Morgunblaðið - 05.11.1986, Qupperneq 56
SEGÐU
RNARHÓLL
> PEGAR
^ÚEERÐ ÚTAÐ BORÐA
Smi 18833--------
STERKT KORT
MIÐVIKUDAGUR 5. NÓVEMBER 1986
VEW) I LAUSASOLU 50 KR.
Nær víst að
Kasparov kem-
ur í febrúar
YFIRGNÆFANDI likur eru á því
að Garrí Kasparov, heimsmeist-
j3ri í skák, komi hingað til lands
i febrúar til þess að taka þátt í
skákmóti, sem IBM á íslandi
gengst fyrir i tilefni af 20 ára
afmæli sinu. Skáksamband ís-
lands sér um framkvæmd móts-
ins, sem verður það sterkasta
sem haldið hefur verið hérlendis,
því 5 af 12 sterkustu skákmönn-
um heims hafa tilkynnt þáttöku.
„Það er engin spurning að það
er mjög mikilvægt að fá tækifæri
til þess að taka þátt í svona sterku
skákmóti, en það er þó ennþá mikil-
vægara að standa sig vel,“ sagði
Margeir Pétursson, einn flögurra
íslenskra stórmeistara, sem taka
^Jíátt í mótinu. Hann kvað góðar
líkur á því að einhver íslensku stór-
meistaranna lenti í verðlaunasæti,
að því tilskyldu að þeir tefldu eins
og þeir best geta.
Margeir sagði að hann hefði að-
eins einu sinni teflt við Kasparov,
og þá hefði hann tapað eftir að
m Kasparov sneri á hann í byijun-
inni. Þetta var á olympíuskákmót-
inu árið 1980. „Það gengur vónandi
betur núna'. Við höfum báðir lært
mikið síðan og farið mikið fram,“
N 5Eagði Margeir.
Sjá nánar frétt á bls. 23.
Fiskmarkaður
ódýrari hér í
Reykjavík
— segir Davíð Oddsson
HJÁ Reykjavíkurborg stendur
yfir athugun á heppilegu hús-
næði fyrir fiskmarkað í gömlu
höfninni í Reykjavík.
„Það er ljóst að stofnkostnaður
við fiskmarkað í Reykjavík verður
mun ódýrari þar sem húsnæðið er
fyrir hendi. Þannig að við teljum
okkur hafa ákveðið forskot í þeim
efnum," sagði Davíð Oddsson borg-
arstjóri en Bæjarstjóm Hafnar-
fjarðar hefur ákveðið að reisa
húsnæði fyrir fiskmarkað þar. Hann
sagði að engin ákvörðun hefði verið
tekin um framhaldið en bjóst við
að stofnað yrði hlutafélag um rekst-
ur markaðarins þegar að því kæmi.
„Við teljum að Reykjavík sé best
staðsett fyrir fiskmarkað, hér er
miðstöð samgangna við hann,“
sagði Davíð.
Sólstafir
Morgunblaðið/RAX
SVARTASTA skammdegið nálgast óðfluga, eins og sést á þess-
ari mynd sem tekin var á Reykjanesbrautinni um klukkan 16 í
gær. Bíll með ljósin kveikt minnir okkur á að nýtt Ijósaskoðun-
artímabil er hafið. Sólstafirnir eru tignarlegir en skýjabakkinn
minnir okkur á að alira veðra er nú von.
Flugleiðir:
40% aukning bók-
ana í millilandaflugi
Október var metmánuður í innanlandsf luginu
MIKIL aukning er á bókunum í
millilandaflugp Flugleiða í nóv-
ember og desember. í nóvember
eru bókanir til dæmis 40% meiri
en í nóvember í fyrra. Aukningin
er á öllum leiðum félagsins. Þá
hefur verið mikil aukning á
flutningum Flugleiða í innan-
landsflugi í haust og var október
metmánuður.
Margrét Hauksdóttir, deildar-
Fræðsla um alnæmi efld
VEITT hefur verið aukafjár-
veiting úr ríkisjóði að fjárhæð
2,5 milljónir króna til að hrinda
af stað fræðsluherferð gegn
alnæmi.
Heilbrigðisráðherra, Ragnhild-
ur Helgadóttir, kynnti fræðsluher-
ferðina í ríkisstjóminni í gær. í
samtali við blaðamann Morgun-
blaðsins sagði hún að fræðsla
væri tvímælalaust besta vömin
gegn þessum skæða sjúkdómi.
Herferðinni verður fyrst og fremst
beint að ungu fólki á aldrinum
15-25 ára. „Það er mikilvægt að
fólk á þessum aldri, sem stofnar
til ýmissa lausasambanda viti um
þær hættur sem slík sambönd
hafa í för með sér,“ sagði Ragn-
hildur.
Að sögn Ólafs Ólafssonar, land-
læknis, hefur komið í ljós að
alnæmi breiðist út fyrir áhættu-
hópana fyrst og fremst með
eiturlyQasjúklingum. Eiturlyfja-
sjúklingur sem sýktur er af
alnæmi er nú undir ströngu eftir-
liti lækna. Ólafur sagði að sá
möguleiki hefði verið íhugaður að
svipta sjúkling sjálfræði haldi
hann áfram að hafa samræði við
aðra og breiða þannig út sjúk-
dóminn.
Ólafur sagði að spumingin um
sjálfræðissviptingu hefði aðeins
verið rædd sem hugsanlegur
möguleiki, í erfiðum tilvikum þeg-
ar alnæmissjúklingur fer ekki að
tilmælum lækna og stefnir öðmm
í hættu
Sjá einnig fréttir á bls. 4.
stjóri í kynningardeild Flugleiða,
sagði í samtali við Morgunblaðið í
gær að bókanir í millilandaflugi í
nóvember væru um 22.500 á móti
16.000 á sama tíma í fyrra og er
aukningin því rúm 40%. I desember
eiga um 21 þúsund farþegar bókað
á móti 17 þúsund farþegum í fyrra.
Margrét sagði að aukningin hefði
byijað í september og í október
hefði verið góð aukning í farþega-
flutningum Flugleiða í millilanda-
flugi. Sagði Margrét að aukningin
í bókunum fram til áramóta kæmi
fram á öllum flugleiðum en nefndi
Bretland sérstaklega sem dæmi um
jákvæða þróun. í sumum tilvikum
hafa Flugleiðir þurft að mæta au-
kinni eftirspum með því að láta
stærri flugvélar fljúga áætlunar-
flugið. Um ástæður aukningarinnar
sagði Margrét að þar væri án efa
um að ræða árangur af góðu sölu-
starfi á undanfömum mánuðum og
árum.
í október fluttu Flugleiðir 19.478
farþega í innanlandsflugi, á móti
15.464 farþegum í október í fyrra
og er aukningin þvi 26% á milli
ára, og er þetta met í októbermán-
uði hjá félaginu. Aukning varð
einnig í fraktflutningum' og póst-
flutningum innanlands. í október
voru flutt 192 tonn af vörum, sem
er 10% meira en í fyrra og tæp 102
tonn af pósti, sem er 21% aukning
frá október í fyrra. Flugleiðir nefna
gott veður í október og vinsældir
svokallaðra helgarpakka sem
ástæður fyrir auknum farþega-
flutningum í innanlandsflugi.
Flóttínn kostaði
rjúpuna lífið
Stykkishólmi.
SÁ atburður gerðist hér í Stykk-
ishólmi fyrir nokkru að ijúpa
kom fljúgandi á mikilli ferð að
grunnskólanum. Flaug hún á
gluggarúðu á neðra gangi skól-
ans og í gegn.
Atburðurinn átti sér stað laust
eftir hádegi og kennslustundir í
fullum gangi. Þegar að var komið
lá rjúpan dauð fyrir innan
gluggann. Ekki leikur vafi á, að
rjúpan var á flótta undan fálka.
Árni.
/