Morgunblaðið - 05.11.1986, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. NÓVEMBER 1986
“RLÞlUöl'? feG- ÞHRF BÐ EA FW> TRLH Vlí> HRNN SrfFAN SALU<S^=»u
Tölvuvæðing upplýsinga-
þjónustu Pósts og síma
í Velvakanda (8. okt. sl.) gerir
Karl athugasemdir við þjónustu
svokallaðra 0-númera hjá Pósti og
síma. Þetta eru þjónustunúmer
stofnunarinnar. Skilja má á Karli
að hann eigi einkum við upplýsing-
ar, 03. Hann hefur að eigin sögn
orðið fyrir því að ekki hefur verið
svarað þegar hann hringir í þjón-
ustunúmer og síminn jafnvel hringt
út án þess að hann næði sam-
bandi. Karl segir í framhaldi af
þessu: „Mér finnst að þetta hafi
einkum komið til eftir að farið var
að tölvuvæða upplýsingar og nýju
símkerfin tóku við af þeim gömlu."
Nú er það staðreynd að virka
daga fá að jafnaði 10—12.000
símnotendur upplýsingar með því
að hringja í 03. Talsímaverðir í
langlínumiðstöðinni, 02, annast
handvirku langlínuafgreiðsluna og
handvirku farsímaþjónustuna, 002,
auk þess sem þeir vekja á hveijum
morgni 700—800 símnotendur.
Tölvuvæðing upplýsingaþjón-
ustunnar fyrir nokkrum árum flýtti
mjög fyrir afgreiðslu upplýsinga og
gerði kleift að veita öllum símnot-
endum á landinu sömu þjónustu að
þessu leyti.
Eins og ljóst má vera hringja
margir daglega í upplýsingar og
margir virðast kjósa það frekar en
að fletta upp í símaskrá. Þetta veld-
ur því að mikið álag er á upplýsinga-
þjónustunni allan daginn og má því
búast við að ekki takist að svara
öllum sem hringja þegar mest
mæðir á. Með því að fjölga starfs-
fólki og bæta við svarbúnaði væri
hægt að bæta þjónustuna eins og
Karl getur sér réttilega til, en við
það ykist að sjálfsögðu kostnaður
stofnunarinnar og um leið símnot-
enda.
Fullyrða má að tölvuvæðing og
ný símkerfi auki afköst og bæti
þjónustuna, þótt Karli finnist ann-
að. Án tölvuvæðingar væri ekki
unnt að veita þá þjónustu sem nú
er fyrir hendi nema með mikilli
ijölgnn starfsmanna. En þrátt fyrir
sjálfvirkni er ekki líklegt að hin
gamla handvirka þjónusta falli al-
veg úr gildi. Áfram verður leitað
leiða til að gera betur og koma til
móts við óskir og kröfur símnot-
enda.
Jóhann Hjálmarsson,
blaðafulltrúi Póst- og
símamálastofnunar.
Matthías Bjarna-
son á heiður skilið
Kæri Velvakandi
Mig langar til að nota þetta tæki-
færi til að óska Matthíasi Bjarnasyni
viðskiptamálaráðherra innilega til
hamingju með hans ákveðnu stefnu
gagnvart Sovétmönnum varðandi
saltsíldarkaup og olíukaup.
Eg verð að segja að ég er nokkuð
hissa á því hversu íslensk stjómvöld
virðast vera róleg í þessu máli. Má
vera að glansinn sé ekki alveg af
leiðtogafundinum en íslenska þjóðin
getur ekki lifað á glansmyndum. Ef
Sovétmenn geta ekki staðið við
milliríkjassamninga við ísland þá eru
þeir í raun og veru að segja upp
öllum þeim tengslum sem skapast
hafa á milli ríkjanna. Þá það. Við
finnum nýja markaði.
Virðingarfyllst
Vilhjálmur Alfreðsson
Þessir hringdu. .
Reidhjóli
stolið
Húsmóðir hringdi:
Nýju BMX-reiðhjóli var stolið
síðastliðinn sunnudag þar sem það
stóð á horni Bræðraborgarstígs
og Holtsgötu. Níu ára drengur
úr nágrenninu hafði gleymt hjóli
sfnu þarna en er hann hugðist
sækja það var hjólið horfið. Reið-
hjólið er svart og silfurgrátt,
keypt fyrir þremur mánuðum.
Þeir sem upplýsingar geta gefið
um reiðhjólið eru beðnir að hringja
í sfma 13966 og er fundarlaunum
heitið.
HEILRÆÐI
Slysavamafélag íslands vill vekja athygli skotveiðimanna á að
gæta ávallt fyllstu varúðar f meðferð skotvopna og hafa það jafnan
hugfast að fjöldi fólks á öllum aldri leitar útivistar og fer í göngu-
ferðir án þess að gera sér grein fyrir því að á svæðinu sé stunduð
ijúpnaveiði.
Jafnframt beinir SVFÍ þeim vinsámlegu tilmælum til allra þeirra
er útivistar njóta að skipuleggja ferðir sínar um þau landsvæði þar
sem ijúpnaveiði er ekki leyfð og bendir í því sambandi á friðlýst
útivistarsvæði.
51
0
l Bönabœ
í kvöld kl. 19.30.
Hœsti vinningur aö verömœti kr. 45.000,-
Heildarverömœti vinninga ekki undir kr. 180.000,
Óvœntir hlutir gerast eins og venjulega.
Húsiö opnar kl. 18.30.
Blaðburóarfólk
óskast!
KÓPAVOGUR
Nýbýlavegur 5-36
Dalbrekka 2-8
Hlíðarvegur 1-29 o.fl.
Hlíðarvegur 30-57
fMttgmiMaMfr
i
í
{
i J
í
I
GUFUGLEYPIR E 601
Blomberq
Nóvemberkjör:
Verð: 9.450 stgr.
Útb: 2.000
l
Lágvær — 3 styrkleikar. Inn-
byggð lýsing. Stillanlegurgler-
skermur. Getur blásið út eða
hringrásað loftið gegnum kola-
síu. Festanleg á vegg eða beint
undiryfirskáp. Styrkur375 m
klst.
Litir: Brúnn, gulur, grænn, rauð-
ur, grár, hvítur.
EF
EINAR FARESTVEIT & CO. HF.
BERGSTAÐASTRÆTI I0A - SlMI I6995
Ertu að byggja — Viltu breyta — Þarftu að bæta |
JD
O
(Q
3
(0
a
(0
%
0)
•Q
3
(0
'55
o>
>
JQ
O
(0
3
t:
LU
LÆKKAÐ VERÐ
Afsl.
Málning ....... 15^/o
Penslar, bakkar,
rúllusett ...... 20°/o
Veggfóður og veggdúkur. 40%
Veggkorkur ....... 40%
Veggdúkur somvyl . 50%
LÆKKAÐVERÐ
til hagræðis fyrir þá sem eru að
BYGGJA - BREYTA EÐA BÆTA
Líttu við í LITAVERI því það hefur
ávallt borgað sig.
t
m
3
c l
0) i
o» J
o- i
2 j
s. í
a> a
cr í
® í
* í
a> ;
u.
TJ t
0>
fi>
o»
o-
Ertu að byggja — Viltu breyta — Þarftu að bæta f
I