyrstu
árum aldarinnar, en eftir að þau
gengu í hjónaband bjuggu þau á
Eskifirði til elliára, vænar mann-
eskjur og vel látnar af öllum sem
þeim kynntust. Þar fæddist Hilmar
5. nóvember 1916 og hefur aldrei
átt annars staðar heima.
Ég ætti að muna hann fyrst á
leið í og úr skóla, því leið þeirra
Hlíðarsystkina lá um hlaðið hjá
okkur í Framkaupstað, en kem hon-
um samt ekki fyrir mig nema sem
fullvinnandi manni. Það merkir
raunar þegar kynslóð hans á í hlut;
frá því um fermingaraldur. Þá var
hann farinn að róa á árabát með
föður sínum, fara með byssu til
rjúpna eða út með sjó að draga
björg í bú, snúast við fé eða afla
heyja handa kúm og kindum, róa
út, draga fyrir ufsa, puða í kolum
eða salti, taka til hendi við slátrun,
beitningar, aðgerð eða annað sem
vinnufúsum unglingum bauðst, ef
hepjmin var með.
Ég veit ekki hvort hugur hans
stóð til langskólanáms á unglings-
árum, þó mjög sé það líklegt og vel
hefði hann skipað sinn sess í æðstu
menntasetrum. Samt spyr ég mig
stundum hvort nokkur væri að
bættari, ef íslensk sjómannastétt
hefði farið á mis við menn af gerð
Hilmars Bjamasonar, en fjölgað
hefði í staðinn um einn í hópi Iög-
fræðinga, lækna eða presta. Ég er
ekki viss um það.
Hilmar fór snemma að róa á
vélbátum eystra, og þegar sýnt var
orðið að sjómennska yrði ævistarf
hans aflaði hann sér skipstjómar-
réttinda á fískiskipum, varð stýri-
maður og síðar skipstjóri um langa
hríð. Lengst var nafn hans tengt
Björgu SU 9. Hilmar reyndist feng-
sæll hvort sem hann var á síld fyrir
Norðurlandi á sumrin eða stundaði
þorskveiðar á vetrarvertíð austan-
lands eða sunnan, og gilti nokkuð
einu hvort veiðarfæri vom lína, net
eða troll. Hann naut mannhylli,
hafði því löngum valinn kappa í
hveijum rúmi, oft þá sömu ár eftir
ár. Slíkt eykur festu í starfí og
verðúr öllum til farsældar: mann-
skapnum, útgerðinni og þjóðarbú-
inu.
Þegar hann var kominn yfir miðj-
an aldur fór hann í land og hætti
útgerð, en rak í nokkur ár sfldar-
söltunarstöð á Eskifirði í félagi við
Bjöm Kristjánsson, vaskleikamann
sem lést fyrir aldur fram. Þetta var
ekkert stórfyrirtæki, en rekið af
dugnaði og forsjálni og mun hafa
skilað þeim félögum nokkmm arði.
En síldin er brellin, og einn góð-
an veðurdag var hún horfin af
miðum eins og margoft hefur gerst,
í þetta skipti líklega vegna þess að
maðurinn kunni sér ekki hóf og
reyndist henni valtastur vina. Hvað
sem olli var til einskis að sýta. Þá
gerðist Hilmar heilbrigðisfulltrúi á
Eskifirði og erindreki Fiskifélags
íslands á Austurlandi. Þeim störf-
um gegnir hann enn.
Eftir að Hilmar hætti á sjónum
gafst honum betri tími og aðstaða
til að sinna áhugamálum sínum og
hefur mikið áunnist, því hann er
bæði verksígjam, laginn og fylginn
sér. Ég halla á engan þótt ég segi
að hann hafi átt manna mestan
þátt í endurreisn Gömlubúðar á
Eskifirði og stofnun þess sjóminja-
og byggðasafns sem hún geymir.
Þessi virðulega aldna bygging var
orðin svo illa til reika að ýmsum
fannst ekki skaði skeður þótt hún
færi í súginn. Um marga þá hluti
sem þar em forvitnilegastir þyrfti
ekki lengur að spyija, ef Hilmar
hefði ekki verið vakinn og sofínn í
að halda til haga öllu sem menning-
arsögulegt gildi hefur og hvetja
aðra til þess. Allt má níða og allt
má prýða. Það hefur áþreifanlega
sannast á Gömlubúð sem er risin
úr öskustónni og orðin staðarstolt;
hús sem vekur athygli ferðalanga
og löngun til að skoða merkisgripi
og myndir sem þar em innanstokks.
Sagt er að köld sé mágaástin,
en illur rógur væri það um okkur
Hilmar Bjamason: með okkur hefur
ávallt verið hin ágætasta vinátta
frá því er við tengdumst, og við
hann hef ég átt meira og nánara
samstarf en flesta menn aðra. Ef
allt er rakið til róta hygg ég þakka
megi honum, að saga Eskifjarðar
er komin á þann rekspöl sem raun
ber vitni. Á fiigmm sumardegi 1966
fór ég með honum út á fjörð að
vitja um kolanet. Við fómm að engu
óðslega: vomm að virða fyrir okkur
bæinn, hvörfluðum sjónum frá húsi
til húss, létum hugann reika og rifj-
uðum upp atvik úr lífi fólks sem
þar hafði búið í bemsku okkar og
æsku. Talið barst að hver skaði
væri að kunna ekki skil á því helsta
sem hér hefði gerst fyrir okkar
dag. Þegar ég kom suður lagði ég
leið mína niður í Þjóðslq'alasafn;
hafði aldrei komið þangað áður.
Hinn 5. nóvember sendi ég Hilmari
dálitla handskrifaða kompu með
gloppóttu ágripi af sögu staðarins
til að gleðja hann á fimmtugsaf-
mælinu. Þetta var upphaf verks sem
ég sleppti ekki hendi af í full tutt-
ugu ár. Allan þann tíma unnum við
markvisst saman að sögurituninni
og ýmsu sem henni tengdist, því
Hilmar hefur verið formaður
Byggðarsögunefndar Eskifjarðar
frá stofnun hennar til þessa dags.
Þótt ég hafí ekki af ráðnum hug
notað mér verkfysi hans til að auka
leti mína, hefur sumt af því sem
ég þóttist vera að gera til gagns
orðið honum ómældur erfiðisauki.
Svo er til dæmis um myndasafn
Eskfírðinga; ég var þefvís á mark-
verðar myndir heima og heiman,
ósporlatur að leita þær uppi og lét
ekki undir höfuð leggjast að skrifa
aftan á þær og koma þeim í örugga
vörslu heima í héraði. Fyrr en varði
voru þær famar að skipta þúsund-
um. En þá var eftir að skrá safnið
og koma á það skipulagi: margra
mánaða ef ekki ára eljustarf og
krefst mikillar nákvæmni. Þama
tók Hilmar við og hefur af iðni
verið að bæta mynd við mynd,
hundraði við hundrað, þúsundi við
þúsund í stopulum tómstundum
sínum — óbeðinn og án endur-
gjalds, knúinn til verka af vitund-
inni um að hann væri að leggja gull
í lófa framtíðarinnar. Það em svona
menn sem lyfta heilum byggðarlög-
um á hærra menningarstig: heilla-
karlar eins og Þórður í Skógum,
Jóhann Rafnsson í Stykkishólmi,
svo dæmi séu nefnd um hans líka
í öðmm fjórðungum.
Hilmar Bjamason hefur unnið
að framgangi margra þjóðþrifamála
og hvarvetna þótt tillögugóður er
mér óhætt að fullyrða: átt sæti á
Fiskiþingi í fjölda ára og verið kos-
inn forseti þess hvað eftir annað,
átt sæti í stjóm Safnastofnunar
Austurlands, náttúmvemdarmenn
eiga hauk í homi þar sem hann er,
því gömlu veiðiklónni er það mestur
unaður að fylgjast með lífinu í
náttúmnni á landi og sjó og sjá það
dafna.
Ég læt hjá líða að rekja mikil
og ánægjuleg samskipti fjölskyldna
okkar, þó að þar væri vitanlega af
mestu að taka. Slíkt er einkamál.
Aftur á móti fæ ég ekki neitað mér
um að nefna annað sem ég hef lengi
dáðst að, en aldrei haft orð á fyrr.
Á uppvaxtarámm okkar og miklu
lengur var maður í þorpinu, Gunnar
Gunnarsson frá Borgum, sem ólst
upp með móður sinni og var undir
vemdarvæng hennar uns hún lést
í elli. Þau mæðgin áttu hvort annað
að og engan annan. Eftir fráfall
gömlu konunnar var Gunnar algjör
einstæðingur. Hann var eitt þessara
fullorðnu bama sem eiga allt undir
því að náunginn taki tillit til þess
sem þau vantar. Þau em næm á
hvað að þeim snýr. Það gerðist eins
og af sjálfu sér að Gunnar varð
skjólstæðingur Hilmars í áratugi til
æviloka, þótt hann væri honum
ekki vandabundinn á nokkum hátt.
Artarsemi Hilmars við þennan um-
komulausa mann lýsir honum betur
en ég fæ gert.
Við í Suðurgötu 8 sendum Hilm-
ari og fjölskyldu hans bestu
hamingjuóskir.
Einar Bragi
NILFIS
GS90
ara
LETT. LIPUR OG VANDVIRK
Aðeins 6,1 kg á svifléttum hjólabúnaði.
Stillanlegt sogafl og afbragðs sogstykki.
STERK OG TRAUST
Reynslan sannar rekstraröryggi og
einstaka endingu.
HAGKVÆM OG HEILNÆM
10 lítra poki og svo frábær ryksíun að
hún hreinsar einnig andrúmsloftið.
Nýlegar hollusturannsóknir leiddu í Ijós
að flestar ryksugur rykmenga loftið,
sumar hrikalega.
Já, svona er NILFISK: Vönduð og fæknilega ósvikin, gerð til að vinna sitt verk,
fljótt og vel, ár eftir ár, með lágmarks truflunum og tilkostnaði.
Ull CIQIC heimsins BESTA RYKSUGA
1^1 l^^lm Stór orð, sem reynslan réttlætir
/FDniX
HÁTÚNI6A SlMI (91)24420
39
Kedjusagir
16 og 20 tommu sagir.
þqr
APMÚLA11 SIMI GBIDOtn
HÁÞRÝSTI-
VÖKVAKERFI
SérhæfÓ þjónusta.
Aóstoóum vió val
og uppsetningu
hvers konar
háþrýstibúnaóar.
Vökvamótorar
= HEÐINN =
VÉLAVERZLUN-SIMI 24260
LAGER-SÉRPANTANIR-ÞJONUSTA
Hvar þarftu
að dæla?
Hverju þarftu
að dæla?
Fjölbreyttar, öflug-
ar dælur til flestra
verka.
Réttu dælurnar frá
= HEÐINN =
VELAVERSLUN. SIMI 24260
SÉRFRÆÐIÞJONUSTA-LAGER