Morgunblaðið - 21.11.1986, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, PÖSTUDAGUR 21. NÓVEMBER 1986
7
Þykkvabæjarkart-
öflur lækka um 10%
Þykkvabæjarkartöflur hafa
lækkað heildsöluverð á öllum
nnnnm kartöflum nm 10% og
kostar nú til dæmis 700
gramma poki af frönskum
kartöflum 72 krónur í heild-
sölu en kostaði fyrir verðlækk-
unina 78,80 krónur. Ef gert
er ráð fyrir 37% smásöluálagn-
ingu kostar sami poki um 98
krónur út úr búð.
Að sögn Jóns Magnússonar hjá
Þykkvabæjarkartöflum er þessi
verðlækkun til að styrkja sam-
keppnisaðstöðu Þykkvabæjarkart-
aflna gagnvart innfluttum unnum
kartöflum, og er verð á þessum
vörum nú sambærilegt.
Lokabindi upp-
vaxtarsögn Jakobs
- eftir Sigurö A. Magnússon
ÚT ER komin hjá Máli og menningu bókin Úr snöru fuglarans
eftir Sigurð A. Magnússon. Er hún lokabindið í uppvaxtarsögu
Jakobs Jóhannessonar, en fyrri bindi bókaflokksins eru: Undir
kalstjörnu, Möskvar morgundagsins, Jakobsglíman og Skilnings-
tréð.
í fréttatilkynningu frá Máli og
menningu segir:
„Jakob hefur nú lokið stúdents-
prófí; hann er altekinn frelsiskennd
og haldinn hamslausri útþrá: „Mér
virtust allir vegir vera færir, en
framtíðin var óráðin af því ég vissi
ekki gerla hvað gera skyldi við
nýfengið frelsi." Hér segir af fyrstu
utanlandsför Jakobs, þátttöku
hans í kristilegu starfí og innri
baráttu vegna freistinga ástarinn-
ar. Einkum eru það kynni af
fínnskri stúlku sem hafa djúpstæð
áhrif á Jakob, og verður sérstæð
ástarsaga þeirra rauður þráður
bókarinnar. Líkt og í fyrri bókum
uppvaxtarsögunnar fléttar höfund-
ur saman þroskasögu ungs manns
og myndir úr sögu þjóðar; á þess-
um árum í kringum 1950 réðst líka
framtíð hins unga lýðveldis.“
Úr snöru fuglarans er 394 bls.
að stærð og unnin að öllu leyti í
Prentsmiðjunni Odda hf. Teikn
gerði kápu.
fltofgtiaftlfifcife
Metsölublaó á hverjum degi!
★
Mikið úrval af
dún- og vattfóðruðum barnaúlpum
og samfestingum.
Fallegar og vandaðar vörur
á Torgverði, sem engan svíkur.
★
Nú getið þið keypt húsgögnin án útborgunar, því Kreditkort hf. hefur
gert samning við stærstu húsgagnaverslun landsins, Húsgagnahöllina hf.
Með Eurokredit borgar þú í janúar ’87 fyrstu afborgun af því sem
þú kaupir í dag tii 17. desember og í febrúar '87 frá 18. desember.
með Eurokredit getur þú jceypt húsgögn án úrborgunar með alit
að 8 mánaða afborgunum í gegnum Eurokortið þitt.
HUSCÖCIV
húsgagnsbhöllín
BÍLDSHÖFÐA 20-112 REYKJAVÍK - 91 -681199 og 681410