Morgunblaðið - 21.11.1986, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. NÓVEMBER 1986
9
Einlœgar þakkir til allra sem sendu mér vinar-
kveÖjur á sjötugsafmceli mínu.
Erlendur Sigmundsson.
Ykkur öllum er sýndu mér vináttu í orÖi og
verki á áttrœÖisafmœli minu 14. október sl.
þakka égafheilum hug. Hamingjan fylgi ykkur.
Ingibjörg Friðgeirsdóttir,
Hofstöðum.
Fótaaðgerðir
Kristín Steingrímsdóttir, fótasérfræðingur
er til húsa í snyrtistofunni Ársól,
Grímsbæ, sími 31262.
AVAXTATILBOÐ
if
:
m
40%
\ aTSiaxiur i OMandarínur kr. 50 ,-pr. kg. f
7 Appelsínur kr. 49,-pr.kg. ^
/ Bananar kr. 72,-pr.kg. ^
/ Epli, rauð kr. 57,-pr.kg.
/ Epli, gui kr. 50,-pr.kg. ^
/ Vínber kr. 1 80,-pr.kg.J
VSmiBL
Þverbrekku 8 Kópavogi - Sfmar 42040 og 44140
/ tilefni 5 ára afmælis Lækjarbrekku um þessar
mundir höfum við ákveðið aö breyta út af venju
okkar sunnudagskvöldið þann 23. nóvember nk.
Verðum þá með átta rétta kvöldverð ásamt tilheyr-
andi drykk.
Tekið verður á móti yðurog gestum yðar ísalarkynn-
um Litlu Brekku kl. 18— 18.30 með fordrykk og
canapé.
Siðan verður haldið yfir á Lækjarbrekku í kvöldverð.
Vinsamlegast tilkynnið þátttöku yðar ísíma 14430
fyrir laugardaginn 22. nóvember. Nánari upplýsing-
ar eru gefnar ísama síma.
Þátttökugjald aðeins kr. 2.950,-.
ivienu
RauÖvínslegin kanína. ,
Köld sveppasúpa meö snjóeggjum og kaviar
Gufusoöin ýsa meÖ spinati og sölum.
Heitur grœnmetisréttur i brauöskel.
Ilmjurtarkrap.
Lundapakki.
Ostur.
BlandaÖur is í körfu.
Kajfi og koníak eöa likjör.
Sundrungin í
Alþýðubandalaginu
Allir stjórnmálaflokkar þurfa að glíma við innanflokksátök af ein-
hverju tagi. Líklega er þó enginn íslenskur stjórnmálaflokkur
jafn illa haidinn að þessu leyti nú um stundir og Alþýðubandalag-
ið, þar sem allt logar bókstaflega í illdeildum, þar sem hver
höndin er uppi á móti annarri. Það er því í senn raunalegt og
fyndið að sjá hvernig einn af ritstjórum Þjóðviljans reynir að
breiða yfir þessa staðreynd í leiðara blaðsins í gær. Um þetta
er fjallað í Staksteinum í dag.
„Rökkursögnr
íhaldsins“
Leiðari Þjóðviljans í
gær nefnist „Rökkursög-
ur Quddsins" og þar er
þvi haldið fram, að
Jhægri sinnaðir fjölmiðl-
ar“ leiki sér að þvi að
„mála skrattann á vegg-
inn“ sjái þeir einhver
merki þess i Alþýðu-
bandalaginu ...'ið þar hafi
ekki allir félagar ná-
kvæmlega sömu skoðun
á öllum hlutum.“ Til-
gangurinn sé „að gera
Alþýðubandalagið tor-
tryggilegt i augum
kjósenda." Síðan er vitn-
að í Staksteina Morgun-
blaðsins, þar sem fjallað
var um innanflokksátök-
in í Alþýðubandalaginu,
og ritstjórinn segir: „Það
sem þama skin i gegn
er óttinn við Alþýðu-
bandalagið sem hið
leiðandi afl til vinstri i
islenskum stjómmálum."
(Ekki segja nú skoðana-
kannanir það!) Til að
hrekja þessi skrif segir
ritstjórinn, að ágreining-
urinn i flokknum sé ekki
annað en veqjuleg „um-
ræða“ og minnir á, að
stjómmálaályktun
siðasta miðstjómarfund-
ar Alþýðubandalagsins
hafi verið samþykkt ein-
róma.
Undir lok leiðarans er
eins og einhveijar efa-
semdir sæki þó á ritstjór-
ann og hann skrifar: „Nú
inn stundir er vandlifað
fyrir þá Alþýðubanda-
lagsmenn, sem vilja hafa
áhrif og standa fremstir
meðal jafnra, þvi að yfir
þeim er vakað af fjöl-
miðlum, sem vilja nota
orð þeirra og gerðir til
að leggja út á versta veg
... “ Og heilræði ritstjór-
ans er: „f þessum málum
eins og öðrum er best að
segja sannleikann tæpi-
tungulaust. Dylgjur og
hálfkveðnar visur em til
þess eins að efla óvina-
fagnað. Best er að þeir
sem hafa eitthvað að
segja komi þvi á fram-
færi á opinskáan og
heiðarlegan hátt ... “
Alvarlegnr
ágreiningnr
Enginn skyldi halda.
að það hafi verið ætlun
ritstjóra Þjóðviljans að
kveða niður „rökkursög-
ur £haldsins“. Ritstjórinn
veit það jafn vel og aðrir
sem með stjómmálum
fylgjast að ágreiningur-
inn í Alþýðubandalaginu
er gifurlegur og kann að
leiða til klofnings flokks-
ins. Þetta er ágreiningur
um stefnuna i verkalýðs-
og kjaramálum, utanrík-
ismálum og nm samstarf
við aðra flokka, svo
nokkuð sé nefnt. Agrein-
ingurinn snýst einnig nm
völd og hagsmuni hópa
og einstaklinga. Hver
kannast t.d. ekki við deil-
ur Svavars Gestssonar og
Ólafs Ragnars, Þjóðvi(j-
ans og verkalýðsforyst-
unnar, „lýðræðiskynslóð-
ar“ og flokkseigenda?
Þessar deilur em sannar-
lega ekki tilbúningur
„hægri sinnaðra fjöl-
miðla", heldur hafa
forystumenn Alþýðu-
bandalagsins sjálfir
haslað sér völl í fjölmiðl-
unum og borið deilumar
á torg. Þær hafa stund-
um verið svo magnaðar
að þær hafa orðið helsta
fréttaefni fjölmiðla.
En ef ritstjórinn gerir
sér fulla grein fyrir
þessu, hvað vakir þá fyr-
ir honum? Líklega
tvennt. Annars vegar að
slá ryki í augu fólks og
gera minna úr innan-
flokksátökunum en efni
standa til. Hins vegar —
og það er vafalaust mikil-
vægari ástæða — að
reyna að fá flokksbræð-
ur sina til að sliðra
sverðin — ef þeir geta —
eða vera hógværari og
hófsamari i opinberum
umræðum um ágrein-
ingsmálin. í þvi sambandi
er rétt að vekja athygii
á orðalaginu i niðurlagi
leiðarans, en þar er i
senn að finna sáttatón
og ávftur. Sáttatónninn
er um mennina „sem vijja
hafa áhríf og standa
fremstir meðal jafnra “(!)
Ávitumar em um „dylgj-
ur og hálfkveðnar vísur“
(en þar er enginn nafn-
greindur) og menn sem
segja ekki „sannleikaim
tæptungulaust“ (en þar
er augijóslega skotið á
Svavar Gestsson vegna
ósanninda hans um fyrír-
tælqastyrld til Alþýðu-
bandalagsins). Og þegar
talað er um forystumenn
i flokknum „sem hafa
eitthvað að segja“ vakn-
ar að sjálfsögðu sú
spuming, hvaða forystu-
menn það em sem ekki
hafa neht að segja en em
samt sífellt blaðrandi.
Kannski það verði upp-
lýst i næsta leiðara?
Lokaorðin í leiðara
Þjóðviljans em: „Við sem
teljum okkur beijast fyr-
ir sannleika, jöfnuði og
réttlæti [!] þurfum að
vera vönd að meðulum.
Látum aðra um róginn."
Undir það skal tekið, að
æskilegt er að Alþýðu-
bandalagsmenn (og aðrir
stjómmálamenn) séu
vandir að meðulum og
láti róg lönd og leið —
hvort sem er i almennri
stjómmálabaráttu eða
innanflokksátökum. Mál-
efnaleg barátta skiptir
höfuðmáli. En leiðari
Þjóðviljans er þvi miður
ekki annað en frekari
staðfesting á þvi, sem
allir vita sem vita vilja,
að allt annar veruleild
blasir við i Alþýðubanda-
laginu; að Alþýðubanda-
lagið er þverklofinn
flokkur, sem ógerlegt er
að eiga samstarf við eins
og nú háttar.
LVnW
Hljóðeinangrandi
loftaplötur til lím-
ingar í loft.
ÍSLENZKA
VEKZLUNAKFÉLAGIÐ HE
UMBOOS- & HEILDVEH2LUN
Loftaland,
Bíldshöfða 16,
sími 687550.
Andrews hitablásarar
fyrirgaseðaolíu
eru fáanlegir í fjölmörgum
stærðum og gerðum
Algengustu geröir eru nú fyririiggjandi
Skeljungsbúðin
Síðumúla 33
símar 681722 og 38125