Morgunblaðið - 05.11.1986, Side 40

Morgunblaðið - 05.11.1986, Side 40
40 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. NÓVEMBER 1986 Minning: ÁstríðurJ. Gísla- dóttir Reykdal Fædd 23. september 1914 Dáin 28. október 1986 Það er oft sagt að konur njóti þess betur að vera ömmur en mömmur. Þær séu þá orðnar eldri, reyndari og afslappaðri (og hafi meiri tíma), þær beri heldur ekki ábyrgð á bamabömunum, spilli þeim og hendi þeim síðan í foreldr- ana. Það er eflaust nokkuð til í þessu, sérstaklega ef bamabömin búa langt í burtu og koma sjaldan í heimsókn. Ein af betri bemskuminningum mínum er ferð okkar ömmu í leið níu eitt sumarkvöld í Reykjavík fyrir 17 árum. Ég var í tveggja vikna heimsókn í borginni og hún fór m.a. með mig í þessa hringferð og í Árbæjarsafn. Ég man hvað mér fannst Reykjavík falleg (veðrið var svo gott) og safnið hlýtur líka að hafa haft góð áhrif á mig, a.m.k. þykir mér mjög vænt um hvort- tveggja enn þann dag í dag. Annað sem er óijúfanlega tengt þessari Reykjavíkurferð, sem og öðrum, er sú sæla sem glænýtt franskbrauð veitti mér. Amma tók undir það með okkur systrunum að j-músagangurinn í mjólkurbúðinni næði engri átt og að hún yrði að ræða þessi hálfétnu brauð við af- greiðslustúlkuna. Hún gerði heldur aldrei neinar athugasemdir við tíðar ferðir okkar inn á bað þar sem við smurðum tvíbökumar með signal- tannkremi. Hún varðveitt bamið í hjarta sér og við nutum góðs af því. Þegar við Kristín hófum búskap á Snorrabrautinni (þá 14 og 18 ára) gaf hún okkur matreiðslubók, en skipti sér annars ekki af heimilis- thaldinu. Ég minnist þess ekki að hún hafi fundið að við mig eða sett ofan í við mig, en við ræddum mik- ið og oft saman og það var gaman að fá þau í heimsókn. Hún sagði við mig löngu seinna að hún hefði ekki gert sér grein fyrir því þá hve ungar við vorum og hve mikil heppni það væri að við „lentum" ekki í neinu. Sumarið 1980 vann ég í eld- húsinu á Borgarspítalanum. Um það leyti var amma að hætta að vinna „í líninu" af heilsufarsátæð- um. Hennar var sárt saknað í kjallaranum, enda var hún alltaf spaugsöm og hress. Henni fannst sjálfri leiðinlegt að hætta, hún var búin að vinna þama frá opnun spítalans og kunni vel við „stelpum- ar“ og fjárhagslegt sjálfstæði. Mér fannst það léttir að vita af henni þama innan um alla gömlu félagana síðustu vikumar. í bæði skiptin sem ég hef þurft að leggjast á sjúkrahús var það hún sem lagði mig inn. í fyrra skiptið fékk ég botnlangakast, þá fimm eða sex ára. Pabbi sagði mér að fara á klósettið, en ekki linnti verkjunum við það. Amma sagði að þetta væri eitthvað meira en hægðatregða og hringdi í annan lækni! I seinna skiptið hafði ég þjáðst af hastar- legri hálsbólgu f nokkra daga. Ég átti erfitt með að einbeita mér að próflestrinum og ákvað að sækja ömmu í vinnuna. Henni krossbrá þegar hún sá mig og dró mig upp á slysadeild til einhvers kunningja síns. Ég var sett í viku einangrun, fékk nænngu í æð og komst ekki í prófrn. Ég undi þó hag mínum hið besta, enda fór ég á sérstakt fæði. Þær sögðu mér það seinna í eld- húsinu að amma hefði tilkynnt þeim hvað mér líkaði og hvað ekki og ég naut vinsælda hennar. En nú er þessu lokið og þó að ég viti að hún var hvíldinni fegin, sakna ég hennar í eigingimi minni. R1 Electrolux R] Electrolux 0] Electrolux RF-570 ísskápur H-85 sm B-55 sm D-60 sm Kr. 14.900 á lánskjörum eða 13.990 staðgreiðsluverð Vorumarkaðurinn hf. J Eiðistorgi 11 - simi 622200 Krislján Sigurðs- son — Kveðjuorð Ég hugsa um allar góðu stundimar sem við áttum saman á Guðrúnar- götunni, þar sem ég drakk í mig frásagnir hennar af vistinni hjá Hertevig bakara á Siglufirði, ferða- sögur, sögur úr vinnunni, af mömmu og af okkur. Við hættum fljótt að heimsækja hana á laugar- dagseftirmiðdögum, því þá sat hún límd fyrir framan enska fótboltann og ómögulegt að ná nokkru sam- bandi við hana. Mér fannst best að koma í miðri viku, þegar við vorum bara tvær og gátum talað saman í næði. Mér fannst hún verða æ rót- tækari í kvennréttindamálum með ámnum og hún hélt margar ræður yfir mér um hvað hún myndi ekki láta bjóða sér ef hún stæði í okkar sporum. Eins og speki hennar forð- um um hve góð áhrif rigningin í Vík hefði á hár mitt, hafði þetta áhrif á mig. Jafn óspennandi og henni þótti vinna mín fyrir þjóðminjasafnið á Akureyri í fyrra, fannst henni nám mitt og dvöl hér í New York spenn- andi. Þegar jaðrar við að stórborgin sligi mig með öllu sínu stressi og látum hugsa ég um það sem hún skrifaði mér til Skotlands fyrir nokkrum árum, hún sagði mér að halda dagbók yfir hugsanir mínar, líðan og gerðir og hafa það hugfast að þó að ástandið virðist bágt þá muni ég eflaust geta hlegið að þessu þegar ég segi bamabömunum það eftir 30 ár. Ég þakka kærlega fyrir allt gam- alt og gott og sendi afa, Steilu, Gylfa, Höskuldi, Jóni, Jóhönnu og stelpunum, mömmu, pabba, Krist- ínu og Ástríði Vigdísi mínar bestu kveðjur. New York í nóvember 1986, Ragnhildur Vigfúsdóttir. Hann Kristján mágur minn er dáinn. Þessu hugsun endurómaði í huga mínum eftir að fregnin um lát Kristjáns hafði borist til okkar hjóna. Slysin gera ekki boð á undan sér, þau em alltof algeng endalok margra íslendinga. Kristján, hinn trausti geðprúði og rólyndi maður, var skyndilega burt kallaður. Hann var fæddur 16. júní 1927 í Hafnarfirði, sonur hjónanna Sig- urðar Kristjánssonar vélstjóra, Hamarsbraut 11, og konu hans, Valgerðar ívarsdóttur, og var eitt af átta bömum þeirra hjóna. Faðir hans er látinn. Kristján hóf sjómennsku ungur að árum eins og algengt var þá. Hann sýndi snemma hvað í honum bjó, hann reyndist traustur og dug- mikill sjómaður. Fljótlega kom í ljós að hann hafði erft hæfileika föður síns, verklægni og samviskusemi. Hann lærði vélstjóm og starfaði eftir það sem vélstjóri allt þar til hann lét af sjómennsku og fór í land. Kristján starfaði meirihluta sjómennsku sinnar hjá tveim út- gerðarfyrirtækjum. Er í land kom réðst hann til Vélsmiðju Jóhanns Ólafssonar. Hjá þeim ágætis manni og sonum hans starfaði hann til dauðadags. Eftirlifandi kona hans er Kristín Þórðardóttir frá Brúsastöðum, Hafnarfirði. Þau eignuðust fimm mannvænleg böm sem öll eru upp- komin. Þau em Ingveldur Salome, Þórður Kristján, Sigurður, Valgerð- ur og Kristín. Kristín og Kristján vom mjög samrýnd hjón og er því missir Kristínar mikill. I þeim söknuði veit ég að hin indælu böm hennar og bamaböm verða henni huggun og styrkur í sorg hennar. Blessuð veri minnig vinar okkar og bróður. Friður Guðs veri með fjölskyldu hans. Ásgeir Skúlason Sigrún Sigurðardóttir Ragnheiður H. Bach- mann — Kveðjuorð Með þakklæti minnist ég Röggu, Ragnhildar Hólmfríðar Bachmann, konu frænda míns Einars Bach- mann. Það er orðið langt síðan þau fluttu frá íslandi til Bandaríkjanna, ungar manneskjur, sem hösluðu sér völl í stórborginni Chicago. Þau Frá Noregi skrifar 42 ára karl- maður sem vill skrifast á við konur á aldrinum 25-40 ára: Pelle Nilssen, Olav Nilssonsgate 62, N-4000 Stavanger, Norge. Sextán ára Ghanastúlka með áhuga á söng, ferðalögum, poptón- list og bréfaskriftum: Naomi Adjowa Kum, c/o Mr. J.K.Kum, Registrars Department, University of Cape Coast, Ghana. Fjórtán ára vestur-þýzk stúlka með áhuga á tónlist, teikningu, blómum, bréfaskrift o.fl.: Christine Fischbach, Nordring 13, 7552 Durmersheim, West-Germany. Sænskur sjúkraþjálfari hyggst kynnast landi og þjóð með því að vinna hér á landi næsta sumar. Vill komast í samband við íslenzka fjölskyldu: Inger Karlsson, Smaskolev. 63, 223 67 Lund, Sverige. áttu styrk og elsku til að standa saman í harðri baráttu og þeim vegnaði vel. Um langa hríð aðskildu okkur lönd og höf, en svo kom að þeim fundi sem ég vil minnast. Við áttum því láni að fagna að ' dvelja á heimili þeirra, um tíma, síðla árs 1979. Það voru góðar stundir, sem við ætíð munum minnast. Ragga kenndi mér að þekkja kjama þeirrar tilfinningar, sem á fomu máli heitir „römm er sú taug er rekka dregur". Aldrei hef ég orðið vitni að tryggari ætt- jarðarþrá og er mér minnisstætt að við heimkomunna sá ég landið í fegurri skrúða en nokkm sinni. Það er sagt að eylendingar séu bundnir sterkari ættjarðarböndum en gengur og gerist. Það fannst mér sannast á henni. — Hún var af sterkum stofni, í ætt við bjargið trausta og mosann mjúka. Tveir mannvænlegir synir þeirra hjóna, Fyrsta súpukeppni hér á landi FYRIRTÆKIÐ Daníel Ólafsson og CO h.f. mun standa fyrir fyrstu súpukeppni sinnar teg- undar hér á landi í veitingahús- inu Broadway fimmtudaginn 13. nóvember næstkomandi. Hefst dagskráin klukkan 17.00 með sýnikennslu og matvælakynn- ingu fyrir matreiðslumenn og þá sem lengra eru komnir. Sjálf keppnin hefst klukkan 20.00. Allir útlærðir matreiðslu- menn fá tækifæri til að taka þátt í keppninni. Hver keppandi fær 15 mínútur til að laga „heimsins bestu súpu“, eftir þann tíma er viðkom- andi dæmdur úr leik. Sjö keppendur verða á sviðinu í einu, eldað verður á sérsmíðuðum gaseldunarborðum. Fyrstu verðlaun verða farand gull-kokkahúfa, ásamt ferð til Sviss til að heimsækja framleiðslufyrir- tækið Hugli og ýmis veitingahús. Hnífasett verður í önnur verðlaun Erik og Brian, fullkomnuðu mynd- ina af gæfulegri fjölskyldu, sem við áttum með ógleymanlega daga. Nú þegar frændi minn flytur hennar jarðnesku leifar heim, bið ég Guð að styrkja hann og syni þeirra. Blessuð sé hennar minning. Helga Bachmann Svissneski matreiðslumeistarinn Max Luethi frá Hiigli mun kynna vörur fyrirtækisins á súpuke- oppninni í Broadway. og matreiðsiubækur í þriðju verð- laun. Almenningi mun gefast kostur á að fylgjast með og smakka á verðlaunasúpunni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.