Morgunblaðið - 05.11.1986, Qupperneq 54
54
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. NÓVEMBER 1986
Sigi Held, landsliðsþjálfari:
Knattspyrnan á
íslandi olli mér
vonbrigðum
• Að sögn Slgi Held var Framliðið eina falenska félagsliðið sem
reyndi að leika góða knattspyrnu f sumar. Á myndinni er Pótur
Ormslev leikstjórnandi Fram.
SIGI Held, iandsliðsþjálfari f
knattspyrnu, er nú aftur sestur
að í Vestur-Þýskalandi eftir að
hafa verið búsettur á íslandi
allt síðastliðið sumar. Hann var
hór á landi til að kynna sór
íslenska knattspymu og
íslenska knattspyrnumenn en
þekking á fslenskum aðstaaðum
er að sjálfsögðu grundvöllur
þess að geta valið besta lands-
liðið á hverjum tfma. Morgun-
blaðið spurði Sigi Held um hvað
honum hafi fundist um knatt-
spyrnuna hór á landi.
„Mér þótti hún því miöur afar
slök", sagði hann. „Ég sá fáa
góða leiki á íslandi í sumar og
satt að segja varð ég fyrir dálitl-
um vonbrigðum. Bestu íslensku
liðin kæmust líklega ekki í aðra
deild í Vestur-Þýskalandi. Enda
eru þau eingöngu skipuð áhuga-
mönnum."
„Aðalatriðin í fslensku knatt-
spyrnunni virðast vera hraði og
harka og hinn svokallaði „kick
and run" fótbolti ræður ferðinni
að mestu. Mér virtist Fram vera
• Sigfrled Held
eina félagsliðið sem reyndi virki-
lega að leika góða knattspyrnu".
- Hvað er hægt að gera til
bæta úr þessu?
„Lengja keppnistímabilið. Það
er að mínu mati númer eitt, tvö
og þrjú. Það er afskaplega erfitt,
nánast útilokað, að ná upp góð-
um knattspyrnuliðum þegar
aðeins er leikið í nokkra mánuði
á ári. Það verður að æfa meira
og leika meira. Ég hef enga skoð-
un á því hvernig best er að gera
þaö - hvort það eigi að fjölga liö-
um í 1. deild eða leika deildar-
keppnina á einhvern annan hátt.
En leikjunum verður að fjölga".
- Sástu leikmenn í íslensku
knattspyrnunni sem gætu skap-
að sér nafn f atvinnumennsku?
„Já, það eru margir strákar á
fslandi með mikla hæfileika. En
þá kem ég aftur að því sama -
þeir verða að æfa og leika miklu
meira en þeir gera nú. Ég sá
svona 20 til 30 stráka í sumar
sem gætu orðið góðir atvinnu-
menn ef þeir gætu æft tvisvar á
dag og leikið allt árið. Ef þeir
þyrftu ekkert að hugsa um nema
knattspyrnuna."
- Hvar stendur landsliðið
getuiega séð?
„Ef allir leikmennirnir eru með
og leika af 110% getu þá er
íslenska landsliðið gott lið. Þá
gætum við unnið mjög góð
landslið í Evrópu, lið sem aldrei
eru nefnd í sömu andrá og það
íslenska. Ef okkur hinsvegar
vantar einn eða tvo menn af
þeim sterkustu þá hrapar það
um gæðaflokk og á þá litla mögu-
leika gegn atvinnumannaliðum."
- Hve góðir eru landsliðs-
menn okkar f samanburði við
knattspyrnumenn almennt í
Evrópu?
„Þeir eru misgóðir eins og ís-
lendingar vita. Ég tel t.d. Ásgeir,
Arnór og Atla vera leikmenn af
háum gæðaflokki og miða þá við
knatspyrnuna í V/estur-Þýska-
landi. Þetta eru leikmenn sem
leikið hafa allt árið lengi og hafa
haft knattspyrnuna fyrir atvinnu
árum saman. Fyrir hina strákana,
sem vinna fulla vinnu með þessu,
er mjög erfitt að ná góðum ár-
angri," sagði Sigi Held.
Ljósmynd/Niels Hermannsson
• Sigurvegarar á haustmóti JSÍ sem haldið var um helgina. Frá vinstri: Haukur Garðarsson, Auðjón
Guðmundsson, Freyr Gauti Sigmundsson, Jóhannes Haraldsson, Halldór Guðbjörnsson,Omar Sigurðsson
og Arnar Marteinsson.
Mikil barátta á
haustmóti í júdó
HAUSTMÓT JSÍ var haldið f
íþróttahúsi Kennaraháskólans
laugardaginn 1. nóv. sl. Keppt var
í 4 þyngdarflokkum karla og 3
þyngdarflokkum drengja, sam-
tals 34 keppendur.
Sérstaka athygli vakti harðfylgi
þeirra Jóhannesar Haraldssonar
UMFG og Halldórs Guðbjörnsson-
ar JR, en þeir sigruðu báðir í sínum
þyndgarflokkum eftir harða bar-
áttu.
3. Eirikur I. Kristinsson Ármanni
3. Davíð Gunnarsson Ármanni
+ 86 kg flokkur
1. Ómar Sigurösson UMFK
2. Halldór Hafsteinsson Ármanni
3. Guðmundur Sm. Ólafsson Selfossi
í fyrsta skipti voru nú keppendur
frá Selfossi, en þar hafa verið
stundaðar júdóæfingar á vegum
Ungmennafélags Selfoss undan-
farin 2 til 3 ár. Stóðu þeir sig með
mikilli prýði og verður gaman að
fylgjast með þeim í framtíðinni.
Veitt voru sérstök verðlaun fyrir
_'*stystu glímu mótsins sem lands-
liðsþjálfari JSÍ, Finninn Reino
Fagerlund, gaf. Halldór Hafsteins-
son, Ármanni hlaut þau fyrir eina
af glímum sínum, sem lauk með
fallegu kasti, „uchi-mata", á að-
eins 6 sekúndum.
í drengjaflokki var framganga
þeirra Gauta Sigmundssonar og
Auöjóns Guðmundssonar úr KA
sérlega glæsileg og er enginn vafi
á að þeir geta náð langt með sama
áframhaldi.
Úrslit einstakra flokka urðu sem
hér segir:
KARLAR: + 65 kg flokkur
1. Jóhannes Haraldsson UMFG
2. Magnús Kristinsson Ármanni
3. Helgi Júlíusson Ármanni
3. Stefán Gunnarsson Selfossi
+ 71 kg flokkur
1. Halldór Guðbjörnsson JR
2. Karl Eriingsson Ármanni
+ 86 kg flokkur
1. Arnar Marteinsson Ármanni
2. Jón Atli Eövarösson Ármanni
3. Ófeigur Grétarsson Ármanni
DRENGIR: 11—12 ára
1. Haukur Garöarsson Ármanni
2. ólafur Helgi Þorgrímsson Ármanni
3. Jón Gunnar Björgvinsson Ármanni
13-14 ára: + 65 kg fl.
1. Auöjón Guömundsson KA
2. Biörn Helgi Björgvinsson Ármanni
3. Ólafur Ólafsson Ármanni
13-14 ára: + 55 kg fl.
1. Freyr Gauti Sigmundsson KA
2. AÖalsteinn Jóhannesson KA
3. Elías Bjarnason Ármanni
Evrópukeppnin íknattspyrnu:
Risarnir mætast
íTorinó íkvöld
ÍTÖLSKU meistararnir Juventus
leika gegn spönsku meisturunum
Real Madrid í Evrópukeppni
meistaraliða í knattspyrnu ■'
kvöld. Real Madrid vann fyrri leik-
inn sem fram fór í Madrid með
einu marki gegn engu. Uppselt
er á leikinn í kvöld, eða um 64
þúsund manns.
Seinni leikirnir í 2. umferð
Evrópukeppninnar fara fram í
kvöld. Margir telja að Juventus og
Real Madrid séu með bestu félags-
lið Evrópu í dag og súrt að annað
þeirra falli úr keppninni í kvöld. En
svona er knattspyrnan.
Juventus getur nú stillt upp sinu
sterkasta liði í langan tíma.
Michael Laudrup og Aldo Serena
verða með í kvöld, en þeir hafa
báðir átt við meiðsli að stríða að
undanförnu. Rino Marchesi, þjálf-
ari Juventus, sagði að endurkoma
Laudrups og Serena í liðið kæmi
til með að breyta liðinu til hins
betra.
„Ég hugsa að Real Madrid leiki
með svipuðu sniði og þeir gerðu á
Spáni. Þeir reyna að sækja og
freysta þess að skora annað mark.
Við verðum að vera varkárir og
sækja án þess að það komi niður
á varnarleiknum, “ sagði Marchesi.
,, 1—0 sigur Juventus mundi
þýða framlengingu og þá hugsan-
lega vítaspyrnukeppni. En einmitt
í vítaspyrnukeppni hafa mörg
ítölsk lið farið flatt að undanförnu.
Roma og Napoli voru bæði slegin
út úr Evrópukeppninni í fyrstu
umferð eftir vítaspyrnukeppni og
svo tapaði ítalska landsliðið, sklp-
ðað leikmönnum undir 21 árs,
Evrópumeistaratitlinum til Spán-
verja eftir vítaspyrnukeppni.
„Ég held aö þessi leikur verði
ekki framlengdur og að til víta-
spyrnukeppni þurfi ekki að koma.
Ég er sannfærður um að Juventus
vinnur með tveimur mörkum gegn
engu og kemst þar með áfram, “
sagði Michel Platini.
• Michael Laudrup leikur með
Juventus í kvöld.
Forseti Juventus, Giampiero
Boniperti, sagöi að öll ítalska þjóð-
in stæði með Juventus í kvöld.
„Það er þó grátlegt að annað af
tveimur bestu félagsliðum Evrópu
þurfi að falla úr keppninni eftir leik-
inn í kvöld, “ sagði Boniperti.
Emilio Butragueno, sem leikur í
fremstu víglínu hjá Real Madrid
ásamt Hugo Sanchez og Jorge
Alberto Valdano, sagði að Real
Madrid gæti alveg eins unnið leik-
inn í Torinó í kvöld. „Real Madrid
er lið sem skorar jafnan mikið af
mörkum. Fyrstu 30 mínúturnar í
leiknum gætu ráðið úrslitum, “
sagði Butragueno.
Liðin verða þannig skipuð:
Juventus: Tocconi, Favero, Cabrini,
Bonini, Brio, Caricola, Mauro, Manfredon-
ia, Serena, Platini og Laudrup.
Real Madrid: Buyo, Chendo, Camacho,
Salguero, Sanchis, Gordillo, Butragueno,
Michel, Hugo Sanchez, Gallego og
Valdano.